Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 25
Það var Ásmundur Sveinsson, annar tveggja okkar miklu öldunga í
myndhögginu, sem átti hugmyndina að útisýningunni. Ásmundur sýnir
þó ekki á holtinu, enda hefur hann og hefur lengi haft stöðuga útisýn-
ingu í garði sínum við Sigtún. Hins vegar er Sigurjón Ólafsson með.
Hann stendur hér hjá mynd sinni á sýningunni, gífurlegum kopardrang,
sem í fljótu bragði minnir á tótemstólpa Indíána. Hann er hluti úr
skreytingu við stöðvarhús Búrfellsvirkjunarinnar.
Kristín Eyfells sýnir okkur hér eina af sínum þekktu ,,beinakerlingum‘‘. Þessi er úr asbeststeypu,
og hrjúfari en fvrri verk listakonunnar í svipuðu formi og vitnar um ótvíræða framför.
sterkari
Kolbrún Benediktsdóttir, sem er hér hjá verki sínu á sýningunni, er meðal þeirra yngstu sem sýna þar,
fædd 1942. Hún er nemandi Jóhanns Eyfells úr Myndlista- og Handíðaskólanum. Þessi skúlptúr hennar er
úr járni og plasti.
Skúlptúr úr vírneti og asbeststeypu, eftir Þorbjörgu
Pálsdóttur. Asbestið er eitt af mörgum nýjum efn-
um, sem komið hafa fram í byggingariðnaðinum
og orðið hafa skúlptúrnum mikil lyftistöng og
raunar yngt hann upp. í þessum nýstárlegu mynd-
um Þorbjargar er tóm framhliðin sett fram sem
andstæða hins kúpta baks.
*
lisipli
lllílllllIÉÉlsSÍÍt