Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 6
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
PÖSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
BIBLÍAN - RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA
er falleg myndabók í alþjóðaútgáfu og tilvalin tæki-
færisgjöf. Hér er um aS ræða nýstárlega túlkun á
heilagri ritningu, sem fellur ungu fólki vel í geð.
Myndirnar, sem danska listakonan Bierte Dietz hefur
gert, eru litprentaðar í Hollandi, en textinn er
prentaður hérlendis. Magnús Már Lárusson, háskóla-
rektor, hefur annazt útgáfuna og ritar inngang og
ágrip af sögu íslenzkra Biblíuþýðinga frá upphafi.
Þetta er vönduð og glæsileg myndabók.
BIBLÍAN
RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA
MYNDABÓK í ALÞJÖÐAÚTGÁFU
Draumar og
peningaseðlar
Kæri Póstur!
Ég hef lengi ætlað að skrifa
þér og læt nú verða af því. Ég
byrja þá fyrst á því að þakka
þér fyrir allt gamalt og gott, en
þó sérstaklega fyrir framhalds-
sögurnar ykkar. Þær eru frá-
bærar.
Þá kemur aðalerindið: Er ekki
hægt að kaupa sér draumráðn-
ingabók? Og hvað kostar hún?
Og hvar fæst hún, ef hún er til?
Og svo er annað, sem mig lang-
ar til að vita: Hafa hxmdrað-
krónuseðlarnir með ljósgræna
bakinu verið teknir úr umferð?
Verða þeir þá ekki mjög verð-
mætir eftir nokkur ár? Ég er
búinn að safna nokkrum og lang-
ar þess vegna að vita þetta. Og
er ekki sama að segja um tíu-
krónuseðla og fimmkrónuseðla?
Vonast eftir svari fljótt.
Fáviti.
Jú, draumráðningabækur eru
margar á boðstólum í flestum
bókabúðum. Ein þeirra kostar til
dæmis 86 krónur. Allir þeir
seðlar sem þú minnist á hafa
nú verið teknir úr umferð og
mynt komið í staðinn. Þeir verða
því nokkuð dýrmætir, sérstak-
lega eftir mörg ár. Þú skalt þess
vegna safna slíkum seðlum nú
— ef þú hefur ráð á því.
Snýr sér undan
Kæri Póstur!
Ég hef oftast lesið ráðlegging-
ar þínar, og þær hafa stundum
verið mjög góðar. Þess vegna
vona ég, að þú svarir mér.
Ég er hrifin af strák í bekkn-
um mínum, en ég veit ekki hvað
ég á að gera til að láta hann sjá,
að ég er hrifin af honum. Oft
þegar ég horfi á hann, þá er
eins og hann geti ekki horft beint
á mig. Hann snýr sér alltaf und-
an.
Ég vona, að þú svarir mér sem
fyrst. V. Á.
Það spáir strax góðu, að hann
skuli ekki geta horft beint í augu
þér svona í viðurvist alls bekks-
ins. En nú er farið að vora, þeg-
ar þetta bréf birtist, og það er
einmitt hentugasti tíminn til að
koma svona löguðu í kring. Það
er víst engin hætta á, að hann
þori ekki að horfa beint í aug-
un á þér, ef þér tekst að fá hann
til að ganga með þér, til dæmis
„suður Laufásveginn".
Heklufarganið
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á því að þakka
Vikunni fyrir skemmtilega for-
síðumynd af Heklugosinu. Mér
þótti skemmtilegt að fá að sjá
litmynd af eldunum svona fljótt,
en annars verð ég að segja, að
mér fannst þetta Heklugos blás-
ið alltof mikið upp. Það var engu
líkara en allt ætlaði af göflunum
að ganga út af þessu gosi. Blöð-
in og útvarpið og sjónvarpið
gengu hreinlega berserksgang.
Ég tek undir með manninum,
sem vitnað var til í þættinum
ykkar „í fullri alvöru“. Hann
sagði eitthvað á þá leið, að það
væri sök sér að asnast þarna
austur, ef hægt væri að liðsinna
bændunum eitthvað. En að þeys-
ast þetta til þess eins að svala
eigin forvitni, það fannst mann-
inum af og frá, og það finnst
mér líka.
Ég hef þá ekki þessar línur
öllu fleiri, en vil þakka Vikunni
fyrir bæði fróðlegt og skemmti-
lent efni, bæði fyrr og síðar.
A. G.
Flvttu bér Lúpus ...
Virðulegi Póstur!
Ég vil byrja þetta með því að
þakka Vikunni fyrir margar
skemmtilegar og fróðlegar grein-
ar, sem hún hefur birt, til dæm-
is nýja þáttinn um knattspyrn-
una, framhaldssöguna Hennar
keisaralega tign og greinaflokk
Lúpusar um þingmennina. Ég er
annars farinn að hafa áhyggjur
af því hve sjaldan þessar grein-
ar koma, nú fer senn að líða að
nýjum alþingiskosningum og
hvað þá ef Lúpus verður ekki
búinn með þingið eins og það
er núna? Það eru áreiðanlega
margir sem kaupa blaðið aðal-
lega vegna þessa þáttar og þeir
yrðu fyrir sárum vonbrigðum ef
þeir fengju ekki þingið sitt kom-
plett í Vikunni eins og það er
nú. f guðanna bænum, reynið
þið að reka á eftir Lúpusi.
Ykkar með vinsemd. Þ. M.
Það segir sig sjálft að greinar
eins og þær, sem Lúpus skrifar
um þingmennina, eru ekki hrist-
ar fram úr crminni, heldur
krefjast mikillar vandvirkni og
nákvæmni. Þess vegna er ekki
erfitt að skilja að eitthvað líði
á milli þess að þær birtast. En
við erum sammála því að Lúpus
þyrfti að klára þingiö eins og
það er nú, fyrst hann á annað
borð byrjaði á því þannig, og
skulum reka á eftir honum eftir
föngum.
6 VIKAN
22. tbl.