Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 5

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 5
A- Lugi Riva, stjarnan í liði ítala. Leikmaður, sem allir vilja hafa með sér, en enginn á móti. Eftir úrslitalekinn 1966, sagði Alf | Ramsey við Alan Ball: „Þú átt eftir að keppa marga leiki fyrir England, en þú munt aldrei spila hetur en í þessum leik“. Þá var Ball of þreytt- ur til að getað svarað þessu hrósi Ramseys, en nú er hann ákveðinn í að sanna að hann geti jafnvel enn betur en þá. Lið Brasilíu, aftari röð frá vinstri: Carlo Alberto, markvörðurinn Felix, Djalma Dias, Joel, Wilson Piazza, Rildo. Fremri röð frá vinstri: Þjálf- ari, Jairzinho, Gerson, Tostao, Pele, Edu og annar þjálfari. Brasilía. Þetta er langsterkasti riðillinn og sá sem kemur til með að vekja mesta athygli. Al- mennt er búist við að Brasilíu- menn sigri þennan riðil, en Eng- lendingar verði númer tvö. Þó er víst að bæði Tékkar og Rúm- enar munu veita þeim harða keppni. T.d. léku Rúmenar tvo leiki við Englendinga á síðasta ári og lauk þeim báðum með jafntefli. Leikirnir í þessum riðli verða leiknir í borginni Guadalajara, sem er 1567 metr- um yfir sjávarmáli, á Jalisco- leikvanginum, sem rúmar um 71.000 áhorfendur í sæti. Fjórði og síðasti riðillinn verður leikinn í borginni Leon, sem er 1885 metrum yfir sjávar- Framhald á bls. 48. Með látinni móður Kæri draumráðandi! Ég hef aldrei áður skrifað þér en núna langar mig til að biðja þig að hjálpa mér. Mig dreymdi mjög skrítinn draum eina nótt- ina. Hann byrjaði á því að ég var heima hjá mér. Svo hringir sím- inn. Eg hleyp til hans og svara og spyr hver þetta sé. En mér bregður heldur betur, þegar svarið kemur: „Þetta er mamma þín.“ Hún svaraði mjög veiklu- legum rómi. (Mamma mín dó fyrir fimm og hálfu ári síðan og var mjög veik áður en hún dó). Ég varð svo hrædd að ég skellti tólinu á, og stóð hjá símanum steini lostin. En svo fer ég að hugsa mig betur um og kemst að þeirri niðurstöðu að þetta hafi verið mjög heimskulegt af mér og að mig langi svo mjög til að sjá hana og tala Við hana. Og allt í einu er hún hjá mér. Ég varð þá fjarska glöð og ég . tek eftir að hún er orðin svo ungleg og svo falleg, og við byrj- um að tala saman eins og við værum jafnaldra vinkonur. É'g spyr hana hvernig henni líði og hún svarar að sér líði vel. Þá spyr ég hana hvernig það væri þarna sem hún væri (þ. e. í himnaríki). Þá sagði hún mér að þau væru fyrst sjö ár í ein- hverjum reynslutíma eða ein- hverju svoleiðis en síðan færu þau til upþhæða. Ég skildi ekki vel það sem hún sagði mér og ég spurði ekki aftur. Ég sagði henni þá frá því að bróðir hennar væri dáinn (hann dó rétt fyrir páska). „Já,“ sagði hún. „Ég veit, hann mun hafa komið í fyrradag." Svo fórum við út að ganga og ég man ekki vel hvað gerðist. Þó man ég að við svifum ein- hvern tíma. Og skrítnir hlutir gerðust. Allt í einu var ég svo komin til ömmu minnar (þ. e. móður- ömmu) og var að fara að drekka. Þá sé ég við borðið frænda minn, þann er dó rétt fyrir páska. Ég sagði ömmu frá því. Hún varð hissa en sagði svo að sumir sæju meira en aðrir. Ég sagði henni einnig að ég hefði verið með mömmu, en ég man ekki hverju hún svaraði þá. Svo var draumurinn ekki lengri, nema mig minnir að ég hafi sagt við einhvern í gríni að ég væri orðin skyggn. Og nú, kæri draumráðandi, langar mig að biðja þig að hjálpa mér ef þetta er ekki eintómt rugl. Virðingarfyllst, M. H. Að sjá látna veru í draumi og tala við hana getur táknað bæði gott og illt, allt eftir því hvern mann dreymir og hvað hann segir. Algengast er, að framliðn- ir séu að vara við yfirvofandi hættu, en segja þá gjarnan eitt- hvað, sem bendir til þess. En það á ekki við í þessum sér- kennilega draumi. Það er ekkert neikvætt í draumi þínum og bæði útlit móðurinnar og það sem hún segir ætti að boða eitt- hvað mjög gott. Líklega mun einhver sýna þér mikla vinsemd og hjálpsemi á næstunni og ýms- ar áhyggjur og erfiðleikar, sem þú hefur þurft að stríða við að undanförnu, munu brátt verða úr sögunni. Síðari hluti draums- ins er öllu erfiðari viðfangs. — Hann bendir einna helzt til þess, að þú sért gædd skyggnigáfu og verið sé að benda þér á það. Þú ættir að athuga, hvort þú sért ekki einmitt skyggn, þótt þú hafir ekki fyrr veitt því eftir- tekt. KarlmaSur í síðum samkvæmiskjól Kæri þáttur! Mig dreymdi fyrir stuttu, að maðurinn minn ætlaði að fá sér síðan samkvæmiskjól. Hann ætl- aði að láta sauma hann á sig al- veg sérstaklega. Hann ætlaði að halda þessu leyndu fyrir mér, en ég komst að því fyrir tilviljun. Ég varð bálreið eins og gefur að skilja og fannst hann ætlaði að svíkja mig. Hann gat lítið sagt sér til afsökunar, en minntist eitthvað á, að hann hefði ekki haft neitt illt í huga með þessu. Ég tek það fram, að við erum búin að vera gift í 12 ár og er- um bæði mjög lítið út á við, eins og kallað er. Fyrir hverju er draumurinn? Fyrirfram þökk fyrir birting- una. Móðir fjögurra barna. Þessi einkennilegi draumur mundi að okkar áliti vera fyrir óvæntum heiffri, sem manninum þínum verffur sýndur. Þaff verffur enginn fjárhagslegur ávinningur honum samfara, en þetta mun gleffja ykkur bæði mikiff og hafa í för með sér nokkrar fínar veizlur. 22. tbi. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.