Vikan


Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 33

Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 33
Hann strauk í kofforti Mentol sigarettan sem hefur hreint og hressandi bragð. "AMERISK GÆÐAVARA" Framhald af bls. 47 sentimetra langt, sextíu á breidd og álíka djúpt. Kannski hefur varð- mönnunum dottið í hug sem snöggvast, að maður gæti komizt niður f koffortið, en þeirri hugmynd hljóta þeir að hafa vísað frá sér jafnskjótt og þeir sáu það. Það gat aðeins rúmað dverg, og enginn dvergur var meðal fanganna á Ré. Varga og Tenne voru ekki í sömu deild, og þess vegna hugsaðist eng- um að Tenne hafði í sínum klefa koffort, nákvæmlega eins og það sem Varga var sent. Hann hafði átt það árum saman og notað til að geyrha í ýmsa persónulega muni. Tenne er hundrað sjötíu og átta sentimetra á hæð og vegur rúm áttatíu og tvö kíló. Þegar hann var einn í klefanum á nóttum, iðkaði hann æfinqar eftir kerfi, sem hann sjálfur hafði fundið upp. Með þessu móti gerði hann sig svo liðugan, að hann gat skriðið ofan í koffortið sitt. En ekki nóg með það. Hann hafði komizt upp á að loka koffort- inu að innan og umfram allt . . . hann hafði lært að halda niðri í sér andanum! Síðar fullyrti hann að sér hefði tekizt það í sex mínútur. Á föstudagskvöldið tók Coly fangelsisstjóri á móti föngunum þremur, sem átti að láta lausa: Varga, Ventin og Battaglini. Þeir fengu laun sín, nokkur vingjarnleg orð, axlarklapp og síðan voru þeir ferðbúnir. Tveir varðmenn báru koffort Varga út ( fangelsisgarðinn og lyftu því inn í leigubílinn, sem beið þar. — Fjandinn sjálfur, rumdi ( öðr- um varðmannanna. — Ekki hélt ég að bækur gætu verið svona þungar. Frelsingjarnir þrír yfirgáfu fang- elsið með leigubílnum, sem fór með þá beint niður að ferjunni til La Rochelle. Þar var farangur þeirra tekinn úr bílnum og Varga borqaði bilstjóranum. Jafnskjótt og bfllinn var úr augsýn, heyrðist bar- ið uppundir koffortslokið, Varga opnaði og uppúr koffortinu spratt Claude Tenne. Hann var hinn sprækasti, klæddur sem verkamað- ur og yfirgaf hina þrjá orðalaust. Hann stillti sér í biðröðina, sem beið eftir að ferjan legði að, og gekk siðan hinn rólegasti um borð á milli tveggja varðmanna, sem stóðu að vanda við landgöngubrúna og horfðu rannsakandi í andlit hverjum farþega. Ekkert skeði. Þeqar ferjan lagði að brvggju f La Rochelle, faldi Tenne sig um borð. Hann beið unz skipveriar og farþegar voru farnir í land, en hætti sér ekki uop á hafnarbakkann fvrr en þar sást engin sála. Það gat nefnileaa huqsa-d að flótt! hans hefði þegar verið uppgötvaður. En allt var með kv'rrum kiörum — enn- þá. Tenne náði ( leigubíl og fór með honum til Nantes, fimmtán mílna veq. Þegar þangað kom, fór hann þegar á fyrirfram ákveðinn felustað, þar sem góðir vinir tóku við honum fegins hendi. Um þessar mundir moraði Frakkland í OAS- mönnum, og þeir sáu um sína. Síðan hefur heyrzt að óvenju óró- legt hafi verið á Ré daginn sem Varga og félagar hans voru látnir lausir. Hvað eftir annað kom til ill- inda og óvenjumargir fangar sýndu varðmönnunum þvermóðsku. Þa var ekki fyrr en við nafna- kallið klukkan tvö daginn eftir, laugardaginn fjórða nóvember, að hvarf Tennes uppgötvaðist. Hann hafði þá verið fjarverandi f næstum sólarhring. Varð nú mikið frafár meðal fangavarðanna, og fangelsis- stjórnin krafðist þess þegar ( stað að svokölluð Rex-áætlun kæmi þeg- ar til framkvæmda. Þeirri áætlun fylgir að allt lögreglulið landsins er kvatt út, vegahindranir settar upp, fjölmargar grunsamlegar persónur handteknar, húsrannsóknir fram- kvæmdar o. s. frv. Flótti Tennes kom illa niður á ýmsum. í París var leikari á leið til kvikmyndatöku, klæddur einkennis- búningi Utlendingahersveitarinnar, þegar lögreglan stöðvaði hann. Leikarinn varð æstur og honum vafðist tunga um tönn, þegar hann ætlaði að útskýra ástæður sínar. Að lokum tók hann á sprett. Lögreglu- mennirnir skutu á eftir honum og hittu hann að vísu ekki, en eitt skotanna lenti af slysni f einum þeirra eigin liðsmanna og drap hann. Skuggahverfi Parísar og annarra franskra stórborga urðu nú sem t hershöndum. Allt moraði f lögreglu- mönnum, og bílar þeirra þeyttu flauturnar ( götum og sundum. Þeir fengu líka sitthvað ( netið; níutíu og sjö þjófa, níu eftirlýsta afbrota- unglinga, t(u ræningja og fjörutíu og fimm aðra afbrotamenn. En Claude Tenne fundu þeir ekki. Hann var enn f felum ( Nantes. Á mánudaginn hætti hann á að hreyfa sig. Hann hafði þá fengið fölsk persónuskilríki, var klæddur eins og verkamaður og fór á reið- hjóli. í vasanum innan á slitnum jakkanum var veski fullt með pen- inga. Hægt og varlega ferðaðist hann yfir Frakkland. Hann hélt sig á fáfarnari vegum og forðaðist stærri borgir. Engu að síður var hann hvergi öruggur,- fyrir kom að hann sá mynd af sér ásamt lýsingu límda upp á vegg einhvers bónda- bæjarins. Hann keypti sér mat ( smáverzl- unum landsbyggðarinnar og svaf f heysátum. Takmark hans var Belgta. Oft kom hann auga á vegahindranir framundan og tók þá á sig krók 30. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.