Vikan


Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 17

Vikan - 24.07.1969, Blaðsíða 17
BLÖNDUNGUR STARTARI DINAMÓR VARAHLUTAVERÐ ALLS VERÐ BÍLSINS HLUTFALL VARA- HLUTAVERÐS MÓTI BÍLVERÐI TEGUND 2.580,00 3.425,00 2.546,00 20.254,00 160.700,00 12,6% Trabant 1.742,00 2.435,00 3.295,00 20.652,00 211.700,00 9,75% Skoda 1000 MB 2.831,00 3.240,00 2.085,00 21.039,00 303.000,00 6,94% Hillman Minx 2.142,00 4.425,00 3.474,00 21.385,00 234.900,00 9,10% Volkswagen 1300 1.950,00 ** 2.635,00 ** 1.193,00 *** 23.457,00 400.000,00 5,86% Peugeuot 404 3.689,40 3.094,10 3.018,60 24.366,20 244.000,00 9,98% Vauxhall Viva 3.240,00 4.368,00 3.240,00 25.184,00 218.000,00 11,09% Moskvits 3.900,00 3.040,00 2.850,00 28.246,00 260.000,00 10,82% Cortina 2.833,00 4.007,00 4.119,00 28.379,00 400.000,00 7,09% Opel Record 3.500,00 4.274,00 3.671,00 30.600,00 333.000,00 9,18% SAAB (tvígengis) 5.300,00 6.100,00 4.500,00 34.655,00 — 10,41% SAAB V-4 3.693,00 3.868,00 3.412,00 34.727,00 488.000,00 7,12% BMW 1800 Ekkitil 4.800,00 **** 7.126,00 *** 39.651,00 330.000,00 12,01% Fíat 125 6.394,00 9.890,00 7.360,00 47.354,00 391.700,00 12,08% Volvo Amazon 6.394,00 9.890,00 7.360,00 58.111,00 438.600,00 13,25% Volvo 144 varahlutaverðið, hæstu prósentutöl- una og næst-dýrastur í innkaupi, er miklu stærri og voldugri bíll en til dæmis Trabant, sem kostar minnst og hefur lægst varahluta- verðið að krónutölu. Enda er vafa- samt, að þessir tveir bílar séu að jafnaði keyptir til sama aksturs. Og enginn skyldi fullyrða, að Volvo- eigandinn þurfi að kosta 58.111,00 krónum upp á sinn bíl á sama tíma og Trabanteigandinn þarf að kosta 20.254,00 krónum upp á sinn, svo haldið sé áfram að ræða um þessa tvo bíla. En þegar Trabanteigand- inn lendir í óhappi með sinn bíl, fær hann stuðara fyrir 730 krónur, en Volvoeigandinn verður að snara út 6072 krónur. Það er áberandi af þessum lista, hve dýrir varahlutir eru orðnir. Þó hefur álagning á þeim lækkað um rösk 30% á síðustu tveimur árum. Það er því full ástæða til að kynna sér endingu helztu slithluta og verð þeirra í endurnýjun, þegar keyptur er bíll. Meðan sú stefna ríkir ! mikl- um mæli, að bílaeigendur eigi að standa undir ótrúlega miklum hluta af tekjum ríkissjóðs, verðum við að reyna að láta bílana okkar endast sem bezt og taka tillit til varahluta- verðs og annarrar þjónustu. Og meðen við erum að tala um það, er vert að geta þess, að aðeins tvö umboðin, Bifreiðar & Landbúnaðar- vélar hf. (Moskvits) og Hekla hf. (Volkswagen), voru þess umkomin að svara til um verðin undir eins. Annars var fyrirgreiðsla flestra umboðanna mjög lipur og viðkunn- anleg, en eitt eða tvö fjarska leið- inleg viðureignar. Þótt verð þau, sem hér eru gefin upp, séu öll fengin frá umboðunum sjálfum, er full ástæða til að benda bifreiðaeigendum á, að ekki er allt- af hagstæðast að verzla við umboð- in. Ef sérstakt umboð er fyrir ákveðna hluti (svo sem hluti ! raf- kerfið, mæla bílsins, dempara og fleira), er oft hægt að fá varahlut- ina hjá þeim umboðum á lægra verði en hjá umboði bílsins. Þetta stafar samt ekki af mannvonzku þeirra hjá bifreiðaumboðunum (þótt dæmi séu til, að þau kaupi varahluti út úr búð hjá varahlutaumboðunum og hagnist á að selja þá aftur á sínu búðarverði), heldur hinu, að bifreiðaumboðin kaupa s!na vara- hluti frá framleiðandanum, sem aft- ur kaupir varahlutina frá hinum ein- Framhald á bls. 37. 30. tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.