Vikan


Vikan - 22.12.1969, Blaðsíða 47

Vikan - 22.12.1969, Blaðsíða 47
York. „Ertu vitlaus?" spurði hún. „Nei, ég er ekki vitlaus og það getur verið betra fyrir þig að fara með mig til flugmannsins." Seinna sagði Raff Mitchelson lög- fræðingi að hann hefði aldrei ætlað sér að drepa neinn, og allra sízt flugmanninn. En hvað hefði skeð ef flugmaðurinn hefði neitað að gera eins og Minichiello skipaði honum? Ætli ég hefði ekki drepið sjálfan mig. Ég hefði aldeilis gert það erf- itt fyrir FBI eða einhvern lepp frá stjórninni, en ég hefði ekki meitt neinn. Ég var ekki reiður út í neinn sem var í flugvélinni. Ég sat og tal- aði lengi við eina flugfreyjuna, blökkustúlku, og hún sagðist skilja á vissan hátt hvað ég var að gera. Hún hlustaði á mig. Flugvélarránið gekk snuðrulaust utan smáatvik sem henti á Kennedy- flugvellinum í New York. Raff varð hálf skelkaður þegar FBI-menn í skotheldum vestum nálguðust, og hann skaut upp í loftið í stjórnklef- anum. Hann segir það hafa verið algjört slys. Og þegar vélin tók á loft, í áttina yfir hafið, kvaldist hann af eftirsjá. Ég hunsaði með mér: — Raff, þetta er í síðasta skipti sem þú sérð Ameríku. Þet*a er bezta land í heimi. Hér er gott að búa, allir hafa vinnu og aliir hafa eitthvað til þess að hlakka til. En nú verð ég að afsala mér ríkisbm-nararétti mínum, því ég hef verið útilokaður fyrir fullt og allt. Þeir gerðu rangt á hluta minn og sennilega ég á þeirra hlut. Endalok sögu Raffaele Minichi- ello's þekkja allir. Hann var, er hann kom til Italíu, þreyttur, örvænting- arfullur og hræddur drengur. I Róm skipaði hann lögreglustjóranum á flugvellinum að koma aleinn um borð í flugvélina. Og lögreglufor- inginn hlýddi tafarlaust þeirri skip- un að keyra Raff út fyrir borgina. En þegar Raff heyrði nafnið sitt í útvarpinu, sagði hann lögreglufor- ingjanum að stanza og síðan hljóp hann. A leiðinni henti hann öllum farangri sínum nema útvarpinu og þannig tókst honum að stöðva hjón í bíl, sem tóku hann upp í og settu hann úr við gamla kirkju. Ég faldi mig í kirkjunni, en ég var of hræddur ti! þess að biðja. Mig langaði til að vera inni það sem eftir var, því öll vandræðin voru úti fyrir. En ég varð að fara út. Og þar var allt fullt af lögreglu- þjónum, bílum og byssum — og fyr- ir ofan sveimuðu þyrlur aðeins í nokkurra metra hæð. Þeir báðu mig um vegabréf og settu mig í hand- járn. Þá sagði éq: „Landar mínir, hvers vegna eruð þið að taka mig? Hvað hef ég gert?" Ef Rafaele Minichiello verður sek- ur fundinn á Italíu, á hann það á hættu að verða dæmdur í 30—99 ára fangelsi. Hefðu ítölsk yfirvöld kos- ið að framselja hann til Bandaríkj- anna hefði hann jafnvel verið tek- inn af lífi þar. Raff veit þetta allt, en hann brosir ennþá. Eklci vegna þess að hann sé ánægður, heldur vegna þess að hann er sorgmæddur. ,,Eg brosi," segir hann, „vegna þess að ég get ekki talað góða ensku, en ég vil að fólk skilji mig og líki vel við mig." Og bakvið brosið bíður hann dóms. Dóms drengsins sem i Los Angeles hóf að leita þess sem hann hefur þráð í 20 ár. Mig hefur alltaf lanqað að fljúga. Ég var vanur að hugsa með mér: Það hlýtur að vera dýrlegt þarna uppi. Maður er frjáls. Allur heimur- inn fyrir neðan mann og maður er sjálfur uppi í himingeimnum. Alveg frjáls. ) Uartítilarkahiir INNI ÚTI BÍLSKÚRS SVALA HURÐIR ýhhi- tr Htikuriir H □. VILHJÁLMSSDN RÁNARGÖTU 12 SÍMI 19669 ! C~ --^-- ----—------------------------------———-á 52. tbi. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.