Vikan - 12.02.1970, Qupperneq 3
7. tölublaS - 12. febrúar 1970 - 32. árgangur
Áhugi á liósmyndun hefur fariS stöðugt
va,jandi á undanförnum árum og líklega er
Ijósmyndun nú eitt útbreiddasta tómstunda-
gaman fólks. Af þessu tilefni hefur VIKAN
ákveðið að efna til Ijósmyndasamkeppni
meðal hinna mörgu áhugaljósmyndara.
Við skýrum nánar frá tilhögun keppninnar
og verðlaun í þessu blaði.
Fyrir örskömmu var pilsið hátt uppi á læri,
en nú er það í einni svipan komið alla leið
niður á ökla. Þetta er daemigert fyrir
öfgana, ssm einkenna tízkuna ná á dögum.
Ljósmyndari VIKUNNAR brá sér í bæinn
um daginn til að taka nokkrar svipmyndir
af s ðu tízkunni á götum Reykjavíkur.
I ÞESSARI VIKU
Það var einn sólfagran dag í nóvember
árið 19ól, að Mfchael Rockefeller fór frá
Agats, frumstæðri byggð í þeim hluta
Nýju-Gíneu, er þá laut Hollandi en lýtur nú
Indónesíu. Þetta varð síðasti dagur hins
unga erfingja Rockefeller-billjónanna, en
eins og kunnugt er af fréttum varð hann
mannætum að bráð. Við birtum ítarlega
frásögn af þessum atburði í máli og
myndum.
Ný litunaraðferð, svokölluð hnútalitun, ryður
sér mjög t!l rúms um þessar mundir,
og er fyrir nokkru komin hingað
til lands. Hér er um að ræða ævagamla
listgrein, sem þekkzt hefur á Indlandi frá
alda öðli og kallast þar bandhnu. Við segjum
frá þessu nýja tízkufyrirbæri í næsta blaði.
Það hefur lengi verið kunnugt hugsandi
fólki, að kjör einstæðra mæðra og
barna þeirra hérlendis eru langt fyrir neðan
það sem nokkurt velfcrðarþjóð-
félag ætti að geta verið þekkt fyrir.
Það hefur því ekki verið vonum fyrr,
að einstæðar mæður stofnuðu með
sér samfök t'l að berjast fyrir bættri aðstöðu
sinni og sinna. í næsta blaði ræðir VIKAN
við formann þessa nýstofnaða
félags, Jóhönnu Kristjónsdóttur.
Nixon forseti er eðlilega i kastljósinu
upp á hvern dag eins og fara gerir um
slíkan mann. Hann sinnir jafnt
stóru sem smáu, tilkynnir stóraðgerðir í
Vietnam um leið og lifverðir hans klæðast
skrautlegum búningum. En dætur hans eru
ekki minna i sviðsljósinu en faðir þeirra,
og sögu þeirra segjum við í næsta blaði.
I NÆSTU VIKU
FORSÍÐAN
Vikan efnir til Ijósmyndakeppni og segir nánar frá því á blaðsíðu-
um 18 og 19.
í FULLRl ALVÖRU
MALEFNALEGRI
UMRÆBUR
Ekki er hægt að kvarta undan deyfð og
áhugaleysi í almennum umræðum og skoðana-
myndun hér á landi að undanförnu. Engu er
líkara en fólkið hafi skyndilega vaknað af dvala;
það gripur fegins hendi hvert einasta smámál,
tekur afstöðu til þess með eða móti, og fjölmiðl-
unartækin reyna að njóta góðs af og blása allt
saman upp með glæsibrag.
Fá þessarar fyrirferðamiklu deilumála hafa
beinlínis snert stjórnmál, og þá helzt það sem
er lítilvægast þeirra allra og einkennilegast:
kvennaskólamálið. Því hefur verið haldið fram,
að stjórnmálaáhugi sé minni hér á landi en i
öðrum löndum. Skyldi ekki hinn almenni áhugi
á litlu málunum benda til þess, að áhuginn sé
fyrir hendi og löngunin til að taka afstöðu og
láta skoðun sína í Ijós engu minni hér en ann-
ars staðar? Skyldi ekki deyfðin og áhugaleysið
á stjórnmálum eiga sér þær orsakir, að flest
mikilsverð mál, sem alla varða, eru gerð flókn-
ari en ástæða er til og of lítið gert af þvi að
kynna þau og láta almenningi i té hlutlausar
upplýsingar, sem hann getur lagt til grundvall-
ar eigin áliti og skoðanamyndun? Því verður
ekki trúað að óreyndu, að íslenzkur almenningur
sé fáfengilegri í hugsun en gengur og gerist og
vilji ekki skipta sér af þeim málum, sem snerta
kjör hans, stöðu og hag i framtíðinni mest.
Með prófkosningum eru stjórnmálafiokkarnir
góðu heilli að freista þess að opna starfsemi
flokkanna meir en verið hefur. Góð þátttaka í
þessum kosningum er vísbending í þá átt, að
áhuginn sé fyrir hendi, en það sé hlutverk stjórn-
málamanna, málgagna þeirra og annarra fjöl-
miðlunartækja að beina honum inn á happ-
sælli brautir. Með því móti eitiu geta umræður
hérlendis orðið málefnalegar, og hætta þá vænt-
anlega að snúast mestan part um slúðrið og
ómerkilegt dægurþras.
G.Gr.
VIKAN
Útgefandl: Hilmtr hf. Ritstjóri: Gylfl
Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorleifsson, Matthlldur
Bdwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteiknlng: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Jcnsína Karls-
dóttir. — Kitstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreif.
ing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf 533.
VcrS f lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er 475 kr.
Tyrir 13 töiublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir 28
tölubiöð misserisiega. Áskrlftargjaldið grelðlst fyrlr-
fram. Gj.aldd. eru: Nóvcmber, febrúar, maf og ágúst.
7-tbl VIKAN 3