Vikan - 22.12.1969, Síða 27
»
Kristinn Hallsson syng-
ur Fígaró, stærsta karl-
hlutverk óperunnar.
Fígaró er, eins og fleiri
persónur Brúðkaupsins,
einnig frægur úr ann-
arri heimsþekktri óperu,
Rakaranum í Sevilla
eftir Rossini. Þar náði
Almaviva greifi ráðahag
við konuna, sem hann
þráði, með fulltingi
Fígarós, en launar hon-
um ekki betur en svo að
nú girnist hann heit-
konu rakarans.
l
i
Mppfcti
:
4 „Sua madre? Cosa sento!“
Móðir hans? Hvað heyri ég?
Fígaró uppgötvar að ráðskon-
an, sem ætlað hafði að neyða
hann til hjónabands með sér,
er raunar móðir hans, sem hon-
um hafði verið rænt frá í
bernsku. Á myndinni eru, tal-
ið frá vinstri: Gísli Alfreðs-
son, Hjálmar Kjartansson,
Sigurveig Hjaltested, Ann
Margret Pettersson og Krist-
inn Hallsson.
Greifafrúin og Súsanna bolla-
leggja um samsæri sitt gegn
greifanum, sem er helzti vand-
ræðagripur sögunnar, hverf-
lyndur og afbrýðisamur í senn.
En Súsanna er klók og ráða-
góð og allt fer vel að lokum.
4 Bartolo læknir,
sunginn af
Hjálmari Kjart-
anssyni (til
hægri), þykist
eiga Fígaró grátt
að gjalda og ger-
ir sitt bezta til að
koma honum í
hjónabandið með
Marcellinu. En
Fígaró reynir að
telja honum trú
um að hann sé af
aðalsættum og
geti því ekki
gifzt án leyfis
foreldra sinna —
sem enginn veit
ennþá hverjir
eru.