Vikan


Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 26

Vikan - 08.05.1969, Blaðsíða 26
Min DREYMIR Á ISLEIMZKU Cllll PIIIEI SEM VEITIR FORSTÖÐU SAUMASTOFU KARNABÆJAR TEXTI: SIGURÐUR HREIÐAR í litlu husi á Klapparstígn- um, húsi, sem smíðað var fyrir mörgum áratugum. já, þegar amma var ung, er nú stöðugur straumur síðhærðra og buxnavíðra bítla, og í stig- arium rekast þeir á sportlega klædda unga athafnamenn og virðulega eldri borgara. Hvaða straumur er þetta, hér upp á loft í gömlu timbur- húsi? Jú: Menn eru að fá sér föt. Hér fá þeir fötin saumuð eftir máli og eftir því, sem þeim sjálfum þókn- ast: ef þig langar að hafa ut- anávasa með rennilás milli herðablaðanna þá gerðu svo vel, Colin Porter saumar það fyrir þig án þess að hneyksl- ast. Þótt ég geri hins vegar fastlega ráð fyrir, að hann spyrji þig hógværlega, hvern- ig þú ætlir að hafa gagn af téðum vasa. Það var í vetur, einn af þessum hörðu frostdögum, sem fylgja síðari aldahelftum á Tslandi, að ég settist inn hjá Colin Porter til að gera við hann viðtal. Hann er nefni- lega á vissan hátt brau'rvðj- andi í fatasaumi hérlendis, í saumastofunni í Karnabæ saumar hann föt eftir máli á þá, sem vilja vera svolítið öðruvísi en allir hinir, en samt fínir. Og milli anna falla orðaskipti okkar eitthvað þessu líkt: — Þú ert Breti. Englend- ingur, Skoti eða Velsi? — Englendingur. Fæddur i Leeds, sem er fataborg og saumaborg. Svo ég er fædd- ur til að verða skraddari, og ég byrjaði að læra 15 ára gamall. Til íslands kom ég 22 ára, þá sem klæðskeri bjá Alexandres á Keflavíkurflug- velli. Og þar byrjaði ég að syngja með danshljómsveit- um. Að þvi loknu fór ég heim aftur og lærði karlmanna- fataútstillingu, en kom svo aftur til íslands sem söngv- ari. Þá söng ég í Storkklúbbn- um, sem nú er Glaumbær, og þegar Storkklúbburinn fór á hausinn samkvæmt venju margra íslenzkra fyrirtækja, var ég atvinnulans og varð þá klæðskeri hjá TJltíma, þar sem ég yar svo þangað til ég tók að mér að stofna sauma- stofu í Karnabæ. — En hvers vegna varstu ckki kyrr í Leecis, úr því bú varst kominn þansrað aftur? — Ja — hvað skal segia? Mér þótti fólkið þar of stíft, það gat aldrei slakað á, þar að auki var stéttaskiptinvin bar svo ákveðin oc mörkuð. Eg hafði líka vanizt. Tslandi og líkaði bað vel. Nú er ég kvæntur íslenzkri konu, og við eigum tvö börn. — TTvað er talað heirr.a þér, íslenzka eða enska? — Mest enska, held ég. Annars er mér það ekki al- veg ljóst. Tslenzka er orðin mér svo töm, að ég stend mig st.undum að bví að rembast við að lesa íslenzka textann í sjónvarpinu en reyna ekki að hlusta á þann enska. Og mig dreymir á íslenzku. Hins vegar reyni ég að tala ensku heima, því ég vil, að börnin Iæri hana. 2ö VIKAN 19-tM-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.