Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 46

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 46
lygasögum blaðanna hafa átt rót sína að rekja til þessara tvífara. Þeir héldu fyrirlestra í lians nafni, seldu handrit, sem áttu að vera skrifuð af honum, stjórnuðu bvltinga- herflokkum gegn Diaz for- seta í Mexiko, skrifuðu nafn hans undir ávísanir, sem engin inneign var til fyrir og lentu i ástarævintýrum und- ir hans nafni. Það streymdu látlaust til hans bréf frá fólki, sem þóttist bafa hitt hann einhvers staðar, sem hann aldrei hafði verið. Hann henti gaman að öllu þessu, þangað til einn af tvíförum hans skaut upp kollinum í San Francisco, og fór þar að draga sig eftir kvenmanni að nafni Babe. Þegar svo langt var gengið, að Babe var far- in að senda opin póslkort til Glen Ellen, þar. sem hún skrifaði: „Elskarðu mig ekki lengur?“ og skrifaði undir. „Kærastan þín“, fór hann að gera gangskör að því að út- rýma þessum tvíförum, en honum tókst það aldrei al- veg. Vegna þess hve allt var óljóst um ætt hans og upp- runa, fékk hann bréf frá bráðókunnugu fólki, sem fullyrti, að hann væri sonur þess, bróðir eða frændi. Fjöl- skylda ein í Oswego í rikinu New York fullyrti, að Jack héti réttu nafni Harry Sands og hefði strokið að heiman um fermingaraldur. Honum var einnig borið á brýn að hafa gefið ranga mvnd af lífinu í lAIaska, og að vita ekki um hvað hann skrifaði. Ásökunin um ritstuld var svo algeng, að hann lá sífellt undir henni. Þegar árið 1902 hafði hann verið sakaður um að hafa stolið sögu frá rit- höfundinum Frank Norris. En þegar það kom í ljós, að þriðji maðurinn hafði skrif- að sögu um sama efni, var málið rannsakað, og kom þá i ljós, að þoir höfðu allir fengið hugmyndina úr skýrslu um atburð, sem skeð hafði í Seattle. Stanley Wat- erloo hafði skrifað „Söguna af Ab“ og Jack hafði notað hana sem grundvöll að sög- unni „Á undan Adam“. Út úr þessu gerði Stanley mikið veður ,sem breiddist út um allan heim. .Tack svaraði með STEREO MAGNARAR FM-TUNERAR DULCI 207 2x7 W Stereo magnari, verð kr. 7.230,00 DLCI FMT 7 tuner, verð kr 6.740,00 a o Eignist stereo sett — Njótið góðs hljómflutnings Greiðsluskilmálar og ÁRS ÁBYRGÐ EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti 10A - Sími 16995 þvi að viðurkenna skuld þá sem hann stæði í við Water- loo, en hélt að öðru leyti fram, að hinn frumstæði maður væri almenningseign. Frank Harris ritstjóri og rit- höfundur hafði í einni af greinum sinum vitnað í ræðu, sem biskup Lundúnaborgar átti að bafa lialdið. Jack hafði notað þessa ræðu í „Járnhælnum", og nú reyndi Harris að vekja athygli á sjálfum sér með því að birta grein sina samhliða kaflan- um úr „Járnhælnum“, og hugðist með því að sanna skjallega, að .Tack væri rit- þjófur. Jack gat ekki svarað öðru til en þessu: „Ég hef fengið að láni, en ekki stol- ið, af þvi að ég hélt, að Harris hefði vitnað i frumrit.“ Til þess að geta staðið straum af útgjöldum sínum Verkir, þreyta í baki ? DOSI beltin hafa eytt þrautum margra. ReyniS þau. EMEDIA H.F LAUFÁSVEGI 12 - Sími 16510 varð Jack að framleiða smá- sögur í sífellu, sem hægt væri að selja, og Alaskasög- urnar voru útgengilegastar. Hann hélt þvi áfram að ryðja þeim úr sér, þó að honum væri það alltaf þvert um geð. „Ég er alltaf að reyna að komast burtu frá Klondike.“ Margar af Alaskasögunum eru vel skrifaðar; aðeins Smoké Bellew-sögurnar bera það greinilega með sér, að þær eru samdar eftir pöntun. Þær lögðu til sement, timb- ur og kopar í nýja heimilið hans, og honum fannst sjálf- um, að hann borgaði þessar vörur með ósviknum vörum. „Mér þótfi allt annað en gam- an að skrifa þessar þrettán Smoke Bellew-sögur, en ég gerði það alltaf eftir beztu getu.“ Stundum var hann i vand- ræðum með efni í sögur. Það var einu sinni, þegar svo stóð á fyrir honum, að hann fékk bréf frá Sinclair Lewis, íauðhærða blaðamanninum, sem á sínum tíma átti við- tal við hann fyrir blaðið „Yale News“, og sem nú hugðist að gerast rithöfund- ur. Lewis sendi honum nokk- ur uppköst að hugmyndum, sem hann stakk upp á við Jack, að hann notaði, og bauð honum þau fyrir 7,50 dollara stykkið. Jack valdi „Garð skelfingarinnar“ og aðra til og sendi Lewis ávís- un á 15 dollara. Lewis skrif- aði strax aftur og þakkaði Jack og sagði honum, að peningarnir hefðu farið fyr- ir vetrarfrakka, sem ætti að vernda hann gegn vetrar- stormunum. Seinna sendi Lewis honum hugmyndir að tuttugu og þrem sögum og lét fylgja með „fylgibréf með vörum, sendum samkvæmt beiðni, verð .. .. “ .Tack keypti eina hugmyndina fyrir 2,50 doll- ara, tvær fyrir 7,50 dollara og eina fyrir 10 dollara, — alll sama verðið og Lewis hafði sett upp. Þessar hug- myndir notaði Jack í sögum- ar „Þegar heimurinn var ungur“, sem kom út i tíma- ritinu „Post“ og litlu skáld- söguna „Hnefaleikarann", sem kom í „Popular Maga- zine“. Þegar hann skrifaði Lewis, að í fyrsta skipti á ævinni leiddist sér að semja smásögu og hefði ekki liug- mynd um hvernig hann ætti að fara með liugmynd hans að „Launmorðingja-skrif- stofunni“, sendi Lewis, sem nú var farinn að vakna til meðvitundar um hæfileika sína, honum ókeypis langa skýringu á þvi, hvernig vinna ætti úr hugmyndinni. Greiðviknastur var .Tack London i garð allra þeirra ungu skálda, sem flykktust að lionum eins og engisprett- ur. Það leið ekki sá dagur, — Það getur verið að prest- inn langi ekkert til að hafa loðna bringu! — Þrjár mínútur búnar, herra! 46 VIKAN 22- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.