Vikan


Vikan - 07.08.1969, Blaðsíða 3

Vikan - 07.08.1969, Blaðsíða 3
'Á'* Iv — Þeir koma ekki einu sinni með horaðan Breta! ■— Flýttu þér út, hann pabbi þinn hefur einu sinni enn far- ið í skyrtuna utan yfir axla- böndin. . & .<., — Það er naumast að Rauða Blóm er fín, síðan hún kom frá París. Bls. 4 Bls. 6 Bls. 8 Bls. 12 Bls. 14 Bls. 16 Bls. 18 BIs. 22 Bls. 24 Bls. 28 Bls. 46 Bls. 48 IÞISSARIVIKU SÍÐAN SÍÐAST ....................... PÓSTURINN .......................... ERTU MEÐ í BÍÓ?..................... HVER VAR ÞESSI ÓÞOKKI?.............. MIG DREYMDI ........................ SPÁÐ í SPIL ........................ DREPLEIÐINLEGUR OG STÓRVINSÆLL ..... EFTIR EYRANU ....................... ÞAÐ ER ÓSKAPLEGA SKEMMTILEGT AÐ GERA MARK ............................... SAGA FORSYTEÆTTARINNAR ............. 'É'G GET EKKI MEIRA................. ANGELIQUE í VESTURHEIMI ............ VfSUR VIKUNNAR: Nú rekur hver ráðstefnan aðra með ræðum og hátíðafundum þar tala menn yfirleitt tungum tveim — og fleiri á stundum. Þar sitja menn sáttir að kalla en sumum er léttast í geði er nóttin niðar af glaumi norrænnar veizlugleði. En þótt á þingum og mótum af þekking sé málum hagað um árangur þeirra allra af einskærri hógværð er þagað. FORSÍÐAN: Skömmu áður en Hermann Gunnarsson fór utan til að freista gæfunnar sem atvinnumaður, átti Vikan ítarlegt viðtal við hann, sem birtist á bls. 24, 25, 26 og 27 í þessu blaði. í tilefni af því hefur Baltasar teiknað forsíðu af þessum vinsæla knattspyrnumanni og hefur kosið að sýna hann í hita leiksins. VIKAN — UTGEFANDI: HILMIR HF. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Grön- dal. Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Halldóra Halldórsdóttir. Dreifing: Óskar Karlsson. lýsingastjóri: Jensína Karlsdóttir. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35320—35323. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 50.00. Áskriftarverð er 475 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 26 tölublöð misserislega, eða 170 kr. fyrir 4 tölublöð mánaðarlega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: Nóvember, febrúar, maí og ágúst, eða mánaðarlega. I NffSTU VIKU „Ég kenni í Álftamýrarskól- anum, 7, 8 og 9 ára börnum og líkar vel. Ég held, að það eigi betur við mig að kenna ungum börnum, en til dæmis unglingum á gangfræðastigi. Það er áreiðanlega miklu erf- iðara. 'Ég hef gaman af litlum börnum. Þau eru svo opin og hreinskilin. Ég ætti kannski ekki að segja frá þvi, en sum þeirra byrja alltaf á morgn- ana með því að segja mér frá því, sem gerðist heima hjá þeim kvöldið áður. Það er oft stórskemmtilegt.“ Þetta er ofurlítið brot úr viðtali við Sigríði Rögnu Sig- urðardóttur, sjónvarpsþul og kennara; stúlkuna, sem bros- ir svo blítt í stofunni hjá okkur á kvöldin. Vikan heim- sótti hana og mann hennar, Hákon Ólafsson, verkfræðing, og við segjum frá heimsókn- inni í máli og myndum í næsta blaði. í nýrri verzlun Heimilis- iðnaðarfélags fslands við Hafnarstræti er loftið meng- að ferskum viðarilmi og skrafi á mörgum þjóðtung- um, því að meðal viðskipta- vina eru margir erlendir ferðamenn, sem lita hér inn í minjagripaleit. Hér er ofið og spunnið tvo tíma dag hvern. Vikan brá sér inn í þessa verzlun á döeunum og ræddi við Gerði Hjörleifs- dóttur um íslenzkan heimilis- iðn að. Ótalmargt fleira efni verð- ur í næsta blaði. svo sem nalladómur um Biörn Pálsson ó T önaumvri. nvr areina- flrikkur \im ástir frumstæðra bíóða, álit fjögurra kvenna á klæðnaði karlmanna, og skemmtileg smásaga eftir Somerset Maugham.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.