Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 32

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 32
Lady Churchill, hinn óþekkti bakhjarl hins fræga manns, lifir enn og kemur stundum fram opinberlega, sérstak- lega ef verið er að heiðra minningu manns hennar. MINNING CHURCHILLS lifir, enda er hann af mörgum talinn mesta stórmenni, sem uppi hefur verið. Fáir hafa orðið frægari í heim- inum en hann. Hins vegar bar alla tíð minna á eiginkonu hans, Lady Churchill, og var það fyrst og fremst hlédrægni hennar sjálfrai; að kenna, því að hún var og er reyndar enn kona með afbrigðum fögur og búin mörgum kostum. Hún fylgdi manni sínum gegnum súrt og sætt og studdi hann með ráðum og dáð, sérstaklega þegar á móti blés. Síðan maður hennar lézt hefur athyglin beinzt meir að eftirlifandi konu hans, Clementine Churchill, og nokkrum sinnum hefur hún komið fram opinberlega, sérstaklega þegar manns hennar hefur verið minnzt. Nú síð- ast var hún viðstödd, er höggmynd af Chur- chill var afhjúpuð í brezka þinghúsinu (sjá mynd). Churchill mat konu sína mikils og jafnaði henni stundum við gyðju. Eitt sinn lét hann þau orð falla, að gifting hans hefði verið gleðilegasti og hamingjuríkasti atburður, sem gerzt hefði í viðburðaríku lífi hans. Og oftar en einu sinni sagði hann, að hún væri betri helmingur sinn. „Er nokkuð meira virði en að bindast þeirri persónu, sem al- drei hugsar annað en það, sem fagurt er,“ sagði hann. Það var sagt um hið áreiðanlega og íhalds- sama blað, London Times, sem er að mestu leyti eins í sniðum og það var fyrir áratug- um, að það hefði aldrei þessu vant farið úr skorðum daginn eftir að Churchill kvæntist þeirri konu, sem í þá daga var álitin ein af glæsilegustu konum heims. Blaðið fórnaði meira rými á umsagnir um brúðkaup Chur- chills en það hafði gert um nokkurn annan atburð. Frásögnin var heil síða og upptaln- ingin á brúðargjöfunum fyllti tvo dálka. Einn fréttaritarinn skrifaði þannig um stúlk- una, sem Churchill kvæntist: „Hún hefur andlit, sem ekki mun eldast og ástin mun ætíð vara á milli þeirra hjóna.“ Tíminn hefur leitt í Ijós, að spádómur blaðamannsins rættist. Hjónaband þeirra var alla tíð eins og í tilhugalífinu og andlit lady Clementine hefur ekki ljótkað, þótt árin hafi færzt yfir. Milljónir kvenna um heim allan hljóta að hafa hugsað um það einhvern tíma, hvernig það væri að vera gift ærslabelg eins og Sir Winston Churchill var, manni, sem stöðugt þurfti að hafa eitthvað fyrir stafni, þótt hann væri kominn hátt á níræðisaldur. Mörgum kann að virðast, að það hljóti að hafa verið erfitt að vera gift slikum manni og 'ekki henta mörgum konum. - Fyrst og fremst verður sú, sem er gift manni eins og Winston, að læra að þegja um ríkisleyndarmál, sagði lady Churchill eitt sinn í blaðaviðtali. — En þeim mun mikil- vægara er, að hún geti búið manni sínum, sérstaklega á ógnartímum, heimili, þar sem hann getur komið og hvílzt i ró og friði. Framhald á bls. 48. 32 VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.