Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 2
Cofgate fluor
gerir tennurnar sterkari
við hverja burstun
Spyrjið tannlækni yðar...
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur
mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar.
Byrjið í dag
- það er aldrei of seint...
Frá allra fyrstu burstun styrkír Colgate Fluor tannglerunginn
og ver tennurnar skemmdum. Með þvi að bursta tennurnar
daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn
gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt
við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna.
Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur.
IIULLRI
Lokaðar dyr
Góðu heilli er nú flestum
að verða ljóst, að mörgu er
ábótavant í skólamálum okk-
ar. Því verður ekki móti mælt,
að við höfum stórlega dregizt
aftur úr á þessu mikilsverða
svtöi og megum sannarlega
halda vel á spöðunum, ef ekki
á illa að fara.
Sérstaklega virðist Háskóli
íslands illa á vegi staddur og
varla ofmæit að segja, að þar
hafi skapazt ófremdarástand.
Æðsta menntastofnun lands-
ins býr ekki einasta við léleg-
an húsakost, enda nær aliar
byggingar hennar síðan fyrir
stríð, heldur virðast kennslu-
haettir og skipulag allt miðað
við þarfir fortíðarinnar, en
ekki nútíðarinnar, að ekki sé
minnzt á framtíðina.
í seinni tíð hefur athygli
almennings aftur og aftur
verið beint að vandamálum
háskólans. Á afmæli lýðveld-
isins gáfu stúdentar út blað,
sem borið var í hvert ein-
asta hús og hafði að geynm
ófagrar lýsingar á aðbúnað:
stúdenta. Og nú síðast hefur
aðsókn að læknadeild skól-
ans verið takmörkuð fyrir-
varalaust. Afleiðingin af þess-
ari síðustu ráðabreytni er sú,
að stór hópur nýstúdenta,
sem hafði ákveðið að hefja
læknanám í haust, stendur nú
uppi ráðalaus og á ekki í önn-
ur hús að venda. 111 nauðsyn
er ugglaust orsök þess, að að-
sókn að læknadeildinni er
takmörkuð, en hana hefði átt
að boða með miklu lengri fyr-
irvara, svo að stúdentsefni
hefðu tíma til að gera sínar
ráðstafanir. Þeir nýstúdentar,
sem staðráðnir voru í að
gerast læknar, en koma nú að
lokuðum dyrum Háskóla ís-
lands, af því að þe'r hafa
ekki hlotið tilskylda einkunn
á stúdentsprófi, hafa verið
ranglæti beittir, sem illt er að
þola.
Vonandi verður þetta nýj-
asta hitamál til að flýta fyrir
róttækum breytingum á skipu
lagi háskólans. G.Gr.