Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 32
Ronson
HÁRÞURRKA HEIMILANNA
TILVALIN FERMINGAllGJÖF
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVÍK
32 VIKAN 19-tbl-
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú verður sjálfur að ráða fram úr vandamálunum, því þeim er þannig háttað, að utanaðkomandi geta ekki ráðlagt þér. Líkur eru á að þú komist ekki hjá óþægilegum viðskiptum. Flanaðu ekki að neinu.
Nautsmerkið (21. aprd — 21. ma(): Þú verður að umgangast nokkra kunningja þina með varúð, vegna sameiginlegs hagsmunamáls. Reyndu sem fyrst að komast úr félagsskap þeirra. Gættu tungu þinnar. Skemmtiferð í vændum.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Það er ekki hægt að ná góðum árangri, án nokk- urrar fyrirhafnar. Fyrirætlanir þínar hafa ekki enn náð því stigi að þú getir litið á þær sem alvöru. Vertu varkár, oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
# Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); í vikunni gefst þér venju fremur tími til að sinna áhugamálum þínum. Það kemur sér vel því hin dag- ' legu störf eru þreytandi. Þú planleggur sumarleyf- ið rækilega. Þú skemmtir þér á nýjan máta.
W9f Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Líkur eru á að vikan færi þér hluti sem koma á óvænt. Þú færð furðulega hugmynd, sem þú verður að koma á framfæri. Gættu þín á tveimur persón- um, sem vilja gera samkomulag við þig.
Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Þessi vika verður erilsöm og ber margt á góma. Þú hefur engan tima til að láta þér leiðast. Þótt ýmis- legt í umhverfi þínu sé ógnvekjandi eru miklar lík- ur til að þú sleppir við skrekkinn einan saman.
Vogarmerkið (24. september — 23. október) Þú hefur lengi átt von á breytingum sem nú eru loksins í aðsigi. Arangur vikunnar verður mikið undir félögum þínum kominn. Vertu vandlátur ef þér býður svo við að horfa. Hvað bíður síns tíma.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú stendur fyrir miklum framkvæmdum og koma þar margir við sögu. Persóna á heimilinu er of ráð- rík til að skap ykkar fari saman að sinni. Þú hefur mikið gagn og gaman af störfum þínum.
Bogamarinsmerkið (23. nóv. — 21. desember):
Margt er uppi á teningnum, flest fremur jákvætt.
Þú færð símafréttir, ekki alltof góðar. Sýndu þínum
nánustu að þú kunnir að meta þá, leitaðu ráða
þeirra og aðstoðar. Stutt og skemmtileg ferð i aðsigi.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Samband þitt við ákveðna persónu er ekki eins von-
laust og þú heldur. Þú ættir að láta til skarar skríða
ó fimmtudag. Farðu ekki beint framan að hlutun-
um, treystu fyrst grundvöllinn.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Eyddu ekki miklum tíma í að hugsa um álit ann-
arra á þér. Þann veikleika þarftu að komast yfir.
Vertu fastheldnari á fé þitt, austu því ekki í fánýtt
dót. Þú átt erfitt verk fyrir höndum.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú ert iðinn og duglegur við flest er þú tekur þér
fyrir hendur. Þér er nauðsynlegt til að staðna ekki
að leita nýrra verkefna, helzt gjörólikra þeim, sem
þú hefur nú með höndum.