Vikan


Vikan - 27.11.1969, Qupperneq 5

Vikan - 27.11.1969, Qupperneq 5
DÝRT GAMAN AÐ GIFTA SIG! Síðustu fréttir frá Nairobi: Nú eru það eingöngu synir ríkra for- eldra, sem geta borgað brúðir sín- ar út í hönd; aðrir verða að leggia á sig margra ára afborganir. Ennþá verða biðlar víða í Afríku að greiða heilmikið (mismunandi þó) af kálfum, sauðum, geitum og búsáhöldum, áður en þeir geta kvænst sinni útvöldu. Verð brúð- arinnar er ákveðið af foreldrum hennar, og h já því verður ekki komizt. í Kenya er meðalverðið í kringum 50 þúsund krónur, en venjuleg árslaun eru þar tæplega meira en rúmar átta þúsundir. En þar sem æ fleiri stúlkur vilja mennt- ast eitthvað, hækkar brúðarverðið stöðugt; foreldrarnir verða að fá eitthvað upp í námskostnað dætr- anna, og þá helzt með rentum. — Þetta eyðileggur hjónasæluna, segir einn þeirra, sem hefur orðið að taka á sig þungar byrðar vegna mikilla afborgana af brúði sinni árlega. Þessvegna hefur hann beitt sér fyrir því að þessar kvaðir í hjúskaparmálum verði afnumdar. Ríkisnefnd hefur verið sett til að fjalla um þessi mál. En það er víst lítil von til þess að þessi sið- ur verði afnuminn. Þótt nefndin væri mótfallin þessari gömlu venju, taldi hún þó ekki tímabært að af- nema hana með öllu. Annað hitamál er það sem þessi nefnd vill ekki brenna sig á, og það er að afnema fjölkvæni, sem ennþá tíðkast víða í Kenya. Framá- menn Múhameðstrúarmanna neita því eindregið að stjórnin sé að skipta sér af hjúskaparvenjum þeirra. Þótt fjölkvæni sé raunveru- lega bannað, þá er það ennþá mjög algengt í Kenya, og stuðningsmenn fjölkvænis halda því fram að fjöl- kvænishjónabönd séu yfirleitt miklu hamingjusamari en hin ☆ Þannig læra feðurnir betur að þekkja börnin sín Flower og Fifth Avenue sjúkra- húsin í New York hafa nú í eitt ár gert tilraunir með að leyfa feðr- um að taka þátt í umönnun barna sinna, frá því þau fá fyrstu nær- inguna, áður en þau eru lögð á brjóst. Frá því barnið gefur frá sér fyrsta hljóðið, fá feðurnir að fylgjast með þörfum þessa nýja fjöl- skyldumeðlims. Og það sem meira er, þeir fá að gefa því fyrstu máltíðina, syk- urvatn. Faðirinn fær allar upplýsing- ar á sjúkrahúsinu um meðferð þess- arar ósjálfbjarga veru, sem reyndar er ekki eins vandmeðfarin og marg- ur faðirinn heldur, hann venst því strax frá upphafi að sinna þörfum barnsins, jafnt og móðirin. Faðir- inn verður að fara eftir sjúkrahúss venjum, skrúbba hendur sínar eins og læknirinn, fara í dauðhreinsað- # yísur vikunnar Mörg er hér ennþá saga sögð um söguleg véla- og aflabrögð, og ýmsir kvarta um eigin hag, amstur og langan vinnudag. Lagaflækjum við flest er beitt, þótt fjöldinn botni víst ekki neitt í fagnaðarboðskap bæjarþings, né bókmenntagildi Lögbirtings. Þrátt fyrir auð og ytri glans, sem einkennir byggðir þessa lands, eykur þó stöðugt angur manns, óttinn við hamar fógetans. V________________________________________________/ an slopp og þar fram eftir götun- um. Ennþá eru mörg sjúkrahús og fæð- ingadeildir, sem ekki leyfa feðr- unum einu sinni að vera viðstaddir fæðinguna, enda margir feður sem hreinlega geta ekki hugsað sér það. Sumir hafa tæplega tíma til að sinna heimsóknartímum. Nú mætti kannski spyrja hvað unnið sé við þetta, það sé og verði hlutverk móðurinnar að hugsa um hvítvoðunginn,- þá er því til að svara að það getur verið gott að faðirinn hjálpi til, sé ekki eins og hræddur fugl ef hann þarf að sinna barninu, skipta um bleyju, eða eitthvað því líkt, þegar þörf kref- ur.. . . ☆ 48. tbl. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.