Vikan - 24.09.1970, Page 12
Einn af þeim ekki mjög mörgu
Vesturlandamönnum sem sýnt
hafa áhuga og lagt eitthvað á
sig til liðsinnis Kúrdum í frelsis-
baráttu þeirra gegn íraksstjórn
er íslendingurinn Erlendur Har-
aldsson. Hann hefur heimsótt
yfirráðasvæði byltingarmanna í
Kúrdistan og gert margt til að
kynna málstað þeirra, skrifað
um þá bók á íslenzku og þýzku,
flutt erindi og tekið kvikmyndir.
Þetta hefur Erlendur allt haft
með höndum jafnframt sálfræði-
námi, sem hann hefur undanfar-
in fimm-sex ár stundað í Vest-
ur-Þýzkalandi. Fyrir rúmu ári
lauk hann háskólaprófi í þeirri
grein frá háskólanum í Múnchen
og fór síðan til Bandaríkjanna,
þar sem hann hefur síðan starf-
að við stofnun eina í tengslum
við Duke-háskólann í Norður-
Karólínu. Stofnun þessi fæst við
rannsóknir og tilraunir í þeirri
grein sálfræði sem á ensku er
nefnd parapsychology, en þeim
vísindum hefur Erlendur lengi
haft áhuga á.
Vikan náði fyrir skömmu tali
af Erlendi, en hann var staddur
hér á landi um nokkurra daga
skeið, en hann er nú aftur far-
inn til Bandaríkjanna og mun á
næstunni starfa þar á sjúkra-
húsi. Fjallaði viðtalið einkum
um parasálfræðina, en þau vís-
indi ættu ekki hvað sízt að vera
forvitnileg í augum íslendinga.
— Ég lærði sálfræði í. Þýzka-
landi; fyrrihlutann, þrjú ár, var
ég í Freiburg, hóf Erlendur máls.
Þar við háskólann er stofn-
un, sem sinnir því sem við nefn-
um dulræn fyrirbæri. Eftir það
var ég í svipaðan tíma í Múnch-
en, og lauk þar prófi í fyrra-
sumar. Þá hafði ég haft nokkurt
samband við prófessor Rhine,
sem hér er dálítið þekktur, en
hann hefur flestum fremur stað-
Raimyeruleild
hugsanaflutnings oii'
CÖ| • p 11 O ö
ij arnni a ekkert
vafamál
12 VIKAN 39. tbi