Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 37

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 37
Vandið val yðar og veljið KVENSÍÐBUXUR ANORAKAR FERÐAÚLPUR REIÐBUXUR t e d d y ÚLPUR DRAGTIR TELPNAKÁPUR TELPNASÍÐBUXUR MERKIÐ, SEM ALLIR ÞEKKJA SOLIDO: Fataverksmiðja Bolholti 4. IV hæð. um fyrir viðs vegar um heim. Fram að þessu liefur hann ekki viljað gera erfðaskrá. Hann er hræddur um að slíkt gæti flýtt fyrir þvi að hann yrði burt kallaður. Aðstandendur lians eru hræddir um að hann gefi mest allar eigur sínar til Barcelona.... ☆ Hennar keisaralega tign Framhald af bls. 25. lið fyrir lið. Hin háæruverðuga hetja frá Custozza verður ekki borubrattur eftir það. — Og svo? — Svo .. . Gianni þrýsti Milly fastar að sér, — þá verður krókatímabilinu lokið, Þú getur farið að hugsa þér út einhvern fallegan aðalstitil. Hvernig væri að kalla þig greifafrú von Lem- berg? Milly hallaði sér upp að öxl hans og horfði inn í arineldinn. — Ég skal segja þér eitt, Gi- anni, sagði hún hljóðlega, — ég held ég vilji aðeins heita Milly Stubel, — bara að ég fái að vera hjá þér framvegis. Mér er sama um alla titla. Ég elska þig, með eða án keisaralegrar blessunar. Á hverjum morgni klukkan fjögur, reis keisarinn upp úr mjóa járnrúminu, Kettert, her- bergisþjónn hans, kom með volgt vatn í könnu og kveikti á olíu- lampanum. Keisarinn þvoði sér úr lítilli skál og Ketert hjálpaði honum í einkennisbúninginn. Úti var dimm nótt, — allir í fasta svefni. Aðeins fótatak nætur- varðanna rauf næturkyrrðina. Klukkan hálf fimm var Franz Jósef setztur við vinnuborð sitt. Hann lifði eftir ströngustu hern- aðarlegu venjum: — Það hafði hann gert í fjörutíu ár ... Nú kom hann auga á rithönd Jóhanns Salvator. Hann hrukk- aði ennið og lagði bréfið til hlið- ar, án þess að lita á þykkt hand- rit, sem fylgdi bréfinu. Hann skrifaði með rauðu bleki á fremstu síðuna: Til endurskoð- unar hjá Albrecht erkihertoga. FJ. Það var allt og sumt. Þar með var keisarinn búinn að afgreiða þetta mál, hvað sem það nú var. Þegar yfirhirðmeistarinn, prins Hohenlohe, kom klukkan sex, sagði keisarinn: — Jóhann Salva- tor erkihertogi hefir sent mér einhverja greinargerð um ástand- ið við landamæri Rússlands. Hann er furðufugl, — getur hreinlega ekki látið vera að reka nefið í hluti, sem koma honum ekki við. Hvað er annars að frétta af honum? Ég á við sambandið við dansmeyna. Hafið þér frétt nokkuð af því? Prins Hohenlohe vissi allt sem skeði við hirðina. Hann hafði nær takmarkalaust vald og menn óttuðust hann jafnvel meira en keisarann. — Ég fæ stöðugt fréttir, Yðar Hátign, sagði hann. — Við losn- uðum líka við dömuna. Auðvitað urðum við að greiða svolítið fyrir það. Ungfrúin tók þessu skyn- samlega og fór til Berlínar. ,— Það gleður mig. Og hvernig hagar erkihertoginn sér í Galis- íu? — Fabbri barón hefir frétt að ástarævintýri sé milli hans og pólskrar stúlku, sem heitir Dana Lubowska. Hún er ráðskona hjá erkihertoganum. Það er stöðugt haft gát á bréfum hans, og hann hefir ekkert samband við dans- meyna. —■ Það er þó alltaf nokkuð, sagði keisarinn. — Hann hefir þá hætt við það brjálæði að fá að kvænast stúlkunni. Það er lík- lega þessvegna sem hann verður að hafa það til dægradvalar að endurskoða varnirnar við landa- mærin. Hann er sannarlega kross þessi strákur. Það er ekki einu sinni hægt að treysta því að hann sé til friðs þarna norður frá .... Þegar Hohelohe prins kom inn á skrifstofu sína, sat Fabbri bar- ón þar. — Fyrirgefið að ég ónáða yð- ur svo snemma morguns, Yðar Hágöfgi, sagði baróninn. — En það er um mikilsvert mál að ræða. Ég er búinn að sitja við ritsímann í alla nótt; það er við- víkjandi Jóhanni Salvator erki- hertoga. Hohenlohe starði undrandi á hann. — Einu sinni ennþá? Hans Hátign var einmitt að tala um hann. Hvað er það, barón? — Slæmar fréttir, Yðar Há- göfgi. Rússarnir hafa náð í afrit af skjölum, þar sem varnarlínu okkar við landamærin er ná- kvæmlega lýst. Sá sem samið hefir þessar skýrslur á að vera erkihertoginn. Haldið þér að slíkt geti komið til greina, Yðar Há- göfgi? — Hvað eigið þér við með þessu? Svipur Fabbris var kaldur og rólegur, eins og ávallt, þegar hann þurfti að leyna sínum réttu- tilfinningum. — Ég á við hvort erkihertog- inn geti hafa látið Rússana hafa slíkar upplýsingar? — Landráð? Hohenlohe var hás af skelfingu. — Nei, barón, ég held að slíkt komi alls ekki til greina. — En það er samt staðreynd að rússneska herforingjaráðið hefir fengið slík plögg. Njósnari okkar í Pétursborg getur náð í afrit af þeim. Það er ekki nokk- urt vafamál með þetta í aðalat- riðum. Spurningin er hvort erki- hertoginn hefiir gert þessa skýrslu. — Það. hefir hann gert, ég veit það. En ekki til að láta Rússana hafa hana! — í hvaða tilgangi, Yðar Há- göfgi? — Til að senda hana til keis- arans. — Til keisarans? spurði Fabbri undrandi. — Reyndar óbeðið, sagði Hoh- enlohe, og það var greinilegt að hann var taugaóstyrkur. — Hans Hátign er rétt búinn að segja mér það. Erkihertoginn stingur nef- inu niður í það sem honum kem- ur ekki við, til að gera sig vin- sælan. En það hefir verið þá tek- ið afrit af þessarri skýrslu á heimili hans, með leynd. Fabbri kipraði saman varirnar. Hann sá að hann gat ekki sakað erkihertogann um landráð. Hann myndi aldrei fá yfirhirðmeistar- ann til að viðurkenna það. En samt sem áður .... —- Þetta er ófyrirgefanlegt kæruleysi af erkihertogans hálfu, sagði hann hvasst.. — Það verð- ur strax að segja keisaranum frá þessu, yðar hágöfgi. — Nei, barón. Ég óska ekki 22. tbi. VIICAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.