Vikan


Vikan - 27.11.1969, Síða 9

Vikan - 27.11.1969, Síða 9
Jean Paul Getty ætlaði í fyrstu að leggja stund á sagn- fræði, eða stjórnfræði, — en svo varð hann milljónari. Þessi óhemju auðugi maður, er einn liinn auðugasti í heim- inum; — undirstaða auðæfa lians er „brúna gullið“, olí- an .... Faðir Gettys var lögfræð- ingur í Minneapolis, og hafði líka auðgazt töluvert, aðal- lega af olíunámum sínum. Jean Paul stundaði nám í há- skólunum í Los Angeles og Berkeley, og síðar í Oxford í Englandi. Þegar hann varð tuttugu og tveggja ára, árið 1914, lét faðir hans hann hafa 100 dollara á mánuði, til að spekúlera með. En það voru skilyrði bundin við þessa pen- ingagjöf: — Sonur sæll, sagði faðir hans, — af ágóðanum fæ ég sjötíu af hundraði, þú sjálfur þrjátíu. Gamli maður- inn tapaði ekki á þessu, því að eftir árið var Jean Paul búinn að græða sína fyrstu milljón. Sumpart var þetta vegna þess að Getty nafnið var þekkt, sumpart vegna þess að ungi maðurinn var sniðugur fjársýslumaður. Þeg- ar hann var þrjátíu og eins árs reyndi Getty junior fyrst fyr- ir sér á hjúskaparsviðinu. En liann varð ekki hamingjusam- ur í sambúðinni við Jeanette Dumont: 18 mánuðum eftir brúðkaupið fæddi hún honum son, svo skildu þau. Onnur kona hans var hin 17 ára Allene Ashby. Það hjónaband entist í 2 ár, og hjónin viður- kenndu bæði að þau ættu ekkert sameiginlegt. Þau áttu ekkert barn saman. Þriðja konan var þýzkrar ættar, og skildi Getty við hana (Adoph- ine Hemle) eftir tvö ár, en hún fæddi honum annan son- inn. Árið 1931 varð Ann Rorke sú fjórða í röðinni. Ann Á kortinu má sjá leiðina, sem | „Manhattan“ fór, frá Philadelfiu til Sachs Harbor í Alaska. Risa- skipið var 23 daga á leiðinni gegnum ísinn. OIIIMEDIDIALASKA. ER ADEIKS FVRIR MIIUDNERA var ljósmyndafyrirsæta, og hjónaband þeirra varð ekki langvinnt, en var ekki frá- brugðið liinum hjónaböndum hans, að öðru leyti en því að Ann varð móðir tveggja sona Gettys. í upphafi síðari heimsstyrjaldar reyndi Getty í fimmta sinn, og þá var það næturklúbbssöngkona Louise Dudley Lynch, sem varð sú lukkulega, og fæddi honum einn soninn ennþá. En í stríðslok fór þetta hjónaband einnig út um þúfur. Frá þeim tíma hel'ir hinn auðugi Getty aðallega helgað sig því einu að auka auðæfi sín, og á því

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.