Vikan - 24.07.1969, Síða 24
„Höggmyndalist þarf og á að vera monúmental. Hún á að vera útilist, og það er það sem við erum að reyna að fá fram með þessum
útisýningum á Skólavörðuholti." Þannig lét llagnar Kjartansson myndhöggvari nýlega um rnælt í viðtali i Vikunni. Við birtum hér
nokkrar myndir af útisýningunni sem nú stendur yfir og er sú þriðja í röðinni. Munu flestir ljúka upp einum munni um að sýningar
þessar séu meðal merkustu viðburða í listalífi þessa lands hin síðari ár, og tvímælalaust hafa þær orðið íslenzku myndhöggi mikil lyfti-
stöng. Áður var skúlptúrinn venjulega sýndur ásamt málverkum og varð þá hálfgerð hornreka, enda verulegir meinbugir á að sýna þetta
hvorttveggja saman í sal, svo vel fari. — í þetta sinn eiga nítján m.yndhöggvarar, eldri sem yngri, verk á holtinu, sem sum að minnsta
kosti eru meðal þess bezta, sem frá þeim hefur sézt. — Sýningin verður á holtinu til tuttugasta júlí, en þá verður hún flutt austur í
Neskaupstað, þar sem hún verður opnuð um verzlunarmannahelgina og stendur út ágúst. Hér er um að ræða merkilega nýbreytni, og
vonandi verður áframhald á því að byggðir úti á landi fái að njóta g.:ðs af því helzta, sem boðið er upp á í listalífi höfuðborgarinnar
hverju sinni.
LJÓSMYNDIR: SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
Prýðisgott veður var daginn sem sýningin var opnuð og aðsókn góð,
sem og jafnan síðan.
Jón Benediktsson á tvær myndir á sýningunni, og þessi, sem ber heitið
Rauð stelpa, er úr jámi og plasti. Stíllinn minnir ósjálfrátt á Paul Klee.
Hér virðir önnur stelpa þá rauðu fyrir sér.
24 VIKAN 30- tbl-