Vikan


Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 26

Vikan - 28.05.1970, Blaðsíða 26
Gerir hann börnin sín arflaus? Picasso er oröinn 88 ára og nú er stríðið um hinar miklu eignir þessa spræka karls hafið. Þessi gamli vinur kommúnista á það eflaust til að stríða Frökkum og gefa eigur sínar Spánar Francos. flllER A AD ERFA PICASSO? Wmtim Franquise Gilot og börn hennar (og Picassos), Claude og Paloma. Picasso kemur mönnum alltaf á óvart. Slærsta safnið af verkum Picassos er ekki i New York eða París. Það er held- ur ekki í neinu þekktu safni, eða i leigu einhvers auðugs listaverkasafnara. Þessi listaverk voru falin fyrir augum heims- ins í einkaíbúð í Imsinu númer 48 við Pasco de Cracia í Barcelona. Þetta safn er um 1000 verk, teikningar, grafisk verk og olíumálverk. Þetta safn er ómetanlegt og það er nú í Barcelona. Þessi gömlu listaverk voru vel geymd, geymslustaður þeirra var vel varðveitt leyndarmál listamannsins sjálfs og ætt- ingja hans á Spáni. Pablo Picasso, sem nú er 88 ára, hafði skilið listaverk sin frá æskuárunum eftir í Barcelona, þcg- ar hann flutti til Parísar, fyrir fyrri heimsstyrjöldina. Picasso varð snemma þekktur lista- maður í lieimalandi sínu, hann Iiafði fyrstu sýningu sína, þegar hann var 15 ára. Eftir að hann flutti til Parísar, sendi hann við og við sýnishorn af list sinni til foreldra sinna. Eftir lát þeirra tók Lola, systir Picassos, vð safninu. Á þeim líma var Pablo Picasso orðinn heims- frægur maður. Þegar Lola og eiginmaður liennar, sálfræðingurinn Yilató, lélust, þá yfir- tók dóttir þeirra, María Dolores Vilató, umsjón með safninu, hún er semsagt systurdóttir Picassos. • Nú liðu áratugir. Picasso vildi ekki stíga á spánska jörð eftir lok borgara- styrjaldarinnar, árið 1939. Ilann var þá orðinn bæði frægasti og jafnfram auð- ugasti listamaður í heimi. Söfn og safn- arar greiða milljónir fyrir verk hans. Picasso er fyrir löngu búinn að liasla sér völl i listasögunni. Nýlega kom hinn aldni meistari mörg- um á óvart. Hann gaf þetta safn ung- dómsverka sinna borginni Barcelona. Mörgum aðdáendum hans fannst þetta óskiljanlegt, og það kom öllum á óvart, bæði á Spáni og i Frakklandi, þótt ástæðurnar væru ólíkar. Picasso hefur alltaf verið mjög vinslri sinnaður, og ekki farið leynt með aðdáun sína á kommúnistum, sem risu upp á móti Franco i borgarastyrjöldinni. Franco svaraði með því að banna honum að sýna Iistaverk sín á Spáni. Það mátti yfirleitt ekki lala um þennan frægasta listamann Spánar i heimalandi hans. Það er fyrst nú á seinni árum að menntamálaráðuneytið í Madrid er far- ið að halda j)ví á lofti að Picasso sé S])ánverji. • I Frakklandi hefur Picasso verið álitinn „sonur Frakklands“, þar sem hann hefur húið fjóra fimmtu hluta ævi sinnar i Frakklandi, og þar hlaut hann fvrst frama. Pahlo Picasso heldur því aftur á móti fram að hann geti þakkað sjálfum sér einum alla sina frægð. Hann hefur aldr- ci viljað gerast franskur ríkisborgari. Sá maður, sem alltaf hefur staðið Pi- casso næst, var Spánverj, málarinn og skáldið Jaime Sahartés. Þeir voru æsku- vinir og Sahartés varð síðar einkaritari Picassos. Picasso gaf honum mörg mál- verk og eitt eintak af öllum svartlistar- 26 VIKAN 22- tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.