Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 11

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 11
22. tbl. 10 .VIKAN TEXTI: ÖMAR VALDIMARSSON MYNDIR: SIGURGEIR SIGURJONSSON Ungfrú alheimsyngismær fyrir ár- ið 1970 er Henný Hermannsdóttir úr Rauðagerðinu t Reykjavík. Titil- inn hlaut hún í keppni sem hún tók þátt í í Tókýó, höfuðborg Árljóma- lands, eins og það mun einu sinni hafa verið kallað hér'á landi. Þegar það fréttist á nýbyrjuðu ári, að Henný ætti að fara til Japans til að keppa fyrir Islands hönd glottu margir út í annað. Það glottir eng- inn lengur og ég vil eindregið leyfa mér að mæla með því við fólk, að það lesi grein um Henný f nýútkom- halda í fyrsta sinn, og eina vildi hann fá frá Islandi. Svo sýndi hann okkur myndir og talaði um keppn- ina og á endanum sagði hann: — Eg hringi í eina ykkar fyrir klukkan fimm, og sú kemur til Japans í marz. Eg var rétt komin heim þegar hann hringdi og bað mig að koma strax niður eftir aftur og þar mynd- aði hann mig í bak og fyrir og kom svo með samning sem hann bað mig að skrifa undir. I algjöru hugs- unarleysi gerði ég það og fékk svo VIÐTAL VIÐ „MISS YOUNG INTER- NATIONAL 1970“, HENNY HERMANNSDÓTTUR Það er sama hvort ég horfi á dans eða dansa sjálf, þá gleymi ég öllu í kringum mig. Eg vil heldur dansa en að vera Ijósmyndafyrirsæta - fyrir millján á mánuði. inn Æsku, eða þá að hugsa sig um. Svo barst fréttin til landsins, og fyllti hugi og hjörtu landsins barna einlægri gleði og stolti; menn tóku í jakkahornin, gengu gleiðbrosandi um og töluðu hátt: Já, þeir eru fallegir, Islendingarnir, mikil lif- andis skelfingar ósköp. Við fengum Henný til að ganga með okkur um bæinn rétt eftir að hún kom heim, og spjölluðum við hana á meðan Ijósmyndarinn smellti af f gríð og erg. Fyrst var hún spurð um aðdraganda þátttöku sinnar í keppninni um ,,Miss Young Inter- national 1970": — Það var um hádegi á þrett- ándanum, sagði Henný, — að það var hringt í mig og ég beðin að koma niður á Hótel Loftleiðir, til við- tals við einhvern mann sem hét Charlie See. Nú, ég fór þangað, án þess að vita nokkuð meira en þetta, og þar voru þá fyrir nokkrar aðr- ar stelpur og Charlie þessi See. Hann sagði okkur, að hann væri á ferða- lagi um Evrópu til að leita að stúlk- um í þessa keppni sem nú ætti að að vita að ég myndi heyra frá for- ráðamönnum keppninnar inna fjór- tán daga. Þegar ég kom heim sagði ég náttúrlega frá því að ég væri að fara til Japans og öllum þótti það voðalega sniðugt — en enginn trúði því, frekar en ég. Nei, ég bjóst alls ekki við þvf að heyra neitt meira frá þeim,- hélt að þetta væri bara gabb eða eitthvað svo- leiðis. Nú, svo fékk ég bréfið og síðar farseðilinn og í byrjun marz lagði ég af stað til Japan. — Og hvernig gekk þetta ferða- lag svo fyrir — frá íslandi til Ár- Ijómalands? — Héðan fór ég til Kaupmanna- hafnar, þaðan til Parísar, þá London, Alaska — sem var 18 tíma flug — og loks til Tókýó, þar sem keppnin var haldin. Hún stóð yfir f 12 daga, og fyrstu 11 dagana vorum við á sýningarsvæðinu við að kynna okk- ur og heimaland okkar, kynna hljóm- sveitir og söngvara og dansara og koma fram á allan annan hátt. Allan tfmann fylgdust dómararnir með okkur — og engin okkar hafði hug- mynd um að þeir væru dómarar. Til dæmis voru nokkrir þjónanna á hótelinu dómarar og eins var mað- urinn í anddyrinu þar, sem lét okk- ur hafa allan póst og annað þvíum- líkt, einnig í dómnefnd. — En úrslitin, hvernig gengu þau fyrir sig á 12. degi? — Þau stóðu yfir í 4 tíma, og til að byrja með komum við allar fram í þjóðbúningum, þá í síðum kjólum, svo á sundbol og þá var tilkynnt um hvaða 15 stúlkur kæmu til greina og komum við þá aftur fram á sund- bol. Þá vorum við látnar snúa okk- ur á alla kanta og skoðaðar frá hvirfli til ilja áður en við sögðum nokkur orð á ensku f hljóðnema — það var svo þýtt yfir á japönsku — svöruðum nokkrum spurningum á sviðinu og dönsuðum örlftið eftir músik. Eftir það komu við 15 fram á kokkteilkjólum og loks voru allar 42 kallaðar fram og úrslit tilkynnt. — Áttirðu von á þessu? Henný brosti og varð hálf-vand- ræðaleg. — Nei, alls ekki. — En hvernig leið þér þá þegar þulurinn hróoaði þetta yfir fiöldann? — Satt að segia man éq það ekki, nema hvað að mér brá alveg of'a- lega. Auðvitað rifiast þetta aðeins upp fyrir mér þegar éo horfi á myndina sem mér var send (90 min- útna kvikmvnd frá keonninniV en ég man ekki vel í hvaða röð éq gerði hvað. í huga mínum er betta allt eins og lygasaga. en ég hef ægi- lega gaman af að siá ctelouna þarna á tjaldinu. — Eft:r á varst bú !e''ct út -’eð giöfum af öllu tagi, ekki satt? 22. tbi. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.