Vikan


Vikan - 27.11.1969, Page 31

Vikan - 27.11.1969, Page 31
Tilburðir The Archies Lagið „SugarSugar" var fyrir skömmu efst á vinsældalistanum í Englandi. Lagið hefur einnig verið þó nokkuð vinsælt hér á landi, og því er ekki nema eðlilegt, að menn vilji vita deili á hljómsveitinni, sem flytur lagið, en samkvæmt plötu- miðanum er það hljómsveitin „The Archies". Sjálfsagt lyftist brúnin á einhverjum þegar við segjum að meðfylgjandi mynd sé af þessari umræddu hljómsveit. „The Archies" eru nefnilega fígúrur í vinsælli teiknimyndaseríu, sem sýnd er í öllum sjónvarpsstöðvum um þvera og endilanga Ameríku á hverjum laugardagsmorgni. Eru vinsældir þátta þessara slíkar, að ekki verð- ur við annað jafnað en þætti Apa- kattanna, þegar þeir voru hvað sprækastir fyrir tveimur árum. Það er einmitt framleiðandi Apakatta- myndanna, Don Kirshner, sem hef- ur framleitt þessar teiknimyndir, og þykir honum hafa tekizt mjög vel upp. Hljómsveitin „The Archies" er því ekki til í verunni, heldur er um að ræða hljómlistarmenn úr ýmsum Framhald á bls. 45 Við höfum áður sagt frá hljóm- sveitinni „Nice" og hinum óvenju- legu tilburðum orgelleikarans, Keith Emerson. Þessar myndir lýsa betur en nokkur orð þeirri óblíðu með- ferð, sem orgel hans fær, þegar hljómsveitin kemur fram á hljóm- leikum. Emerson hefur jafnan tvö orgel í takinu við slík tækifæri og veitir ekki af. Eins og sjá má næg- ir honum ekki að spila á nótna- borðið, heldur þarf hann líka að seilast í innvolsið, en með því fær hann hin margbreytilegustu hljóð, brak og brest, sem ekki láta beint þægilega í eyrum, enda virðist slíkt athæfi fremur gert í því skyni að hrella áheyrendur en að framleiða áheyrilega tónlist. Auk Emersons skipa hljómsveitina trymbillinn, Blinky Davidson, sem er hálffalinn bak við skóg af cymbölum, og Lee Jackhon, en hann leikur á bassa og sér auk þess að mestu leyti um sönginn. ☆ ANDRÉS INDRIÐASON Marsha Þessi dama heitir Marsha Hunt. Til skamms tíma fór hún með eitt af aðalhlutverkunum í söngleiknum „Hair" í Shaftesbury-leikhúsinu í London. Hún þótti spjara sig þar með slíkum ágætum, að henni var boðið að syngja inn á hljómplötur, hvað hún gerði. Að undanförnu hefur Marsha komið fram með hljómsveitinni „White Trash", og var þessi mynd af henni tekin, þeg- ar hún söng með hljómsveitinni á músikhátíðinni miklu á White-eyju. ☆ 48. tbi. VIKAN 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.