Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 37
Ég er ennþá konungur
Framhald af bls. 7
Ilann hefur einkaráðgjafa
og hefur stöðugt samband við
landflótta Húlgara, hvar sein
þeir eru í heiminum, og ör-
yggisvörður er ætíð í fylgd
með honum. Það er sagt að
Simeon haldi sig mjög að öll-
um siðareglum. Ef hann er
ekki titlaður „yðar hátign“ í
innheimtubréfum, þá verður
kröfuhafi að bíða lengi el'tir
greiðslu.
Simeon var oft í Svíþjóð,
þegar prinsessurnar voru
heima og ógiftar. Hann er
skyldur Sibyllu prinsessu, og
það var einu sinni sagt að
hann væri að stíga í vænginn
við Desirée prinsessu. Desirée
giftist Niclas, og fyrir sjö ár-
um fann Simeon brúði sína,
spænska stúlku af aðalsætt-
um. Foreldrar hennar voru
bæði drepin í borgarastyrj-
öldinni, en fjölskyldan glat-
aði ekki peningum sínum og
eignum. Margarita fékk mjög
strangt uppeldi hjá skyld-
fólki sínu, og Simeon kom
sem bjargvættur. Brúðkaup
þeirra var haldið í Lausanne,
og þar var samankomið
kóngafólk Evrópu, bæði það
sem er enn við völd, og það
sem landflótta er.
Simeon og Margarita eru
mjög hamingjusöm, og lifa
kyrrlátu lífi. Þau eiga fjóra
syni, og allir eru kallaðir
prinsar: Kardan, sex ára,
Kyril, fjögra ára, Kubrat
þriggja og Konstantin eins
árs.
Þau hafa nóg af þjónustu-
fólki, en drengirnir hafa ekki
enn fengið að vita að þeir eru
af konungakyni. — Börn fá
oft undarlegar hugmyndir,
segir Simeon, og brosir.
Hvað kostar. . .
Framhald af bls. 17
stöku framleiðendum og leggur á
þá, áður en þeir eru sendir hingað.
Onnur bifreiðaumboð hafa aftur
þann háttinn á, að kaupa varahlut-
ina beint frá fyrstu hendi í sam-
vinnu við varahlutaumboðið hér og
hafa þá varahlutina á sama verði.
Bifreiðaeigendum væri oft hollt að
kynna sér, hvernig málin standa [
þessu efni varðandi þá hluti, sem
vantar f hvert sinn.
Látum við svo útrætt um saman-
burðinn f sjáIfu sér, og leyfum les-
andanum sjálfum að draga sínar
ályktanir. *
VerðiS brún - brennið ekki
NOTIÐ
COPPERTONE
COPPERTONE er langvinsaelasti og lang mest seldi sólaráburðurinn í Bandaríkjunum, enda sanna visinda-
legar rannsóknir, framkvæmdar af hlutlausum aðila, að COPPERTONE gerir húðina brúnni og fallegri á
skemmri tima en nokkur önnur sólarolía.
HEILDVERZLUNIN YMIR SÍMI 11193 - 14191
30. tbi. VIKAN 37