Vikan


Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 4

Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 4
SÍBAN SlDflST umun«i 30. tbl. Tveir af mestu auðkýfingum í heimi, skipakóngarnir Onassis og Stavros Niarchos, keppa villt um metorðin og völdin. Ekki einungis á hafinu, heldur líka í samkvaemislífinu. Hjúskapur Jackie og Ara Onassis var mikið áfall fyrir Niarchos, en nú hefur hann náð sér á strik, og kemur nú fyrir fullum seglum, skart- andi Mariu prinsessu Gabriellu, dóttur Umberto tyrrverandi Ítalíukóngs, sem hefur verið í útlegð í Portúgal síðastliðin 25 ár. Hefur Maria heitið honum eiginorði, og nú spóka þau sig saman á þilförum listisnekkju Niarchos, „Creole“, þar sem hún klýfur blúar öldur Miðjarðar- hafsins. Vinir hjúanna segia að þetta muni verða eitt heilmikið og fullkomið hjónaband — bæði álíka villt! Maria Gabriella hefur löngum verið ein eftirsóttasta og vinsæl- asta piparjómfrú heimsins, og meðal konvmgborinna biðla hennar undanfarin ár hafa ver- ið Shahen af íran, Baldvin Belgíukóngur og Juan Carlos, krónprins Spánar. Hingað til hef- ur hún ekki látið neinn bilbug á sér finna, en nú hefur hún gefið upp öll sín hugðarefni: Nautaat, siglingar og kappakstur, til að kvænast manni sem hefur verið giftur fimm sinnum áður, og er rúmlega helmingi eldri en hún sjálf. Niarchos er sextugur, og Maria Gabriella 29 ára. Jackie Kennedy Onassis hefur nú fengið skæðan keppinaut sem drottning hinna sjö heimshafa. ☆ ..KRAKKARNIR KALLA MIG RARAILIN" Þessi strákpatti, sem leikur sér hér með skólafélögum sínum fyr- ir utan Gibbs School í Barnes í úthverfi Lurtdúna, er enginn annar en 7 ára gamall sonur Margrétar prinsessu og lávarðar- ins af Snowdon, og er hann að halda upp á að skólinn var bú- inn, og hann á leið heim til for- eldra sinna í Lundúnum. Sjálf- ur heitir hann Linley lávarður, en „krakkarnir kalla mig bara Lin“, segir hann. * 4 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.