Vikan - 24.09.1970, Síða 50
ingarnar, þrjár-fjórar vélritaðar
síður um hvern, voru síðan lagð-
ar fyrir okkur ómerktar, og átti
hver að þekkja eigin lýsingu og
helzt að geta séð hvaða lýsing
átti við hvern hinna. Allir að
einum undanteknum þekktu lýs-
inguna á sjálfum sér, og ég hef
aldrei vitað Geir lýst betur.
— Þú minntist á forvizku. fs-
lendingar þóttu löngum búa vel
hvað snerti forvitra menn, en
hvernig er það hjá öðrum þjóð-
um?
— Einn sá merkasti af forvitr-
um mönnum, sem ég veit um, er
Hollendingur að nafni Croizet.
Einnig hann hefur tekið þátt í
tilraunum í Freiburg. Tilraun-
irnar hafa oft verið á þann veg,
að fyrir einhvern opinberan
fund, sem halda átti á tilteknum
tíma, hefur Croizet verið látinn
spá fyrir um hvaða fundarmaður
sæti í þessum eða hinum stóln-
um. Þannig hefur hann stundum
heiman frá sér í Hollandi lýst í
smáatriðum mönnum, sem sátu
í ákveðnum stólum á fundum,
sem síðar hafa verið haidnir í
Freiburg. Þegar fundi iýkur eru
hinir fyrirhöfðu menn spurðir
spjörunum úr til að komast að
raun um hversu nákvæm lýsing-
in sé. Jafnframt velja menn, sem
ekki þekkja lýsingu Croizets, ör-
fáa menn úr hópi fundarmanna
og eru þeir á sama hátt spurðir
spjörunum úr. Þá hefur það tíð-
ast komið fyrir að lýsing Croi-
zets en nákvæm um hina fyrir-
höfðu menn en kemur að engu
gða mjög litlu leyti heima við
þá menn, sem valdir hafa verið
af handahófi til samanburðar.
Nýlega var slík tilraun gerð í
Denver í Kólóradó, Bandaríkjun-
um. Sjálfur sat Croizet þá heima
í Hollandi og lýsti fundarmanni,
sem setjast myndi í ákveðið sæti
á fundi í Denver mánuði síðar.
Þetta virðist renna stoðum
undir forlagatrúna gömlu.
— Um það fullyrðir parasál-
fræðin ekkert. Hún fullyrðir
aldrei annað en það. sem teljast
má sannað með tilraunum — og
sannað oftar en einu sinni. Inn-
an þeirrar fræðigreinar forðast
menn kenningar.
— Segðu okkur eitthvað fleira
af þínum eigin rannsóknum.
— Ég get til dæmis minnzt á
tilraun, sem ég gerði í vetur í
Durham. Hún var á þá leið að
tveir voru alltaf þátttakendur í
senn. Annar var sendandi, hinn
móttakandi. Móttakandi lá á
dívan og var fest á fingur ann-
arrar handar tæki, sem mælir
blóðmagnið í fingrinum. Sjálf-
ritandi tæki í öðru herbergi
sýndi breytingar á blóðmagninu,
en þær breytingar eiga sér stöð-
ugt stað. Sendandinn sat í enn
öðru herbergi á annarri hæð í
húsinu. Er tilraunin byrjaði fékk
sendandinn í hendur spjöld, eitt
í senn, sem á voru rituð manns-
nöfn, sem móttakandi taldi hafa
sterk tilfinningaleg áhrif á sig.
Sendandinn hafði hvert nafn í
tuttugu sekúndur, las nafnið og
átti jafnframt að hugsa til mót-
takandans. Notuð voru fimm
mismunandi nöfn, hvert nafn
tvisvar og svo tíu auð spjöld,
alls tuttugu spjöld. Nokkurt hlé
var haft milli afhendinga spjald-
anna. Sjálfritandi tækið sem
mældi blóðmagnið skráði jafn-
framt hvenær sendanda var af-
hent spjald og hversu lengi hann
hafði það. Er sendandi fékk autt
spjald þurfti hann ekkert að að-
hafast. Það er löngu kunnugt að
háræðar í útlimum þrengjast við
geðshræringu. Þar sem nöfn þau
er móttakandinn hafði gefið
höfðu sterk áhrif á hann, þótti
eðlilegt að búast við því að hár-
æðarnar þrengdust þær sekúnd-
ur er sendandinn var með spjald
með nafni, ef fjarhrif eða hugs-
anaflutningur ættu sér stað. Ef
honum var rétt autt spjald, var
hins vegar ekki við neinum við-
brögðum að búast.
— Og hver varð niðurstaðan?
— Niðurstaðan varð sú, eftir
tilraunir með fjölda fólks, fólks
sem ekki taldi sig hafa neinar
sérgáfur, að meiri breyting varð
á blóðmagni í fingrinum þegar
spjald með nafni var ,,sent“.
Þetta varð þó aðeins þegar send-
andi og móttakandi voru vinir
eða skyldmenni. Einnig virtust
innhverfir menn betri móttak-
endur en úthverfir. Þá virtust
þau nöfn hafa mest áhrif sem
móttakandi taldi tilfinningalega
sterkust.
Athyglisvert við þessa tilraun
er að móttakandi veit ekkert um
þær breytingar, sem stöðugt eru
að gerast í háræðunum. Hann
getur ekki rakið orsakir þeirra
smáu, geðrænu sveifla, sem
munu valda þeim, til neinna sér-
stakra atburða. Honum er sagt
að liggja hinn rólegasti og hugsa
ekkert sérstakt og hann er einsk-
is spurður meðan ó tilrauninni
stendur. Hann fær ekki að vita
hvenær sent er spjald með nafni
og hvenær nafnlaust spjald.
Hann veit ekki einu sinni hve-
nær byrjað er að senda. Hvers
konar samband milli sendanda
og móttakanda er auðvitað al-
gerlega útilokað. Sá sem mælir
breytingar á blóðmagni á hverju
senditímabili veit ekki fyrr en
eftir á hvenær hvað var sent.
Síðan er fólk sem ekki hefur
unnið að tilrauninni látið vinna
úr henni.
Þetta fer nú að minna á
það sem maður hefur heyrt um
galdra. Það væri kannski ekki
úr vegi að minnast að síðustu á
trúna, sem til forna átti að geta
flutt fjöll.
— Ekki hefur parasálfræðin
uppgötvað neina svo magnaða
trúmenn. En það hefur þótt sýna
sig að þeir, sem trúa að fyrir-
bærin geti átt sér stað, ná bezt-
um árangri í tilraunum varðandi
þau.
dþ.
MIG
DREYMDI
Þrjár hvítar perlur
Til draumráðanda Vikunnar:
Mig langar til að biðja yður að
ráða fyrir mig draum sem mig
dreymdi fyrir nokkru, og veldur
mér áhyggjum. Ég er gift, en í
„nánum“ kunningsskap við ann-
an mann, sem ég met mjög mik-
ils.
Draumurinn er þannig:
Mér finnst okkur hafa sinnazt
eitthvað, mér og þessum vini
mínum, og finnst mér ég bíða
eftir því að hann geri það gott.
Þó fæ ég sendan lítinn pakka,
allan þakinn í blómum og verð
ég mjög hrifin. Opna ég pakk-
ann og sé að í honum er gull-
hringur með þremur hvítum
perlum og var sú í miðið stærst.
Set ég hann á baugfingur vinstri
handar.
(Á hægri hendi ber ég minn
giftingarhring og fyrir framan
hann gullhring með einni perlu,
hvorttveggja gjöf frá-eiginmanni
mínum).
í draumnum finnst mér ég
taka þann perluhring af og setja
hann á mig fyrir framan þann
nýja, svo hann sjáist síður, og
var það aðallega eigimaður minn
sem ég hafði í huga. Og sem ég
virði báða hringana fyrir mér á
sama fingri, tek ég utan um þann
fremri (þann frá manninum mín-
um) og fer þá öll húðin af perl-
unni. Held ég á henni á millum
fingra mér og stari steinilostin á.
Lengri varð draumurinn ekki.
Þar sem þessi draumur er afar
persónulegur fyrir mig, set ég
ekki nafn mitt undir þetta bréf,
og er það alveg á yðar valdi
hvort þér svarið mér eða ekki.
Með fyrirfram þakklæti og
kveðju.
Kolbrún.
Jú, vissulega var það algjörlega
á okkar valdi, og þó að það sé
regla hjá okkur að birta aldrei
nafnlaus bréf, gerum við undan-
tekningu í þetta skiptið, ef ske
kynni að við gætum orðið yður
að Iiði.
Þér hafið ætíð tekið manninn
yðar framyfir vin yðar, en það
kemur að því, og sennilega er
það nú þegar orðið, að mesti
glansinn fer af því — þegar mað-
urinn yðar uppgötvar (uppgötv-
aði) hvað allt hefur snúizt um.
„Við komum aftur“
Kæri draumráðandi!
. . . Ég var stödd inni í búð og
var að verzla. Frá búðinni sást
niður að höfn og lá þar bátur
sem mágur minn er skipstjóri'á.
Fannst mér maðurinn minn vera
kominn til hans sem stýrimaður.
Komu þeir báðir inn í búðina á
meðan ég var að verzla, og var
ég með nótu í hendinni; var
nótan stíluð á mág minn og
fannst mér hún vera nokkurs
konar ávísun. Fór ég til hans og
bað hann að skrifa aftan á nót-
una, og gerði hann það. Ekki
sögðu þeir orð við mig allan
tímann, en ég borgaði með nót-
unni og fékk eitthvað til baka.
Fóru þeir svo út á undan mér
og gengu í áttina til hótelsins
sem er þarna stutt frá. Ég fór á
eftir þeim og fannst ég vera með
litlu dóttur okkar, sem var 1—
2 ára, en hún er í rauninni að-
eins þriggja mánaða gömul. Ég
kom að hótelinu í sama mund
og þeir gengu upp tröppurnar, og
kalla í þá hvort þeir ætli ekki að
koma heim? Þá snýr mágur
minn sér við og segir:
— Við komum aftur!
Lengri varð draumurinn ekki,
en mágur minn er alls ekki á
bát héðan og mér fannst í
draumnum að maðurinn minn
væri farinn frá okkur. Ég hef
skrifað þér einu sinni áður og
þá rættist ráðning þín. Með
þakklæti fyrir allt.
Ein forvitin.
Þessi draumur er þér mjög hag-
stæður, og boðar þér pcninga,
jafnvel óvæntan arð, og ferða-
lag. Þó er alls ekki ólíklegt að
það líði eitt eða tvö ár þar til
það verður, en okkur finnst
óhætt að fullyröa þetta samt
sem áður.
Svar til Lillýar
Draumurinn er allur nokkuð
óljós og þokukenndur og hæpið
að gera ráð fyrir að hann sé
annað og meira en órar. En væri
eitthvað að marka hann, gæti
hann boðað næsta uggvænleg
tíöindi, og þá helzt sviplegan og
vofeiflegan dauðdaga mannsins,
sem rétti þér klútinn, og alvar-
legar deilur og jafnvel illindi.
Veruleg hætta gæti steðjað að
ykkur feðginunum í sambandi
við þetta, og ættuð þið til vonar
og vara að halda ykkur á næst-
unni sem lengst frá manninum
með klútinn og samtökum þeim,
sem hann stendur fyrir. Ef þið
sleppið við öll áföll og slys í
sambandi við þá atburði, sem
draumurinn gæti boðað, er hins
vegar vel líklegt að þið eigið
batnandi gengi að fagna í fram-
tiðinni, bæði í einkalífi og á op-
inberum vettvangi. Hið síðar-
nefnda mundi frekar eiga við
föður þinn.
50 VIKAN 39- «>i.