Vikan - 12.02.1970, Síða 13
virði? Ungu konunnar, sem
hefur til að bera kjark skiln-
ing og fegurð, eða mannsins
sem hvorki getur talað né
hreyft legg eða lið, — sem yf-
irleitt getur ekkert nema sof-
ið?
— Þér getið ekkert uvn það
sagt, hvort honum ])ykir ekki
vænt um það, að hann hélt
lífinu, sagði aðstoðarlæknir-
inn og maldaði í móinn, en
án þess að vera sannfærður.
Og svar læknisins var full-
nægjandi: stutt hlátursroka.
Sjúklingurinn var nú glað-
vaknaður. Hann var hrædd-
ur og órólegur og revndi að
telja sér trú um, að þetta
væri ekki annað en vondur
draumur.
Hann skimaði skelfdum
augum um allt herbergið,
liann horfði á tréð fyrir utan
gluggann og sá greinarnar
bærast í vorgohinni, og hann
horfði á rúmteppið, sem var
svo slétt ofan á hreyfingar-
lausum líkama hans.
Jú, víst lá hann þarna lif-
andi í rúminu sínu og hlust-
aði á rödd læknis síns, sem
var að stinga upp á að stvtta
eymdarástand hans, — eins
og hann væri hundur, sem
hefði orðið undir bifreið eða
ósjálfbjarga fuglsungi, sem
hefði oltið út úr hreiðri sínu.
Þessa sttindina fannst hon-
um hann vera betur lifandi
en nokkurn tímá áður í þessa
fjórtán mánuði sem hann
hafði legið rúmfastur. Og nú
vissi hann í fyrsta skipti,
hversu heitt hann þráði að
lifa, og halda lífinu áfram.
Eins og hestur, sem hefur
fælst og reynir að sh'ta sig
lausan frá hestasteininum,
barðist hann nú gegn þeim
ofnrmætti, sem batt hann
mállausan og máttlausan við
rúmið. En þessi ofurmáttur
hélt honum rígföstum í járn-
greipum sínum. Hann gat
hvorki hrópað né hreyft sig.
— Hann verður ekki var
við neitt, hélt læknirinn
áfram. — Ég get lofað yður
því. t níu tilfellum af hverj-
um tíu deyr sjúklingurinn í
svefni og veit ekkert hvað er
að gerast. Það gerir hann líka,
það skal ég sjá um.
— En hugsið þér til kon-
unnar hans. Henni þvkir þó
vænt um hann? Hvernig
mundi henni líða eftir á?
— Hún mundi verða sann-
færð um, að hann hefði ekki
orðið neins var. Hún mundi
trúa því um aldur og ævi, að
þetta hefði verið slys, og þeg-
ar nokkuð væri liðið frá,
mundi henni verða léttir að
fráfalli hans. Læknisaðgerð
er aldrei skemmtileg, en samt
er hún hundrað sinnum
skemtilegri en að seigkvelj-
ast til bana.
Nú varð lrögn á ný og
sjúklingurinn reyndi að
leggja við hlustirnar eins og
hann gat. Hann heyrði hvern-
ig aðstoðarlæknirinn reyndi
árangurslaust og linkulega
að malda í móinn:
— Og hvað þá um mig?
Ilvað verður haldið um mig?
— Ég var að segja vður, að
ég sé við því öllu saman. Þér
farið inn í þorpið til þess að
sækja tóbak — og þar með
hafið þér sönnun fyrir því, að
þér hafið verið fjarverandi.
Eg hef sent, yður þangað og
ber þess vegna ábyrgðina.
Yður er bezt að fara undir
eins, og koma ekki aftur fyrr
en ég hef gefið yður merki.
Farið þér nú og þakka yður
fyrir. Hann mundi líka
þakka yður fyrir, ef hann
vissi um þetta.
Þeir tókust í hendur þarna
inni í herberginu. Sjúklingn-
um fannst hann geta séð
þetta gegnum þunnan vegg-
inn. Að minnsta kosti vissi
hann að þeir gerðu það. Nú
opnaðist hurð og gengið var
þungum skrefum gegnum
anddyrið. Síðan var útidyra-
hurðinni skellt í lás.
Aðstoðarlæknirinn gekk
fyrir opinn gluggann á stofu
sjúklingsins, en sneri and-
litinu undan á meðan.
— Dóra, hrópaði sjúkling-
urinn, en þetta óp var aðeins
til í sál hans — ekkert hljóð
komst fram á varir hans.
Mínútu síðar kom hún inn til
hans. Ilún lauk dyrunum
hægt upp og gekk hljóðlega
inn. Hún var í grænu, þykku
kápunni sinni og með litla
hattinn. Það var fararsnið á
henni líka.
En Dóra virtist ekki hafa
hugmynd um þessar ráða-
gerðir. Ilún gekk beint út að
glugganum og horfði hugs-
andi út. Iíún var dökk vfir-
litum og yndisleg, hörundið
var fagurhvítt. Oftast hafði
hún frá einhverju skemmti-
legu að segja, þegar hún kom
inn en í dag var hún þögul.
— Ég þarf að skreppa inn
í bæ og ég skal hafa kvöld-
blaðið með mér heim handa
þér. Ég verð ekki lengi í
burtu. Læknirinn hefur boð-
ið mér að aka með sér í bíln-
um sínum.
Samfara óttanum, hinum
hræðilega ótta, kenndi hann
nú álcafrar reiði, sem var enn-
þá sterkari en óttinn. Hann
ætlaði þá að fara með Dóru
með sér þessi ungi læknisof-
látungur. Og Dóra ætlaði að
aka með honum, því að hann
sjálfur gat ekki aðvarað hana
hvorki með orði né bend-
ingu.
Dóra stóð enn hikandi við
gluggann.
— Það er vndislegt veður í
dag. Þegar þú ert kominn á
fætur og orðinn hress aftur
verðum við að fara að herja á
illgresið. Það er að kæfa allt
Framhald á bls. 39.