Vikan


Vikan - 07.08.1969, Blaðsíða 41

Vikan - 07.08.1969, Blaðsíða 41
 (UIíFWM AGUST HE ER KOMIÐ n r £G VAR ÁKÆRÐUR ÁSAMT DARWIN / MESTA REIM- MT LEIKASETUR ^ ENGLANDS Wi Grein um fyrirbærin í Borely og skriftina á veggnum þar. y r ■n ÞEIR SEM HAFA PENINGA KAUPA Sagt frá fslenzkum kaupmönnum um aldamótin. L y r •\ r SIHANOUK: PRINSINN Á JAFNVÆGIS- LÍNUNNI ÚRVALSBÓKIN: AÐ GEFAST ALDREI UPP Frásögn krabbameinssjúklings. VERÐUM AÐ FINNA UPP GERVI- HJARTA Dökkhærð, í grárri 'kápu og með sólgleraugu, ábyggilega keypt í fermetratali, virtist hún vera að koma úr vinnu og aðeins að teygja úr sér. „Fyrirgefið þér, fröken, en má ég aðeins trufla yður?" „Jú, alveg sjálfsagt." „Þannig er mál með vexti, að mig langar svo óskaplega í fimm- bíó, en ég vil ómögulega Fara einn. Væruð þér ekki fáanlegar til að koma með mér?" Hún horfði lengi á mig, en svo sagði hún og sneri upp á sig: „Þú ert nú eitthvað skrýtinn!" Með það fór hún, en konurnar í happdrættisbílnum hlógu eins og þær væru að selja happdrættismiða fyrir hláturskaIlafélagið. Nú var mér farið að líða eins og Rikharði Kimbli, sem aldrei finnur það sem hann leitar að. Enda er það ekki nema furða, því að um svipað leyti og Kimbillinn var á haelunum á þeim einhenta, var sá þrjótur hér að brillera og kvaðst vera heims- frægur, einhentur golfleikari! En einhvern endi varð þetta æv- intýri að fá. Ég kallaði á Ijósmynd- arann, og okkur kom saman um að beita ofurlitlum brögðum. Við feng- um eina yngismey til að taka þátt í leiknum og sögðum svo ritstjóran- um að hún hefði látið „tilleiðast". Það varð ung og falleg tánings- stúlka fyrir valinu, en hún hafði að því er mér virtist, gengið framhjá nokkrum sinnum í hálfgerðu ráða- leysi. Ég stöðvaði hana, dró hana afsíðis og útskýrði fyrir henni, hvað um væri að vera. Hún var strax til í að vera með, enda kát og fjör- ug stúlka, sem ég hefði ekkert haft á móti að fara með í bíó — í raun og veru. ☆ Spáð í spil Framhald af bls. 16 Þeir sem spáð er fyrir fara oft fram á það við spámanninn að fá að óska sér einhvers, og spyrja þá gjarnan um leið hvort hægt sé að sjá hvort óskin rætist eða ekki. Þá eru þeir, sem spáð er fyrir, beðnir að stokka allan bunkann og óska sér, án þess að segja spá- manninum frá óskinni, þar sem það er talið betra fyrir þá að halda því leyndu. Eftir að hafa stokkað spilin réttir X spámanninum þau aftur og hann leggur niður sjö sinnum fimm spil, þannig að í notkun eru 35 af 52 spilum. Þau spil sem eftir eru, eru sett til hliðar þar sem þau eru ekki notuð í þeirri lesningu. Hver fimm spil eru svo lögð á borðið, réttan upp, og eftir því sem þegar hefur komið fram, er hægt að sjá hvað hver spilaröð hefur að segja. Eftir að þetta hefur verið gert, er fjöldi hjartanna í hinum 35 spilum talinn, og er þá tekið með í reikninginn að hjörtun eru „lukkuspil". Meðaltal sem X fær út úr því, þegar hann óskar sér, er 8 hjörtu, og þá er alveg ör- uggt, að X þarf ekki að hafa neinar áhyggjur. Ef X hefur fengið öll 13 hjört- un, sem er fremur sjaldgæft, mun hann verða einstaklega heppinn og hamingjusamur. En ef aðeins 5 eða færri hjörtu koma í ljós, má hann búast við alls kyns vandræðum. Bezt er að hjartanían sé með- al þessara 35 spila, hún er óska- spilið. Síðan eru tíurnar taldar, en þær eru, eins og áður er get- ið, spil öryggis, viðskipta og orku. Þau eru aðskilin ásamt hjartaníunni, ef hún er á annað borð með. Og ef tígulnían er líka með, þýðir það tvöfalda ósk. Hafi X fengið allar tíurnar ásamt tígul- og hjartaníunum, er það ekki einungis öruggt að óskin mun rætast, heldur einnig að allt mun ganga í haginn. En það kemur örsjaldan fyrir. Ef X hefur aftur á móti feng- ið óskaspilið og aðeins eina eða tvær tíur, verður örlítil bið á að óskin rætist, og hafi óskaspilið aðeins komið eitt sér, tekur langan tíma fyrir X að fá ósk sína uppfyllta, og ekki fyrr en eftir dúk og disk. Stöku sinnum kemur fyrir að óskaspilið kemur ekki upp, en ein eða fleiri tíur koma í stað- inn; það táknar að óskin rætist ekki, en vegna tíanna verður allt í lagi. Og nokkur lokaorð: Spilaspá- mennska er aðeins aðferð, sem notuð er með nokkurs konar hughrifum. Fyrir „amatörinn“ er þetta mjög gaman, en ætti ekki að vera tekið mjög alvarlega, sérstaklega ef X er alókunnugur. 32. tbi. vikan 41

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.