Vikan - 24.09.1970, Side 26
„Ger það sem þú vilt, hvar sem
þú vilt og hvenær sem þú vilt.“
Þetta er kjarninn í heimspeki
„hlómabarna“, og samkvæmt henni
lifðu þau og léku í Brederode i
Hollandi, rétt hjá Rotterdam. Þar
höfðust við frá föstudagskvöldi til
mánudagsmorguns undir berum
himni um sjötiu þúsund æsku-
menn frá flestum Iöndum Evrópu.
Til skemmtunar var popmúsík,
fíknilyf og sex. Lögreglan í Rott-
erdam hafði ekkert við þetta að
athuga, enda munu Hollendingar
með umburðarlyndara fólki. Líka
má scgja að engin þörf hafi verið
fyrir lögreglu á þessari samkomu,
sem fór fram með allra friðsam-
asta móti. Þar voru engar þrætur,
engin slagsmál — og ekkert aikó-
hól. Því að þetta þrennt er hreinn
viðbjóður í augum sannra hippa.
Þeir .sækjast eftir heimi friðar og
hamingjusamlegs athafnaleysis. Og
þegar þeir eru meðal sinna líka,
er auðvelt fyrir þá að telja sér
trú um að takmarkið sé skammt
undan. Gallinn er hara sá að hipp-
arnir afla varla þess, scm þeir
sækjast eftir, nema þcir sjálfir cða
aðrir vinni fyrir þvi. Þótt með-
fylgjandi mynd bendi til þcss að
þeir eyði heldur Iitlu í föt, þá
minnir hún einnig á fíknilyfin,
sem eru mikilsverður liður f lífi
þeirra. Og þau kosta sitt. Einn
hippinn á myndinni hcfur hengt
þýzkan járnkross á magann á sér,
hvað sem það á nú að þýða á slíkri
friðarhátíð.
rf Vib gepwm abems þa&
sem okkut* gott pykb*rf
Á víðu garðsvæði hjá
Rotterdam í Hollandi var nú
í sumar haldin mesta
hippahátíð í Evrópu til þessa.
Stúlkurnar voru í nokkrum minnihluta á hátíðinni og
mun það hafa aukið söluna hjá höndlurum þeim er
höfðu nektarmyndir á boðstólum. Framan við þetta
söluskýli hvílir einn unglingurinn í hasjvímu.
26 VIKAN 39. tbi.