Vikan


Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 43

Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 43
merki á vinstri hlið, há, dimm grenitré á hægri hlið. — Hafið lengra bil á mijli, sagði Karsch, — ég held að stelpan hafi snúið sér tvisvar eða þrisvar við. Ein beygja ætti að vera milli.... Haller hægði ferðina. Hendur hans skulfu. Hann varð að beita sig hörðu, til þess að vera róleg- ur. Hugsanirnar kvöldu hann. Hvert skyldi þessi ferð leiða? Hafði hún í raun og veru ein- hverja þýðingu? Eða lá hún að- eins inn í lokað götu? Og hvað þá, ef Janine lifði ekki lengur? Hvað gagnaði honum, þótt hann uppgötvaði glæp? Ast — hver spurði um hana á þessu andartaki? Vegurinn lá nokkurn spöl með- fram Walchensee. Sumartíminn var enn ekki byrjaður. Stóru hó- telin voru tóm og auð útlits. Ljós logaði í einstaka glugga. Beygja, enn önnur beygja, síð- an hæð....... Þegar þeir voru komnir upp á hana, steig Haller á bremsuna. Afturljós rauða sportbílsins voru gjörsamlega horfin. Haller stöðvaði vélina og slökkti ljósin. Þeir rýndu með erfiðismunum út í myrkrið. Var þetta vélarhljóð? Kom það frá hægri? Eða vinstri? Eða var þetta aðeins ímyndun þeirra? Að minnsta kosti hafa þau beygt hérna einhvers staðar, sagði Karsch ákveðinn. — Ef við snúum við, þá sjáum við vega- mótin. Haller sneri við. Hann ók hægt til baka í öðrum gír. Til allrar óhamingju voru þrír möguleikar fyrir hendi. Vegur, sem strax varð svo brattur, að ólíklegt virt- ist, sem nokkur bíll gæti ekið hann. Nokkurn veginn viðunan- legur malarvegur, sem ólæsilegt skilti benti á að lægi til einhvers þorps. Og í þriðja lagi vegur, sem lá í áttina beint niður að vatninu, og var merktur „einka- vegur“. Eyðilegi kofinn við vatnið — var það ekki ákvörðunarstaður þeirra? Haller og Karsch hugs- uðu ósjálfrátt það sama og ákváðu alð fara þriðju öfugu leiðina.... Janine var ekki dáin. Því hina dauðu getur ekki dreymt. Hana dreymdi aftur á móti, að hún væri lítil stúlka. Hún var með ljósar fléttur og hún lék sér í brúðuherbergi nokkru. Hún átti þrjár litlar og tvær stórar brúð- ur. Sú fallegast hét Laura, hún var með ekta hár, og mamma hafði saumað á hana rauðan silkikjól. Hún vaknaði. Og brúðurnar voru horfnar. Hún ætlaði að hrópa, en gat það ekki. Hún ætl- aði að rísa á fætur, en það tókst ekki. Og hún reyndi að lyfta handleggnum, en hann hlýddi henni ekki. Hvað sem hún reyndi á sig, hafði það enga þýðingu. Hún var jafn líflaus og brúðurnar, sem hún hafði verið að leika sér að. Hún gat ekki hreyft höfuðið hjálparlaust. Ennþá verra var, að hún fann alls ekki fyrir líkama sínum. Hún gat aðeins hreyft augun, til hægri og vinstri, upp og nið- ur. En hún sá ekkert, því það var myrkur. Og hún heyrði ekk- ert, því allt var hljótt. Dauðakyrrð. f þessu hræðilega ástandi hennar urðu minningarnar ljós- lifandi. Ekkert vantaði þar í. Hún hefði getað sett líf sitt full- komlega saman. Hún sá hendur Júrgens aftur fyrir sér, mjúkar, viðkvæmar hendur hans, sem höfðu læstst um háls hennar eins og járn- greipar. Henni fannst, eins og hún væri nauðbeygð til þess að lifa það upp aftur. Hið hræðilega augnablik, þeg- ar henni varð ljóst, að eignmað- ur hennar ætlaði að myrða hana, stóðu henni ljóslifandi fyrir hue- skotsíónum. Það augnablilc varð henni Ijóst, að hann mundi ekki hafa neina meðaumkun með henni. Hve langt var síðan? Hún hafði t.apað timaskvniun sinni. Síðan gátu verið liðnar klukkustundir. jafnvel dagar. Hægt og hævt gerði hún sér grein fyrir, hvar hún var stödd. Þegar augu hennar höfðu vanizt myrkrinu gat hún séð útlínur herbergisins, borð, lampaskerm, vegg með dyrum. Gólfið, sem hún lá á, lyktaði af gömlum viði. Janine var næst- um bví viss um, að hún væri ennþá í þessum eyðiiega veiði- kofa. sem hún hafði farið með Júrgen til. ekki vegna þess að hún elskaði hann ennbá. heldur vegna þess að hún vildi fletta af honum grímunni. veena bess að hún ætlaði loks að hrevta sann- leikanum í andlit honum. Það hlýtur að vera nótt. hues- aði hún. Ef ekki, væri nóttj mundi einhver dagskíma falla bingað inn. Eg mun telja næt- urnar og dagana .... þangað til ée eet, ekki talið lengur. St.epban er ennþá á ferðala<n. Þegar hann kemur aftur, mun hann bvrja að leita mín. En hverniií ætti ban nnokkurn tíma að geta fundið þennan kofa. ef hann kæmi gæti ég ekki sa"t eitt einasta orð við hann. Eg gæti ekki leneur sagt. honum, hv° vænt mér þvkir um hann. Til hvers b'ka? Hvers veena vil ég að mér verði biargað? Hvaða lif biði mín. eftir betta. sem gerzt hefur? Góði guð. hvers vegna léztu mi» ekki devia? Það er ekki nóg að lifa til þess eins að geta dregið andann. Undarlegt. hlióð barst henni allt í einu til evrna. Krafs klór, eitthvað skreið eftir gólfinu, eitthvað lifandi. Hræðileg tilhugsun gagntók ^______________________/ hana. Ef rottur væru hérna í húsinu, hungraðar rottur, þá gætu þessi kvikindi einfaldlega hertekið hana. Og hún gæti ekki varizt þeim. — Hjálp, ætlaði hún að hrópa. Hún reyndi af öllum kröftum að bæra varirnar. En hún gat það ekki. Aðeins hljótt öskur, sem enginn heyrði. Janine bað. Því í örvæntingu sinni fann hún ekkert annað úr- ræði. Hún bað ekki fyrir lífi sínu, hún bað um dauða, viðkvæman, hægan dauða. Á þessu andartaki heyrði hún allt í einu vélarhljóð í bíl. Það nálgaðist hratt, og þegar það þagnaði heyrði hún bílhurð skellt. Fótatak nálgaðist húsið. Lykli var stungið í skráargatið, dyrn- ar opnuðust. Vasaljósi var beint að henni. — Hvað er þetta? spurði stúlkurödd, sem hún þekkti þeg- ar, að var rödd Gaby Westphal. —• Það er ekkert, svaraði Júrgen lágt, — aðeins lík, sem liggur á gólfinu. Sjáðu hérna, annars trúir þú mér ef til vill ekki. — Lokaðu dyrunum, sagði Gaby. — Eg held ég viti, hvar við getum sett hana. Nei, hugsaði Janine, ég þarf ekki að óttast rotturnar framar. Morðingjarinr eru komnir aftur. Júrgen hafði brett frakka- kraga sinn upp. Honum fannst nóttin köld og drungaleg. Hend- ur hans voru stífar. Hann var smátt og smátt far- inn að óttast Gaby. Hann fann að hún var gerð úr öðrum viði en hann. Hún gekk inn í kofann, án þess að horfa um öxl. Hann fylgdi henni eftir, lokaði dyrunum og lýsti inn með vasa- ljósinu. Nokkrir refafeldir héngu á snaga, tveir uppstoppaðir fugl- ar dingluðu í bandi. Einn vegg- urinn var þakinn bókum. — Júrgen, verkfærin hljóta að vera þarna inni. Taktu að minnsta kosti skóflu með þér. Hann horfði í andlit hennar. — Jörðin er ennþá harðfrosin, Gaby það mundi taka mig klukku stundum saman að grafa nógu stóra gröf. — Þú þarft ekki að grafa neitt, sagði hún. — Og þetta mun ekki heldur taka neinar klukku- stundir. Hann fann skóflu eftir dálitla leit. Þau gengu síðan þögul kringum húsið, meðfram styk- ilsberjarunna, þar til þau komu að lágvöxnu kjarri. Gaby stappaði með öðrum fæti á jörðina, þangað til hún heyrði allt í einu málmhljóð. Júrgen horfði furðu lostinn á hana. — Þarna niðri er djúp gryfja, hvaða þýðingu hún hefur, veit ég ekki. Henni er lokað með járnhlera. Þú verður að lyfta honum, þá höfum við þann bezta felustað, sem við getum óskað okkur. — Hvernig veiztu þetta? spurði hann og hristi höfuðið. Eg hef verið hér mjög oft með föður mínum, svaraði hún, — strax þegar ég var barn, tók hann mig með sér á veiðar, nú, þá lét pabbi setja þennan járn- hlera, svo ég dytti ekki niður í gryfjuna. Júrgen vann án þess að mæla orð frá vörum. Þegar hann hafði mokað gróðrinum til hliðar og stungið nokkrar skóflustungur af mold, var auðvelt fyrir hann að lyfta hleranum. Rotnunar- og myglulykt lagði fyrir vit hans. Hann tók stein og lét hann falla og hlustaði. .— Eins og þarna niðri sé vatn, sagði hann utan við sig. Birtan frá vasaljósinu lýsti upp ferhyrnt opið. — Sækjum hana nú, saeði Gaby óþolinmóð, — þegar hún er komin þarna niður og hlerinn aftur kominn á sinn stað, þá get- ur varla neitt misheppnazt. Einkavegurinn, sem Haller og Karsch höfðu ákveðið að fara, reyndist vera blindgata. Þar var enginn rauður sportbíll, ensin spor, aðeins dimmt, timburhús, sem augljóslega enginn bjó í. Þeir óku þögulir til baka. Fvrst þegar Haller beygði aftur inn á þjóðveginn spurði hann: — Hvert núna? Eg held, svaraði Karsch, 19. tbi. yiKAN 43

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.