Vikan - 14.05.1970, Page 14
Pönnukökur með
skeldýrafyllingu
Utbúið venjulegt ósætt pönnu-
kökudeig. Utbúið góðan jafning sem
bragðaður er til með dilli, salti og
hvítum pipar. Notið humar, rækjur
eða krabba eftir efnum og ástæð-
um. Setjið jafning á hverja pönnu-
köku og brjótið þær saman og setjið
í eldfast form og rífið ríkulega af
osti yfir. Bakið við 275° þar til allt
er orðið vel heitt. Berið brauð með.
☆
UMSJÓN: DRÖFN H. FARESTVEIT,
HUSMÆÐRAKENNARI
Fylltar pönnukökur
6 dl hveiti
salt
3 egg
Va I vatn
50 gr smjör
3 eggjahvítur.
Sósa:
4 msk. hveiti
2 msk. smjör
2 dl rækjusoð
2 dl kjötsoð
1 00 gr rækjur
50 gr sveppir
Kínverskar
pönnukökur
5 dl hveiti
salt
2 egg
4 dl vatn
smjör
ca. 250 gr kjötafg. (smátt brytjaðir)
1 hvítlauksbátur
1 msk. laukur
selleri
baunabelgir
humar ef vill
dálítið hvítvín
eggjahvíta
rasp
feiti.
Utbúið hræru úr hveiti, salti eggi,
vatni, smjöri og stífþeyttri eggja-
hvítu og bakið þunnar pönnukökur.
Útbúið sósu úr soðinu. Síðan er það
sett ( sósuna sem efni og ástæður
leyfa hverju sinni. Þá er sósan sett
á hverja pönnuköku og þeim rúllað
saman. Veltið þeim að síðustu úr
eggjahvítu og raspi og steikið í feiti.
50 gr rækjur
feiti.
Útbúið pönnukökurnar úr hveiti,
salti, eggjum og steikið þunnar
pönnukökur. Brúnið á pönnu kjötaf-
gangana, rífið hvítlauk saman við
ásamt |auk, selleri, baunabelgjum,
salti, pipar og smáttbrytjuðum rækj-
um. Setjið 1 msk. á hverja pönnu-
köku. Rúllið síðan pönnukökunum
saman og festið með dálitlu af deigi
og steikið gulbrúnar og stökkar í
olíu eða feiti.
14 VIKAN 20 tbl