Vikan


Vikan - 27.11.1969, Side 23

Vikan - 27.11.1969, Side 23
og stendur. Ég er heldur ekki upplagður til þess, er allur úr jafnvægi og hef ekki öðlast hug- arró síðan þetta kom fyrir með Sigurð son minn. Það sem blöð- in eru að skrifa um væntanlega ferð mína til Danmerkur í sum- ar er hreinn misskilningur. Ef ég fer héðan af landi brott, þá fer ég fyrir fullt og allt. Ef Sigurði eru öll sund lokuð hér í Noregi, þá sé ég ekki, að ég hafi hér neitt meira að gera. Og ég á í mörg hús að venda. í Múnchen hef ég búið nógu lengi til þess að geta kunnað þar við mig aftur og setzt þar að. Og þar verður áreiðanlega tek- ið vel á móti mér. Sama er að segja um ítalíu. Ég verð að segja, að það er erf- itt að eiga Noreg fyrir föður- land. Hjartans þakkir og beztu kveðjur til þín og þinna, þinn einlægur Henrik Ibsen.“ Frú Ibsen var nú komin heim úr einni af sinni mörgu heilsu- bótarferðum. Því miður hafði hún litla bót fengið og gigtin var jafnvel verri en áður. Ibsen var hins vegar við góða heilsu og hafði fulla starfskrafta. Nýtt leikrit var komið frá hans hendi, „John Gabriel Borkman" og var það nú frumsýnt í hverju land- inu á fætur öðru. Hann var þeg- ar byrjaður af krafti að vinna að nýju verki „Nár vi döde vágner“. Sjötugsafmæli Ibsens bar upp á um þetta leyti. Um það hefur mikið verið skrifað og ég vil því aðeins bæta við fáeinum smámyndum, sem ég hygg að ekki hafi komið fram áður: Ég minnist þess, að þegar eld- snemma um morguninn tóku símskeyti, blóm og gjafir að streyma á heimili Ibsens-hjón- anna. Stofurnar voru bókstaf- lega þaktar blómum og gjöfum. Þegar líða tók á daginn kom hver sendinefndin á fætur ann- arri til þess að óska Ibsen til hamingju. Auðvitað kom líka sendinefnd frá Kristíanía Theater. Þar átti að vera há- tíðasýning kvöldið eftir með ávarosorðum eftir æskuvininn, Lorenz Dietrichson prófessor. Hin ógleymanlega leikkona okk- ar, Laura Gundersen flutti þau. Sendinefndin kom nú til þess að spyrja Henrik Ibsen og frú hans hvort þau vildu gera leikhúsinu þann heiður og ánægju að vera viðstödd sýninguna. Frú Ibsen þakkaði fyrir, en bað um, að sér- stök stúka yrði fyrir hann og önnur fyrir hana. — Hann á að sitja einn, sagði hún. Ibsen reyndi að malda í móinn og kvaðst helzt vilia, að þau sætu saman í einni stúku. En frúin sat fast við sinn keip. — Þetta er þitt kvöld. og ég hef þar í rauninni ekkert að gera, sagði hún. Og þannig varð þetta að vera, fyrst hún vildi það. Þau sátu í sitt hvorri stúkunni, meðan á heiðurssýningunni stóð. Ég man eftir öðru atviki svipaðs eðlis. Það gerðist að kvöldi afmælis- dagsins, þegar blysförin var gerð. Ég sé enn þá Ibsen fyrir mér, þar sem hann gekk sínum smáu skrefum til hennar og ég heyrði að hann sagði: — Ætlarðu ekki að koma að glugganum og standa við hlið mér? En hún svaraði: — Nei, stattu þar einn. Þótt hún væri yfirleitt stolt og ákveðin í tali, gat hún einnig verið hlédræg á slíkum stund- um. Hún kærði sig ekki um, að ljómanum af frægð hans yrði varpað yfir á hana. En vissulega átti hún það margfalt skilið. 1899 var loks sú stund upp runnin, að stjórnmálaskoðanir Sigurðar fengju hljómgrunn. Æ fleiri stjórnmálamönnum varð nú ljós nauðsyn þess, að Noreg- ur fengi sitt eigið utanríkisráðu- neyti í Kristíaníu. Sigurður hafði þegar bent á þetta, er hann var ungur fulltrúi í Stokkhólmi, samið greinargerð um málið og sent hana þáverandi forsætisráð- herra. En hann virti hana að vettugi. Hann hreyfði málinu aftur 1893, þegar fyrsta vinstri stjórn Steens var mynduð. En stjórnin var of veik til þess að koma málinu í örugga höfn. Þegar annað ráðuneyti Steens var myndað 1898, voru tillögurnar enn dregnar fram í dagsljósið og að þessu sinni bornar fram til sigurs. Sigurði var falið að framkvæma hugmyndina og loksins hafði honum verið falið verðugt verkefni af þjóð sinni. Loksins hafði hann hlotið stöðu sem hæfði menntun hans og st’órnmálahæfileikum. Við nálgumst nú aldamótin og vegur Sigurðar fer vaxandi á sviði stjórnmálanna. En sam- tímis er endir bundinn á hinn glæsilega skáldskaparferil Hen- riks Ibsens. Meðan hann samdi leikritið ,.Nár vi döde vagner“, fann hann til lasleika. En hann náði sér aftur og engan grunaði, að þetta yrði síðasta verk hans. Hann tók aftur upp sinn venjubundna lífs- máta, fór í gönguferðir og á kaffihúsið sitt og dvaldist þar stundarkorn á hverjum degi. Hann hafði vanið sig á hið síð- arnefnda í Suðurlöndum. í Róm sótti hann kaffihúsið Tritone, í Múnchen Café Maximilian og í Kristíaníu var það Grand Café. Á gönguferðunum lifði hann í sínum eigin draumaheimi. Hann skipulagði hvern vinnu- dag sinn nákvæmlega, og vann eftir stundatöflu, því að hann vissi, að ella mundi hann gleyma sér við dagdrauma. Mikið hefur verið skrifað um vinnuhörku Ibsens og smámuna- Framhald á bls. 40

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.