Vikan - 12.02.1970, Blaðsíða 19
Ljósmyndun hefur farið vaxandi undanfarin
ár og er nú iíklega eitt vinsælasta
tómstundagaman almennings. VIKAN hefur ákveðið að
efna til Ijósmyndakeppni meðal
áhugaljósmyndara og hefst
hún frá og með þessu blaði, en skilafrestur
er til 12. marz næstkomandi.
Myndaefnið er algerlega frjálst, en
eingöngu koma til greina svart-hvítar myndir og þeim
á að skila í stærðinni 18x24.
Hver áhugaljósmyndari má senda mest
fjórar myndir. Myndina á að merkja með dulnefni,
en umslag skal fylgja með réttu
nafni höfundar. Þrenn verðlaun verða veitt og eru
þau öll gefin af
AGFA-UMBOÐINU hér á landi.
1. verðlaun eru 5000 krónur í peningum.
2. verðlaun eru 3000 króna úttekt
á Agfa-Ijósmyndavörum hjá Týli hf., Austurstræti.
3. verðlaun eru 2000 króna úttekt
á Ijósmyndavörum hjá Týli hf., Austurstræti.
Að lokinni keppninni verða tíu beztu myndirnar
birtar hér í blaðinu og
prentaðar á sérstakan myndapappír.
Dómnefnd skipa eftirtaldir menn: Oli Páll Kristjánsson,
Ijósmyndari, Rúnar Gunnarsson,
Ijósmyndari og kvikmyndatökumaður
sjónvarps, Otti Petersen,
frá félagi áhugaljósmyndara, og Sigurgeir
Sigurjónsson, Ijósmyndari Vikunnar.
Vikan hvetur alla áhugaljósmyndara
til að taka þátt í þessari keppni og senda
myndir sínar sem fyrst og í siðasta
lagi fyrir 12. marz.