Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 30

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 30
Trúbrot hefur ekki brugðist neinum von- um mínum, og einfaldlega vegna þess að ég gerði mér aldrei neinar vonir. Mig langaði einfaldlega að spila með þeim beztu: Gunnari Þórðar, Rúnari Júl. og Shady ... Karl Sighvatsson. Það hefur löngum verið vitað að hann hefur dágóða peru í kollinum — en það hefur verið vitað álíka lengi að hann er/var rót- laus ærslabelgur. Nú hef- ur hann lýst því yfir að hann ætli að hætta í hl|ómsveitinni sem svo miklar vonir hafa verið bundnar við,Trúbrot, og því hitti ég hann að máli nýlega og spjallaði við hann eina kvöldstund. Mér er boðið inn í her- bergi á 6. hæð eins stór- hýsisins í Heimunum. Karl afsakar útganginn: — Þetta er eins og eftir loftárás, segir hann. Eg þræti ekki fyrir það. A miðju gólfi er stór springdýna og þar ofan á teppi; um allt gólf eru föt, bréf og blöð og yfir- le:tt allt sem nöfnum tjáir að nefna. Út við opinn gluggann er stór magnari og lítill plötuspilari mitt á milli tveggja hátalara. plötustafli liggur hjá. Útí horni, við fastaskáp sem er innbyggður í vegginn, Maður getur aldrei treyst þessum blaðamönnum! „Konan" kemur inn, og þau Karl kyssast einhver ósköp. Ég fer hjá mér, en býð svo gott kvöld. Kon- an er Rósa Björg hLelga- dóttir. — Mér fannst ég hafa mikið að segja, skal ég segja þér, segir Karl. — Ég lít allt öðrum augum á tilveruna núna en áður. Og mig langar til að segja allt sem mér býr í brjósti — þú bókar bara eftir mér. Svo vil ég fá að lesa þetta yfir áður en það fer í prentun. — Jú, svara ég, — al- veg sjálfsagt. Það er jafn- mikið minn hagur og þinn. En sennilega er bezt að taka þetta svolítið skipu- lega: Það er kannske ekki úr vegi, nú þegar þú ert að hætta í hljómsveitinni Trúbrot, að líta örlítið aft- ur á bak; hefur hljóm- sveitin orðið það þú ætlað- ist til, fyrir tæpu ári síðan, þegar hún var stofnuð? — Nei, enda gerði ég mér litlar vonir. Mig lang- aði einfaldlega til að spila fremst hugsa um að skemmta fólkinu sem sæk- ir dansleiki hjá okkur, en ég vil ekki spila á dans- leikjum. Mér finnst það innihalds- og tilgangs- laust. En ég kenni sjálf- um mér frekar um það ósamkomulag sem upp hefur komið á milli okkar. Ég álít að orsakir fyrir erf- iðleikum sé yfirleitt að finna hjá manni sjálfum. En ég vil taka fram að við Jökull erum beztu vinir þrátt fyrir þetta, við erum aðeins ósammála um hvaða leiðir við viljum fara í tónlist. — Hvað viltu þá gera ef þú vilt ekki spila á dans- leikjum? — Ég hef trú á að á Is- landi sé grundvöllur fyrir því að gera meiri og betri hluti. Það sem þarf að gera hér er að stofna eitt- hvað sem gæti heitið ,,Fé- lag rokkhljómsveita" eða eitthvað í þá áttina. Þetta þarf ekki bara að vera fé- lag hljóðfæraleikara, held- ur gott fólk sem hefur það að markmiði að bæta heiminn. Við verðum að Af hverju er aldrei hægt að gera neitt sem á að græða á án þess að hafa popphljómsveitir með í spilinu? Ég er ekkert á móti góðgerðarstarfsemi, en þetta er orðið hálf-rot- ið. Við eigum sjálfir að halda hljómleika fyrir alla, og heldur að endurtaka þá við lækkað miðaverð svo allir geti komist og hlustað á góða tónlist. Þannig ná- um við til fólksins. Það er nefnilega til meira af góðu fólki en slæmu. — Myndu þá þessir hljómleikar sem þú talar um vera eitthvað í Kkingu við þá sem átti að halda hér vorið 1968 — Flowers, Hljómar og Oðmenn með Sinfóníuhljómsveitinni? — Já, það væri órtú- lega gaman. Ég álít að hægt sé að gera góða hluti með því að sam- tvinna klassíska tónlist og rokk. Allar stefnur i tón- list eiga að þróast. Tökum sem dæmi „Pilagrímakór- inn". Mér finnst hann fallegt tónverk og vil fá að túlka hann samkvæmt eigin höfði, sem ég og HEYRA MÁ Cþó lægra lótí) £g vildi fá að túlka Pílagrímakórinn samkvæmt eigin höfði og gerði það. Mér fannst það nokkuð gott og skil þessvegna ekki afstöðu Ríkisútvarpsins... er hægindastóll og fót- skemill. Mér er boðið sæti og glas af Gvendar- brunnavatni. — Ennþá býr maður ekki svo vel að geta boðið vinum og kunningjum upp á neitt almennilegt, segir Karl til skýringar, — en þetta vatn er fínt, maður. Þetta herbergi hefur ann- ars leiðinleg áhrif á mig. Yfirleitt kem ég hér ekki nema til að sofa — ég verð hálf-dapur á að vera hér, enda fer ég að fara héðan. Dyrabjöllunni er hringt. — Þetta hlýtur að vera konan mín, segir viðfangs- efni mitt. — Ég á nefnilega gcða konu, og ég krefst þess að hún fái að vera hér í kvöld til að fylgjast með því sem ég segi þér. með þessum strákum, Gunnari Þórðar, Rúna Júl. og Shady. Annars var ég ánægður með Flowers — mér fannst það nokkuð góð hljómsveit. Hitt er annað mál, að í uppahfi vorum við búnir að áætla ýmislegt er lítið sem ekk- ert hefur orðið úr. Fyrst ætluðum við að vera „kon- sertgrúppa", en það fór á annan veg m.a. fyrir skort á skipulagi og sam- stöðu. — Var þá samkomulag- ið slæmt? — Ja, já og nei. Sam- komulagið á milli mín og Gunnars Jökuls hefur ekki verið nógu gott. Jökull er meira fyrir það að spila svolítið „commercial" mús'- ik; hann vill fyrst og fara vakna til lífsins og hugsa. — Og hvað á þetta fé- lag að gera? — Þetta á eiginlega ekki að vera félag, heldur einhverskonar samtök. Það má kalla það „VIÐ" eða eitthvað svipað. Svo þurf- um við að koma á fót mið- stöð, þar sem allir góðir menn í þessum „bransa" eiga sinn samastað. Hljóm- sveitirnar verða að hætta að láta nota sig eins og einhverja molbúa, en nota sjálfar, á heiðarlegan hátt, sína aðstöðu. Einhvern- tíma um daginn voru haldnir hljómleikar í Há- skólabíói, þar sem komu fram margar góðar hljóm- sveitir. Og hvað var gert? Allur ágóðinn var gefinn' gerði. Ég vil jafnframt taka það fram, að ég var mjög ánægður með túlk- un Flowers á verkinu og sérstaklega fannst mér Björgvin gera sínu hlut- verki góð skil. Þessvegna skil ég ekki afstöðu Ríkis- útvarpsins. Ég skal leyfa þér að heyra hérna alveg stór- kostlega plötu, sem er dæmigerð fyrir þessa stefnu; Deep Purple með Konunglegu Fílharmóníu- hljómsveitinni í London. Karl setur plötu á fón- inn og fiktar heilmikið í tökkum og hnöppum, en svo líða hljómar frá „Con- certo for Group and Or- chestra" um herbergið og flöskur og öskubakkar titra á borðgarmi í horn- 30 VIKAN 22- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.