Vikan - 24.09.1970, Blaðsíða 8
f UMSJÚN
ÓLAFS
BRYNJOLFSSONAR
Nú styttist óðum í leikinn sem
íslenzkir knattspyrnuáhugamenn
og konur hafa beðið eftir með
hvað mestri eftirvæntingu, og
telja má að tvímælalaust sé mesti
knattspyrnuviðburður þessa árs,
þ.e. leikurinn í Evrópubikar-
keppni meistaraliða milli Eng-
landsmeistaranna frá því á s.l
keppnistímabili, Everton og Is-
landsmeistarana frá því í fyrra,
íþróttabandalags Keflavíkur.
Þó segja megi að saga þessara
félaga sé að flestu leyti ólík er
það þó eitt, sem þau eiga sam-
merkt að bæði hafa einu sinni
áður unnið sér keppnisrétt í Ev-
rópubikarkeppninni og voru
einnig bæði slegin út í fyrstu um-
ferð. Everton lenti í hörkumikilli
baráttu á móti Inter-Milan og
lagði ítalska liðið alla áherzlu á
varnarleik í fyrri leiknum sem
fram fór á Goodison Park í Liv-
erpool og tókst að halda markinu
hreinu og lauk leiknum án þess
að mark væri skorað. Síðari leik-
urinn fór fram á San Siro leik-
vanginum í Mílanó og var mikil
harka í honum, eins og í þeim
fyrri. Lauk honum með sigri Int-
er, sem skoraði eina mark leiks-
ins, og gerði síðar gott betur, því
það vann keppnina það árið.
Með sigri sínum í deildar-
keppninni s.l. keppnistímabil,
komst Everton í hóp þeirra fé-
laga sem oftast hafa unnið deild-
arkeppnina, eða alls sjö sinnum,
en þau eru auk Everton, Arsenal,
Liverpool og Manchester United.
Þá hefur Everton sex sinnum
hlotið önnur verðlaun deildar-
keppninnar og þrisvar orðið
enskur bikarmeistari, síðast árið
1966 er lið félagsins sigraði Shef-
field Wednesday 3—2, eftir að
hafa verið undir um tíma 0—2.
Sigur Everton í ensku I-deild-
arkeppninni s.l. keppnistímabil
var mjög sannfærandi. Hlaut fé-
lagið alls 66 stig í 42 leikjum og
var 9 stigum fyrir ofan næsta fé-
lag, sem var Leeds.
Vann Everton-liðið alls 29
leiki, 8 enduðu með iafntefli, en
tapaði 5 leikjum. Tapleikirnjr
voru gegn Liverpool á heimavelli
(0—3), en á útivelli tapaði liðið
fyrir Derby (2—1), Leeds (2—11.
Southampton (2—1) og W.B.A.
(2—0).
ÞORSTEINN
ÓLAFSSON
ÁSTRÁÐUR
GUNNARSSON
VILHJALMUR
KETILSSON
HJORTUR
ZAKARÍASSON
EINAR
GUNNARSSON
GRÉTAR
MAGNÚSSON
MAGNUS
TORFASON
EINAR
MAGNÚSSON
HORÐUR
RAGNARSSON
FRIÐRIK
RAGNARSSON
STEINAR
JÓHANNSSON
BIRGIR
EINARSSON
HARRY CATTERICK,
FRAMKVÆMDASTJÓRI
JÓN Ó.
JÓNSSON
ALAN
BALL
FYRIRLIÐI
GUÐI
KJARTANSSON
FYRIRLIÐI
I. B. K.
HAFSTEINN GUÐMUNDSSON.
FORMAÐUR Í.B.K.
EVERTON
GORDON TOMMY KEITH BRIAN SANDY JOHN
WEST WRIGHT NEWTON LABONE BROWN HURST
HOWARD
KENDALL
COLIN ALAN JOE JIMMY
HARVEY WHITTLE ROYLE HUSBAND
JOHNNY
MORRISEY
8 YIKAN 3S>- tbl-