Vikan - 24.07.1969, Page 9
UPPBURÐARLAUS
TÓNUSTARÁHUGI
Hæ, Póstur!
Getur þú frætt mig á,
hvort það er einhver gítar-
kennari hér í bæ? Ég hef
verið að reyna að pæla í
því að læra á gítar í þrjú
ár, en það hefur ekkert
gengið, sökum þess að ég
get ekki hugsað og því síð-
ur pælt í einhverju.
Keflavíkurmær
Heldur þykir mér furðu-
legt, að í sjálfri höfuðborg
bítlatónlistarinnar á ís-
landi sé enginn gítarkenn-
ari. En ef þú ert svona illa
gefin eins og þú vilt vera
láta, þá get ég varla hjálp-
að þér. Hitt er annað mál,
að daglega má lesa í dag-
blöðunum auglýsingar frá
hinum og þessum tónlist-
arkennurum.
NEMENDASKIPTI
Kæri Póstur!
Mig langar mikið til að
biðja þig um að leysa úr
þessum spurningum fyrir
mig:
Hvað þarf maður að
vera gamall til þess að
komast sem skiptinemandi
á vegum þjóðkirkjunnar?
Er einhverrar sérstakrar
menntunar krafizt? Þarf
maður að kosta sig þetta
algiörlega sjálfur?
Eg vona, að þú getir
hjálpað mér með þetta, en
ég ætlaði ekki að gleyma
að þakka VIKUNNI fyrir
gott lesefni og óska ykkur
alls hins bezta á komandi
árum.
Með fyrirfram þökk.
H.S.G., Eskifirði.
Til að geta orðið skipti-
nemandi á vegum Þjóð-
kirkjunnar þarf umsækj-
andi að vera á aldrinum
1G—lf) ára, með gagn-
fræðapróf eða hliðstæða
menntun, og hafa með-
mæli skólastjóra, vinnu-
veitanda og sóknarprests.
Einnig er krafizt félagslegs
þroska, aðlögunarhæfileika
og vilja til að horfast í
augu við erfiðleika. Sá
liópur sem er á leið út nú,
borgar um 40 þúsund kr.
fyrir árið, allt innifalið.
f 29. tbl. VIKUNNAR var
grein um reynslu eins
skiptinemanda Þjóðkirkj-
VANRÆKTUR AÐDAANDI
Kæri Póstur!
Ég vil byrja eins og
flestir; þakka fyrir allt
gamalt og gott. Ég les allt-
af Póstinn og fleira, sem er
í VIKUNNI. Ég hef skrif-
að þér einu sinni áður,
en það var aldrei birt, svo
að ég vona, að þetta fari
ekki sömu leið.
Ég er 15 ára og hrifin af
strák, sem er tveimur ár-
um eldri en ég. Hann á
heima skammt hér frá; um
það bil hálftíma keyrsla
héðan. Hann hefur tvisv-
ar verið á balli, sem ég hef
verið á, en ekki litið við
mér. Kæri Póstur, hvað á
ég að gera til að láta hann
taka eftir mér? Ég er frek-
ar feimin við stráka, ef ég
er hrifin af þeim. Ég vona,
að þú birtir þetta bréf.
Með fyrirfram þakklæti.
Ein 15 ára í Neskaup-
stað.
P.S. Hvernig er skriftin?
Áttu ekki einhverja vin-
konu, sem þekkir þennan
strák? Ef svo er, þá skaltu
reyna að fá hana til að
kynna þig fyrir honum, og
svo verður þú bara að vera
nógu ákveðin við að ota
þínum tota.
Skriftin er heldur slæ-
leg, en þó ekki ólæsileg.
SVAR TIL EINNAR 16 ARA I
VANDA
Það sem ég myndi gera
í þínum sporum er að
reyna að fá foreldra mína
til að ræða þetta vandamál
við mig, og yrðuð þið þá
öll að taka fullt tillit til
hvers annars. En ef til vill
er það ekki hægt, og þá
verðifr þú að leita ráða
annars staðar, t. d. hiá
prestinum þínum. En ef til
viU er þessi 19 ára systir
þín skýringin á bessu á
nokkurn hátt, og þá verð-
ur þú að fullvissa foreldra
bína um, að ekki fari eins
fvrir bér. Vertu bara nógu
ákveðin, en revndu líka að
setja þig í aðstöðu foreldra
þinna.
Láttu þennan dreng-
staula alveg eiga sig.
Svona piltar eru ekki einu
sinni þess virði að maður
tali við þá.
Strákurinn, sem ég er með,
gaf mér minnsta kveikjara sem
ég hef séð — svo Ktinn að ég faa
varla nógu litla steina ( hann.
Annar strákur gaf mér kveikjara,
sem hann keypti ( siglingu
— honum er fleygt þegar
hann er tómur. Ekki man ég,
hvorn ég lét róa fyrr,
kveikjarann eSa strákinn.
Ég er alltaf aS kaupa
eldspýtur, en þær misfarast
meS ýmsum hætti.
En eld þarf ég aS hafa.
Hver vill
gefa mér
RONSON?
Mig langar svo í einhvern af þessum
Mllaily gas kveikjari Comet gas kveikjari
Adonis gas kveikjari Empress gas kveikjari
Til gefenda RONSON kveikjara: Áfyllingin tekur
5 sekúndur, og endist svo mánuðum skiftir. Og
kveikjarinn. — Hann getur enzt að eilífu.
RQNSON
Einkaumboð:
I. Guðmundsson i Co. hl.
3o. tbi. VIKAN 9