Vikan


Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 7

Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 7
 NÍ ER ÞAD SVART. MABUR Vitið þið, hve mikla málningu þið hafið yfir höfðinu, þegar þið fljúgið með Rolls Royce frá Loft- leiðum? Þið megið geta þrisvar. Nei, það var ekki rétt, hið rétta er eitt tonn. Myndin var tekin, þegar Bjarni Herjólfsson fékk síðast hvítt klapp á kollinn, það BARNHELD MEBALAGLO^ Ný brezk uppfinning er þessi að- ferð til að ganga þannig frá loki á pilluglösum og öðrum meðala- flöskum, að börn á óvitaaldri geti ekki opnað ílátin og farið sér að voða með innihaldinu. Tennur efst á ílátinu eiga sér hliðstæðu innan í lokinu svo því verður ekki hnikað, nema þrýst sé ofan á það um leið, og eru litlar líkur til þess taldar, að börn hafi lag á því. Treanor sá, sem þessa uppfinn- ingu gerði, beitti heldur illmann- legri aðferð til að prófa og sanna raungildi þessa handverks síns. Hann lét sælgæti í nokkur glös, sem lokað var á þennan hátt, og gaf hópi barna undir sex ára aldri. Árangurinn varð mikið erfiði og töluvert af tárum — en ekkert sælgætisát. •—• Uppfinn- ingin hefur nú verið skráð á einkaleyfi í 17 löndum og er framleiðsla í Bretlandi og Banda- ríkjunum að hefjast. var úti á Miami og kostaði jarð- arverð, meira að segja með áhöfn og nokkrum vélum. En vei þeim innfæddum ameríkana, sem hefði vogað sér að gefa hinum rétta Bjarna Herjólfssyni svoddan gusu... . ☆ -"N • Þegar Jón fór til Indía, nagaði heimþráin hann fyrst en síðan tígrisdýr. • Víst voru sumrin fegurri hér áður fyrr. Éq líka. 9 Nú, ef maður ekki les annarra manna bréf, ve:t maður ekki hvað stendur í þeim! 9 Auðvitað valdi ég minnsta transistorinn. Það er útilokað, að nokkrar stórvægilegar bilanir verði á svona litlu apparati. 9 Ef maður fengi nú allt í einu útborgaðar allar þær krónur,, sem maður hefur borgað í opinber gjöld um dagana. ja, hvílík ofsaleg giöld fengi maður þá! • Þeir halda áfram að skrifa tékkana í Prag. © Ég get nú ekki sagt, að franskan mín sé fullkomin, en hún gæti dugað mér til þess að lagleg frönsk hnáta ræki mér utan undir. • Einvígi í dögun þýðir byssur fyrir tvo oq morgunmat fyrir einn. TILÞRIF í KLUKKUMALUM Della í klukkumálum hefur ný- lega gengið yfir Bretland. Ungt fólk hefur keppzt um að vera með sem sérstökust og hlemmi- legust armbandsúr. Framleiðend- ur hafa gripið við hart og fram- leitt stálleguúr ótrúlega ódýr með alls konar framhliðum, en verðið er ekki hærra en svo, að fólkið hefur efni á að eiga vel til skiptanna. Og þó hafa úrin að sögn reynzt allbærilegir tíma- verðir. Hér er mynd af einum svoriá úrhlemmi. i9. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.