Vikan


Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 20

Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 20
Judy Barland og Liza, dóttir hennar. I marzmánuði síðastliðnum hélt Judy Garland hliómleika f þremur borgum í Svíþióð, Stokkhólmi, Málmey og Gautaborg. Troðfullt var á öllum hljómleikunum og færri komust að en vildu. Fyrir þessi þrjú kvöld fékk hún greidda hvorki meira né minna en tæpa eina milljón ís- le.izkra króna. Hin mikla aðsókn að hljómleikum Judy Garland stafar ekki af þvf, að áheyrendur geti treyst því að fá að njóta góðrar tónlistar eina kvöld- stund. En einu geta þeir treyst: Það er engin hætta á, að hljómleikarnir verði miðlungs-góðir. Annað hvort verða þeir stórkostlegir eða um hneyksli verður að ræða. Judy Garland hefur lifað ævin- týralegu og stormasömu lífi. Ymist hefur hún staðið í sviðsljósi vel- gengni og hamingju eða fallið í skugga eiturlyfjaneyzlu og tauga- áfalla. Ef til vill er það hið óvenju- lega líf hennar, sem vekur forvitni almennings í hvert skipti sem hún rís upp og heldur hljómleika eftir nokurt hlé Á hverjum hljómleikum rifjar hún upp gamlar minningar og og þar af leiðandi á stöðugum þeyt- ingi fram og aftur um Bandaríkin. Segja má, að varla hafi krókurinn fyrr geta beygzt til þess sem verða vildi hjá Judy Garland. Aðeins tveggja og hálfs árs að aldri kom hún fyrst fram á sviði. Hún söng jólalagið „Jingle Bells" þannig, að hjörtu allra áheyrenda hrærðust. Og svo vel kunni hún strax við sig á sviðinu, að hún vildi ekki hætta. Það varð að bera hana grenjandi og spriklandi út af sviðinu! — Siðan hef ég í rauninni séð um mig sjálf, segir Judy Garland og brosir. Hún segir, að faðir sinn hafi verið góður maður og vel gefinn, og hafi reynt eftir beztu getu að vara hana við hættum listamannalífsins. Móður sinni lýsir hún hins vegar sem hinu versta skassi, sem hafi troðið barni sínu upp á sviðið til þess eins að græða á því og stung- ið peningunum ( sinn eigin vasa. Judy átti tvær systur, sem í fyrstu voru látnar koma fram með henni að hún hefði mikla persónutöfra til að bera og væri gædd listrænum hæfileikum í ríkum mæli. — Hún syngur og dansar ótrúlega vel, sagði hann. Hún verður ein af barnastjörnun- um og leikur í hverri myndinin á fætur annarri. Hún öðlast miklar vin- sældir í myndunum um Andy Hardy ásamt Mickey Rooney. Hún þénar reiðinnar feikn af peningum, en þeir renna allir ( vasa móðurinnar. Móð- irin reynir að ávaxta féð og kaupir verðbréf og hlutabréf í ýmsum fyr- tdækjum. En allt þetta brask henn- ar fer gersamlega út um þúfur og hin unga dóttir hennar stendur uppi slypp og snauð. Judy naut lítillar ástar í æsku. Hún unni föður sínum og var hænd að honum, en hann yfirgaf hana strax á unga aldri; fór sína leið og hafði ekkert samband við hana upp frá því. Ofan á þetta bættust fjár- málaáhyggjur vegna brasks móður- innar og stöðugt vaxandi ábyrgð og Judy Garland ásamt öðrum eiginmanni sínum, Vincente Minelli, og dóttur þeirra, Lizu. STÖRKOSTLEG KVÖLD- STUND EÐA HNEYKSLI syngur lögin, sem hún varð fræg fyrir hér á árum áður og fáum hef- ur tekizt að túlka af meiri tilfinn- ingahita og innlifun. Meðal þessara laga eru „Over the Rainbow", „Swanie", „I can't Give You Any- thing but Love". og fleiri. Judy Garland heitir réttu skírnar- nafni Frances Ethel Gumm. Foreldr- ar henanr voru báðir farandleikarar á skemmtunum. Það andar köldu frá Judy í garð systranna. Hún segir, að þær hafi verið lítilsígldar og hæfi- leikalausar með öllu. Þegar Judy var enn aðeins tán- ingur að aldri, var hún „uppgötvuð" eins og kallað er. Það var Louis Mayer hjá Metro-Goldwyn-Mayer kvikmyndafélaginu, sem kom auga á hæfileika hennar. Hann sagði strax kröfur af hálfu kvikmyndafélagsins. Og enn eitt vandamál mætti nefna, sem hún þurfti að glíma við: Hún tók að fitna mjg fljótlega, en slíkt getur eins og gefur að skilja haft alvarlegar afleiðingar fyrir kvik- myndastjörnu. Af öllu þessu varð hún smátt og smátt taugaveikluð. Ferill hennar hefur svo sannarlega ekki verið óslitin sigurganga eða dans á rósum. Þvert á móti hefur hann einkennzt af sigrum, sem ent- ust skamman tlma. Oft bar þrotlaus barátta hennar engan árangur. Hún tók að leita sér huggunar í deyfi- lyfjum. Til að byrja með tók hún megrunartöflur til að seðja sárasta hungrið. Síðan varð hún að taka róandi lyf til þess að geta sofið á nóttunni og síðan strax morguninn 20 VIKAN 19- tbL eftir örvandi lyf til þess að vera hress og vel upplögð fyrir framan kvikmyndavélarnar. Einnig átti hún vanda til að fá ákafan höfuðverk og hafði sterk lyf gegn honum. Kvikmyndafélagið gerði miklar kröfur til hennar í sambandi við auglýsingastarfsemi og samkvæmis- líf. Það var verið að sýna hana dag út og dag inn; á blaðamannafund- um, frumsýningum og í samkvæm- um. Og alltaf var þess krafizt, að hún væri hress og glöð, svo að per- sónutöfrar hennar nytu sín sem bezt. Fólk mátti ekki verða fyrir von- brigðum, er það kynntist henni í eigin persónu. Það hafði gert sér ákveðnar hugmyndir um hana með hliðsjón af leik hennar í kvikmynd- um. Og þannig átti hún að vera. Ef forráðamönnum kvikmyndafélagsins líkaði ekki útlit hennar eða fram- koma eitthvert sinnið, fékk hún á- minningu. Hún tók að slá slöku við starfið; mætti of seint á æfingar og var stundum svo illa fyrirkölluð, að ekkert gat orðið úr kvikmyndatöku. Hún missti stjórn á skapi sínu og fék taugaáfall. Um þessar mundir giftist hún í fyrsta sinn, manni að nafni David Rose, sem var miklu eldri en hún. Sjálf var hún aðeins nitján ára. Hjónaband þeirra entist aðeins ( fá- eina mánuði. 1948 var henni boðið aðalhlutverkið í kvikmynd, sem gera átti eftir hinum fræga söngleik „Annie Get Your Gun". Hún tók það að sér með glöðu geði og æfingar hófust af kappi. En fljótlega kom það í Ijós, að hún var dauðþreytt og taugaspennt. Henni urðu á hver mis- tökin á fætur öðrum. Á einni æfing- unni missti leikstjórinn þolinmæðina og allt fór í bál og brand. Daginn eftir fékk hún bréf frá kvikmynda- félaginu þess efnis, að hún þyrfti ekki að mæta á fleiri æfingar. Önn- JUDY GARLAND HEFUR LIFAÐ ÆVINTYRALEGU 0G STORMASÖMU LÍFI. YMIST HEFUR HÚN STAÐIÐ í SVIÐSLJÖS! VELGENGNI 0G AÐDÁ- UNAR EÐA FALLIÐ í SKUGGA EITURLYFJANEYZLU 0G TAUGAÁFALLA. ENN RÍS HÚN UPP ÖÐRU HVERJU 0G HELDUR HLJÖMLEIKA. ÁHEYR- ENDUR GETA TREYST ÞVÍ, AÐ HLJÓMLEJKAR HJÁ JUDY GARLAND ERU ALDREI MIÐLUNGS-GÖÐIR. ÞEIR ERU ANNAÐ HVORT STÖR- KOSTLEGIR EÐA HNEYKSLI. ur leikkona hafði verið ráðin í henn- ar stað. Hún átti erfitt með að sætta sig við þetta,- fannst hún ranglæti beitt og svikin. Hún reyndi að svipta sig lífi. Þetta var um sama leyti og annað hjónaband hennar með Vin- cente Minelli, fór út um þúfur. Hún er ein og yfirgefin með litla dóttur sína, Lizu, sem hún eignaðist með Vincente Minelli. En enn á ný tekst henni að koma undir sig fót- unum. Hún kynnist Sid Luft, giftist honum og fyllist aftur kjarki og starfsþrótti. Sid reyndist henni afar vel og tókst að lækna taugaveiklun hennar á skömmum tíma. Þau eign- uðust tvö börn, Lorna og Joey. Hún vinnur nýja sigra í kvikmyndaleikn- um. Hún leikur aðalhlutverkið í myndinni „A star is Born" og fær feikilega góða dóma. Hún var sann- kölluð stjarna ársins 1954 og gerði sér miklar vonir um að hljóta Osk- ars-verðlaunin. En þær vonir brugð- ust, því að verðlaunin höfnuðu hjá Grace Kelly. En hún naut mikillar hylli um þessar mundir, ferðaðist um Bandaríkin þver og endilöng og hélt hverja hljómleikana á fætur öðrum. En slíkar hljómleikaferðir eru með afbrigðum erfiðar og taka á taugarnar. Hún söng eitt kvöld á hverjum stað, gisti á hótelum, gat ekki sofið, tók svefntöflur, átti erfitt með að vakna, tók örvandi lyf, fékk ekki einu sinni tíma til að borða nægilega á matmálstímum, — út úr flugvél, upp í bfl, inn á nýtt hótel, taka upp úr töskunum í flýti, sminka sig og láta laga á sér hárið, kynna sig fyrir nýrri hljómsveit — þannig koll af kolli í hverri borginni á fæt- ur annarri. Loks gafst hún upp og fékk tauga- áfall. í þetta skipti var það alvar- legra en áður. Hún er lögð inn á sjúkrahús og það kemur f Ijós að hún er með lifrarsjúkdóm. Henni er sagt, að hún muni ekki fá fulla starfskrafta aftur og er bannað að stunda starf sitt. Hún ákveður að skipta um umhverfi og flyzt til Lund- úna ásamt fjölskyldu sinni, staðráðin ( að lifa heilbrigðu og reglusömu llfi. 1960, eftir sex ára hvfld, tekur hún aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið. Hún kemur fram á Palla- dium í Lundúnum og vekur gífur- lega hrifningu. Maður að nafni Freddie Fields gerist umboðsmaður hennar, lokkar hana yfir til Banda- ríkjanna og gerir samninga um kvikmyndahlutverk og hljómleika- hald fyrir hennar hönd. Hann er líka fyrsti umboðsmaðurinn, sem ekki kvartar undan vexti hennar. — Þú ert 70 kíló, en þú ert í fremstu röð bandarískra skemmti- krafta og það gerir ekkert til. Ég ábyrgist, að þetta fer allt vel hjá okkur. Hann reyndist sannspár og hélt öll loforð sín. Eftir annasamt ár er Judy orðin skuldlaus og segir við blaðamenn að þetta sé ( fyrsta skipti á ævinni, sem hún þurfi engar pen- ingaáhyggjur að hafa. En ( staðinn kom áhyggjur af Framhald á bls. 47 19 tbl VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.