Vikan - 24.07.1969, Side 28
ANDRÉS INDRIÐASON
SIÖFF
Alltaf er kærkomið að geta
birt myndir af hljómsveitum úti
á landsbyggðinni. Þessir ungu
menn skipa hljómsveitina Stöff
á Sauðárkróki. Skagfirðingar
hafa löngum þótt söngelskir
menn og er ekki að efa, að þeir
og aðrir munu skemmta sér hið
bezta, þar sem Stöff skemmtir,
því að kunnugir segja, að hér sé
lífleg og skemmtileg hljómsveit
á ferðum. Þeir félagar fóru fyrst
á kreik s.l. vor og munu í sumar
leika fyrir dansi nyrðra og víðar.
Þeir heita frá vistri talið: Hörður
Ólafsson (bassi), Valgeir Kára-
son (gítar), Sveinn Ingason
(gítar), Guðni Friðriksson
(orgel) og Jóhann Friðriksson
(trommur).
MANFRED
STOFNAR NÝJA
HLJÚMSVEIT
Um svipjað leyti og hin vin-
sæla hljómsveit Manfred Mann
sendi frá sér lagið „Ragamuffin
Man“, var tilkynnt, að hljóm-
sveitin væri hætt störfum. Þessi
tíðindi komu þeim, sem þekktu
til hljómsveitarinnar, ekki á
óvart. Hlj ómsveitin, sem var
skipuð úrvals hljóðfæraleikurum,
hafði ekki komið fram opinber-
lega í háa herrans tíð, og þá
sjaldan þeir félagarnir hittust,
var það vegna plötuupptöku.
Plötur þær, sem hljómsveitin
hefur sent frá sér undanfarin ár,
hafa átt miklum vinsældum að
fagna — allt frá því fyrsta
tveggja laga plata hljómsveitar-
innar með laginu „5-4-3-2-l“
birtist á vinsældalistanum.
Manfred segir sjálfur, að hann
hafi ekki átt von á, að plötur
hljómsveitarinnar fengju jafn
góðar viðtökur, og raun varð á.
— Við höfum engan áhuga á
pop-músik, og við bjuggumst við
að allir mundu gleyma okkur
eftir fyrstu plötuna. En svo varð
þó ekki, — þetta rúllaði ein-
28 VIKAN 30-tbI-
hvern veginn áfram, og við lék-
um inn á hverja plötuna eftir
aðra. Okkur til furðu seldust
plöturnar í stórum stíl. Upphaf-
lega vorum við jazz og „rhythm
og blues“-hljómsveit en músikin
þróaðist smátt og smátt út í
poppið. Það hafði töluverð áhrif
á okkur, að við heyrðum og spil-
uðum mikið af poppi. Nú orðið
er ég að mestu leyti orðinn dús
við poppið.
— Við vorum orðnir hálfgerð-
ir öldungar á vinsældalistanum.
Ég er viss um, að fólk var búið
að fá leiða á okkur. A.m.k. var ég
orðinn leiður á að standa í þessu.
Þótt Manfred hafi nú sagt
Framhald á bls. 45.