Vikan - 12.02.1970, Qupperneq 49
Þessi blóðugi og ógeðfelldi knattspyrnuleikur dró að sjálfsögðu dilk
á eftir sér. Sjálfur forseti Argentínu, Juan Carlos Ongania, sem sá
ósköpin í sjónvarpi, lagði hart að forráðamönnum Estudiantes, að
þeim þremur leikmönnum sem verst hegðuðu sér yrði refsað. Sem
afleiðing af þessu var markvörðurinn, Poletti, dæmdur í ævilangt
keppnisbann, og mun það vera í fyrsta skipti í sögunni, sem slíkur
dómur er kveðinn upp yfir atvinnumanni. Suarez var dæmdur frá
keppni þrjátíu næstu félagsleiki og bannað að taka þátt í hvers
konar alþjóðlegum leikjum, bæði fyrir Iand sitt og félag, næstu
fimm árin. Loks var þriðji leikmaðurinn, Manera, dæmdur frá
keppni næstu tuttugu leiki og bannað að leika í miiliríkjakeppni
næstu þrjú árin. Ongania forseti sagði í útvarpsviðtali, að álit
Argentínu sem knattspyrnuþjóðar hefði beðið mikinn hnekki við
þennan leik. Og stærsta og áhrifamesta blað landsins, La Nacion,
sagði meðal annars í grein um leikinn undir fyrirsögninni „Good-
bye Football“: „Aldrei fyrr hefur slíkt regindjúp verið á milli
argentísks knattspyrnuliðs og samúðar þjóðarinnar.“
úrslitaleikur