Vikan


Vikan - 07.08.1969, Blaðsíða 30

Vikan - 07.08.1969, Blaðsíða 30
NYIT FRA RAFHA 56 LÍTRA OFN MEÐ UÓSI, yfir- og undirhita stýrt með hita- stilli. Sérstakt glóðarsteikar- element (grill). Klukka með Timer. STJÖRNUSPÁ * % * *- Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú þarft að sinna ýmsu í vikunni, sem þú hefur trassað lengi. Þér gefst tækifæri til að launa vini þínum greiða. Vikan verður tíðindalítil. Á mánu- dag færðu skilaboð er þú grynnir ekkert í. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Láttu ekki áhyggjur þínar í ljósi; þú færð bráðum góðar fréttir. Dragðu það ekki lengur að gera grein fyrir afkomu þinni; annars gætirðu orðið fyrir von- brigðum. Þú hefur spennandi tómstundagaman. m Nautsmerkið (21. april — 21. ma(): Þú hvílist vel í vikunni, en þó verða nokkur um- svif hjá þér. Þú hittir kunningjana lítið. Hafðu auga á gesti, sem þú færð á mánudag. Vertu ekki of málgefinn. Laugardagur samningadagur. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Gerðu ekki uppskátt um raunverulegar tilfinning- ar þínar, ef það hefur truflandi áhrif á þá, sem þér eru kærastir. Hættu þér ekki út í neina tví- sýnu. Kvöldunum er bezt varið i rólegheitum heima. iirfi JIJL Tvíburamerkið (22. maí — 21. júnO: Þú munt tefla á tvær hættur í sambandi við mál, sem þér er afar mikils virði; þú verður heppinn í því sambandi, en lausnin ekki alveg eins og til var ætlazt. Mikill gestagangur. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Kona, sem þú þekkir lítilsháttar, kemur talsvert við sögu þína í þessari viku. Líklegt er að þú kunnir ekki að meta afskiptasemi hennar í fyrstu, en þú áttar þig fljótlega. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlO: Þú verður áþreifanlega var við, að ákveðin mann- . eskja vill kynnast þér nánar. Nágrannar þínir hafa truflandi áhrif á þig. Síðari hluta vikunnar verð- urðu sérlega vel upplagður. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Margar freistingar bíða þín og þú stenzt ekki þær allar. Þriðjudagurinn er dálítið varasamur fyrir þig, einkiun ef peningar eru annars vegar. Þú verður yfirleitt í miklu fjölmenni. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vikan verður tilbreytingarsnauð, en þú gætir gert ýmislegt til að hressa upp á hversdagsleikann. Þú skalt taka meira tillit til þinna nánustu. Þú verður beðinn að líta eftir verðmætum eignum. Ágjjú Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Fjármálaáætlun þín stangast illa á við skoðanir þeirra, sem þurfa við hana að búa með þér. Föstu- dagurinn er dagur hugmyndaflugsins. Deilumál þín leysast á viðunandi máta. Þér berst gjöf. V Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú átt skemmtilega daga í vændum, upp úr helg- inni. Mánudagur verður dagur, sem þú munt lengi minnast; hann skiptir framtíðina miklu. Gerðu ekki of lítið úr hæfileikum þínum. Heillalitur er blár. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú lendir í erfiðleikum á ferðalagi; í aðra röndina hefurðu þó gagn af þeim. Þú færð gest sem veldur þér nokkrum áhyggjum. Forðastu fólk, sem þú get- ur ekki reitt þig á.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.