Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 34
OSRAM PERUR Lfsa 21% letur MeS TVÖFÖLDUM Ijósgormi, sérstaklega gerSum, framleiSa OSRAM verksmiSjurnar liósaperur, sem lýsa allt aS 20% betur, — án aukinnar rafmagnseySslu. vegna gæðanna. ATH1IGIÐ Ef þú ert aS byggja eða þarft aS bæta og jafnve! ef þú vilt breyta, þá teljum viS þaS hagkvæmt aS líta viS hjá okkur, því aS sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verS. LITAVER Km 22-24 30Z80-32Z62 STJORNUSPÁ*^ • Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Allt bendir til þess að þú eigir erfiðara með að koma verkum þínum af en undanfarið og einnig að þú verðir fyrir erfiðleikum á fleiri sviðum. Gættu þín á einum samstarfsmanna þínna sakir öfundar. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maQ: Það verður mjög mikið jafnvægi yfir öllum gerðum þínum og háttalagi í vikunni. Ekkert óvenjulegt mun reka á fjörur þínar, en dagarnir verða einkar þægilegir. Vertu heima á miðvikudagskvöld. ff Tvlburamerkið (22. ma( — 21. júnQ: Einn nágranni þinn og félagi gerir þig að nokkurs konar trúaðnarmanni sínum. Sýndu að þú sért þess verður að þér sé trúað fyrir lenydarmáli. Skipulags- gáfur þínar ættu að geta notið sín vel. Krabbamerkið (22. jún( — 23. júlQ: Líkur eru á að þú verðir fenginn til að stilla til friðar milli fólks sem þú þekkir ekki mikið til. I>ú færð kærkomið tækifæri til vissra framkvæmda. Farðu gætilega með fjármálin á þriðjudag. 9ír Ljónsmerkið (24. júl( — 23. ágúst): Þú ættir að gæta þess vel að halda fram rétti þín- um á vinnustað og að á þig verði ekki hallað, þess vegna skaltu alltaf halda kröfum þínum við, en gættu þess að leika ekki af þér. Heillatala er fjórir. ifr4 Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Hugur þinn verður mjög rómantískt stemmdur og þú munt leita félagsskapar þeirra sem láta hverjum degi nægja sína þjáningu. Þú færð fréttir af kunn- ingjum þínum sem koma flatt upp á þig. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú munt ekki eiga mjög annríkt þessa viku og skaltu þess vegna unna þér hvíldar, þvi fram undan er mikið annatimabil. Fyrri hluti vikunnar er eink- ar hagstæður til ýmissa viðskipta. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Þú færð einhverri félagssamþykkt eða reglugerð breytt með harðfylgi þínu. Félagsstarfsemi öll verð- ur með miklum blóma. Láttu framar öllu öðru at- vinnu þína ganga fyrir öðrum verkefnum. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú ættir að sýna kunningjum þínum og vinum meiri tillitssemi og trúnað en undanfarið. Dragðu þig ekki um of út úr kunningjahópnum. Þeir sem fæddir eru síðast í nóvember ættu að skemmta sér vel um helgi. $ Steingeitarmerkið (22. desember — 20 janúar): Vikan verður mjög hagstæð til ýmissa framkvæmda, en þú ættir að hafa þér reyndari mann með í ráð- um. Notaðu frístundirnar til að auka þekkingu þína. Vertu ekki mikið utan heimilisins. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Láttu ekkert raska rósemi þinni þótt þér undir niðri finnist full ástæða til uppreisnar. Þú leggur drög að framkvæmdum sem verða til mikilla hags- bóta fyrir þig og þína nánustu. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Það mun ýmislegt þægilegt gerast í vikunni en þó f ekkert sem þér verður minnisstætt. Það verður | nokkuð um heimboð og félagsstarfsemi. Þú um- 1 gengst kunningja þina mikið og ert lítið heimavið. 1 34 VIKAN 22-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.