Vikan - 24.07.1969, Síða 5
DIISTIN OG MIA
„Við erum búin að vera mjög
góðir vinir lengi,“ segja Mia
Farrow og Dustin „Graduate“
Hoffman, en þau luku nýlega
við að leika í nýrri kvikmynd,
„Jón og María“. — „Dustin hef-
ur hjálpað mér að efla sjálfs-
traust mitt,“ segir Mia, sem hef-
ur verið tíður gestur hjá sál-
fræðingum og öðrum hausamót-
urum, jafnframt því sem hún
fór til Indlands (til að hitta
Maharishi) eftir skilnaðinn við
Frank Sinatra. Nú hefur hún náð
sér eftir allt það stand, og Dustin
hefur komið henni í samband
við umheiminn. En til að fyrir-
byggja allan misskilning, þá
gekk Dustin nýlega í það heilaga
með æskuvinkonu sinni, fótó-
módelinu Önnu Hoffman; fæddri
eitthvað allt annað. ☆
HEITT I HAMSI
EIN ELDFLAUG NÆGIR Á ENGLAND
Suður-Evrópubúar og Ame-
ríku-búar eru frægir fyrir hama-
gang og illsku í sambandi við
knattspyrnuleiki, og er þess
skemmst að minnast að við lá að
stjórnmálasambandi milli Ame-
ríkurikjanna Honduras og E1
Salvador væri slitið, út af leik
sem lyktaði eitthvað öðruvísi en
báðir aðilar gátu sætt sig við.
Meðfylgjandi mynd er tekin í
Róm eftir knattspyrnuleik milli
tveggja borgarliða, „Lazio“ og
„Bari“, en þá varð einn ungur
maður svo æstur að hann hátt-
aði sig að ofan og ætlaði svo að
rjúka inn á völlinn. Fjórir lög-
regluþjónar áttu fullt í fangi með
kauða, unz einum datt það snj all-
ræði í hug að bíta hraustlega í
hönd hans.
☆
Bandarískir sérfræðingar hafa
reiknað út að aðeins ein af nýj-
ustu rússnesku langfleygu eld-
flaugunum gæti gereytt Stóra-
Bretlandi.
Gerð þessi er kölluð SS9, og
eiga Sovétmenn hana í hundr-
aðatali, að því er þeir sjálfir
segja. Hægt er að ferma hana
með allt að tíu vetnissprengjum.
Eldflaugin er gerð af slíkri kúnst
að hátt uppi í lofti losar hún sig
við sprengjurnar, sem eru sjálf-
stýrðar og fljúga á fyrirfram
ákveðin mörk, sem geta verið
með millibili svo skiptir hundr-
uðum kílómetra. SS9 getur bor-
ið sprengjumagn sem samsvarar
tuttugu og fimm milljónum
punda af trotýli.
☆
Táraoas á stúdentana
f vor voru um það bil 500 stúd-
etnar samankomnir á Sproul
Plaza í Berkeley í Kaliforníu.
Nokkrir lágu og slöppuðu af í
grasinu og aðrir körpuðu við
þjóðvarðliðana sem umkringdu
staðinn. Ólæti voru engin.
Allt í einu birtist þyrla sem
úðaði CS-hernaðargasi, sem ekki
einungis framkallar tár í augun,
heldur einnig óþægindi í hálsi og
öndunargöngum með meiru.
Ungmennin reyndu að flýja, en
voru stöðvuð af gasgrímubúnum
hermönnum lýðræðisins. Gasið
breiddist út — nokkra kílómetra
í burtu var barnaleikvöllur, og
er gasið komst þangað ríkti al-
gjört öngþveiti þar. Þá barst
gasið einnig inn í fyrirlestrarsali
skólans og sjúkrahús.
Berkeley var á að líta eins og
hertekinn staður, herjeppar og
önnur hergögn á hverju
götuhorni og þyrlur sveimuðu
yfir húsþökunum. 2260 hermenn
voru fengnir til að aðstoða lög-
regluna, en undanfarna 10 daga
höfðu miklar óeirðir staðið yfir
í borginni, þar sem 150 manns
slösuðust og nærri bví 900 voru
handteknir. Einn unglingur dó
af skotsárum í sæluríki Ronalds
Reagan, kvikmyndaleikarans,
sem gerðist pólitíkus og er nú
ríkisstjóri Kaliforníu. ☆
30. tbi. VIICAN 5