Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 13

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 13
 Hvort sem ég fæ peningana aftur eða ekki verð ég að borga af þeim skatta .. um fyrst til Los Angeles, þaðan til New York og svo heim. — Hefurðu ekki fengið tilboð um að koma og vinna úti, til dæmis sem Ijósmyndafyrirsæta — og jafnvel kvikmyndaleikkona? Jú, en á kvikmyndaleik hef ég ekki nokkurn áhuga, svo hef ég fengið tilboð um að koma til Japan, bæði sem Ijósmyndafyrirsæta og eins til að leika í sjónvarpsauglýs- ingum. Svipað tilboð hef ég fengið frá Parfs, og ég hef hugsað mér að taka því; vera úti í sumar og eitt- hvað fram á haust. Ég gæti sagt frá því, svona í gamni, að þetta tilboð sem ég fékk frá Japan, hljóðaði upp á 50 dollara á tímann, frá 9—6, hvort sem ég vann eða vann ekki, og það þýðir að ég hef 450 dollara á dag — lágmark. —Sem myndi gera eitthvað í kringum eina milljón króna á mán- uði! Það hafa nú hingað til þótt þol- anlegar mánaðartekjur! Af hverju tekur þú því ekki heldur? — Mig langar einfaldlega ekkert til að vinna í Japan. Mér fannst ekk- ert sérlega gaman að vinna með Japönum, og helzt vil ég dansa. Þau tilboð sem ég hef fengið frá Evrópu og Ameríku eru öll í sam- bandi við Ijósmyndun, en ég held að ég taki eitthvað af því frekar, iafnvel þó þau tilboð sem ég hef fengið frá Japan, tvö frá sjónvarps- stöðvum, þar sem ég á að synoia oq dansa, séu meira á mínu sviði. Nú, og svo getur svo margt spilað inn í störf liósmyndafyrirsætu, sem pæt: verið gaman að. — Hjá langflestu fólki, svo við snúum okkur nú að öðru um stund- arsakir, kemur að því einhverntíma, að það stofnar heimili, fer að eign- ast börn og þessháttar. Hvernig leggst þetta í þig? Langar þig til að eignast börn til að hugsa um daglega? — Já, það er ábyggilegt. Að vísu ekki strax, en eftir svona 3—4 ár. Éq hef gaman að litlum börnum og mér finnst gaman að stússa í matar- gerð og öðru slíku. Þetta er að vísu aðeins draumur — vel getur farið svo að ég gangi ekki út, og þá verð ég gömul og skorpin ,,piparjónka'' með tímanum. Þetta er hálf-óhugnanleg tilhugs- un og áreiðanlega ótímabær, svo við snerum okkur aftur að kvenlegri fegurð og íslenzkum yndisþokka. — Eins og þú hefur sjálfsagt heyrt, þá ruddist hópur kvenna upp á sviðið í Háskólabíói um daginn, þegar valin var fegurðardrottning 22. tw. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.