Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 12

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 12
Dansinn _ er mér aiit Erlendis eru stúlkurnar hvattar áfram... til aS verða landi og þjóð til sóma... — Jú, perlum og steinum, út- vörpum og úrum — já, og eiginlega öllu sem nöfnum tjáir að nefna. Ég get ímyndað mér að andvirði þeirra gjafa sem ég fékk sé ekki undir 250—300 þúsundum króna. Kórón- an sem ég var krýnd með, öll með ekta steinum, var sögð kosta um 9000 dollara, eða hf.tt í 800 þús- undir. Og í verðlaun fékk ég svo 3000 dollara að auki. — Og frá Tókýó fórstu svo til Honolulu á Hawaii-eyjum? — Já, eftir að við höfðum verið í viku í Osaka. Fyrst fórum við allar 42 og vorum í tvo daga þar, og þá fóru hinar heim, en við, þessar sem vorum í fimm efstu sætunum, vor- um í eina fimm daga í viðbót. Þá fórum við aftur til Tókýó og þaðan til Honolulu, þar sem við vorum I aðra fimm daga. Það var alveg dýr- legt, það er ekki hægt að segja neitt annað um það. Hawaii er þessi stað- ur sem maður hefur alltaf látið sig dreyma um, en aldrei þorað svo mikið sem vona að maður ætti eftir að heimsækja. — Þú hefur vafalaust heyrt þær sögur sem hafa gengið hér og kom- ið frá rætnum tungum, að þetta hafi alls ekki verið svo galin hugmynd hjá þér að „segja að peningunum hafi verið stolið" svo þú „losnaðir við að borga af þeim skatta". — Já, ég hef svo sem heyrt það — og þar að auki frá mjög góðum vini mínum — sem sagði mér þannig frá þessu að það le't út eins og hann tryði því sjálfur. Ég varð ægilega sár, því mér hafði ekki einu sinni dottlð þetta í hug. Ég var búin að borga skatta af þessum peningum í Japan — og hvort sem ég fæ þá aftur eða ekki, verð ég að öllum líkindum látin borga skatta af þessu hér. Ennþá hefur ekkert komið í Ijós sem bent gæti til þess hver er sá seki eða seka, en bæði lögreglan hér heima og svo erlendis er komin í málið og unnið er að því af fullum krafti. Þó held ég, að mér sé óhætt að fullyrða, að það hefur verið ein- hver sem vissi meira en almenning- ur, því það hafði verið farið beint í töskuna mína, ég var með sjö töskur og var búin að setja peningana í eina þeirra, undir falskan botn, og ekkert annað hafði verið hreyft. — Og svo hefurðu komið beint heim frá Honolulu? — Já, við, danska stelpan og ég en við fórum saman til Hawaii, fór-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.