Vikan - 24.07.1969, Qupperneq 46
HANN STNAUKIKNFFNHTI
Það var í Alsír, [ lok stríðsins þar í landi. Það
var að kvöldi til og stormur og rigning. Rétt
fyrir klukkan tíu var barið að dyrum heima hjá
Roger Gavourny, lögreglufulltrúa, á Dr. Troll-
ardsgötu númer fjögur ( Alsírborg. Gavourny fór
fram og opnaði. Einhver rak hnéð f kvið honum
og greip um háls hans. Á næsta andartaki smó
langur rýtingur gegnum hjarta Gavournys, og
hann hné dauður á þröskuldinn.
í mörg ár hafði mjög verið um það deilt og
barizt hvort Frakkar ættu að sleppa Alsír eður
ei. Herir Frakka í landinu voru undir stjórn dug-
legra og ofstækisfullra hershöfðingja (þeirra
helztir voru Raoul Salan og Edmond Jouhaud),
sem urðu eins og kunnugt er hatursfullir and-
stæðingar de Gaulles er hann ákvað að gefa
Alsír upp á bátinn. OAS, hin ógnvænlega leyni-
hreyfing hershöfðingjanna og bandamanna
þeirra, fór að taka til höndunum. Hún stóð fyrir
ótal ofbeldisverkum — sprengjutilræðum, morð-
um, mannránum og alls konar ógnaraðgerðum.
Ein þessara aðgerða var morðið á Roger Ga-
vourny, lögreglufulltrúa. De Gaulle hafði per-
sónulega fengið Gavourny í hendur það hlut-
verk að binda endi á starfsemi OAS í Alsír,
svo að fulltrúi þessi var nú í öðru sæti á dauða-
lista samtakanna — efsta sætið að sjálfsögðu frá-
tekið fyrir de Gaulle sjálfan. Á bak við morðið
stóðu þrír menn, sem ofurstarnir Yves Godard
og Roger Degueldre höfðu kjörið til verksins.
Tveir þeirra, Albert Dovecar og Claude Pigets,
höfðu þegar margan mann drepið af pólitískum
orsökum og höfðu um langt skeið verið eltir af
lögreglunni yfir gervallt Alsír. Sá þriðji hét
Claude Tenne, þá þrjátíu og eins árs að aldri.
Hann var liðþjálfi í hersveit Degueldres ofursta
og hafði helgað líf sitt málstað OAS.
Eftir morðið á Gavourny var leitin að mönn-
unum þremur mögnuð um allan helming, og
allir náðust þeir, Tenne þegar hann heimsótti
konu sína og börn í Marseille. Þeir voru leiddir
fyrir herdómstólinn í París vorið 1962. Albert
Dovecar og Claude Pigets voru dæmdir til dauða
og lifiátnir, Tenne slapp hins vegar við dóm upp
á lífstíðarfangelsi, þótt svo að hann lýsti vígi
Gavournys á hendur sér.
Tenne leyndi engu. Hann skýrði frá því að
einn af foringjum OAS, Susini, hefði skipað
SAGT VAR AÐ ENGINN GÆTI
STROKIÐ ÚR FANGELSINU Á
KLETTAEYNNI RÉ í ATLANTS-
HAFI, AÐ MINNSTA KOSTI HAFÐI
ENGUM TEKIZT ÞAÐ. EN OAS-
MAÐURINN CLAUDE TENNE
VAR ANNARRAR SKOÐUNAR.
46 VIKAN 30- tw-