Vikan


Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 14

Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 14
Bananar og flesk 4 bananar 4 sneiðar flesk eða skinka salt, pipar Bananarnir flysjaðir og kryddaðir með salti og pipar. Rúllið flesksneið utanum hvern banana og festið með tannstöngli. Setjið síðan bananana í eldfast fat og steikið við 200° þar til bananarnir og fleskið er orðið gulbrúnt (ca. 20 mín.). Bananasalat með osti 6 bananar 2 epli 2—3 bollar ostateningar sósa: 2 hl vínedik 4—5 hl olía salt, pipar Bananarnir skornir ! litla bita. Sömuleiðis eplin. Blandið saman ásamt ostateningunum í fallega gler- skál. Setjið saxaða steinselju yfir og hellið sósunni yfir og látið bíða góða stund á köldum stað. Bananaís '/4 I rjómi 2 egg 3 msk. sykur saxaðar hnetur eða möndlur ca. 1 msk. kakóduft eða kaffi 5 bananar Þeytið rjómann og setjið kakó- duftið í. Þeytið egg og sykur mjög vel og blandið þessu vel saman. Bananasneiðar settar ! ásamt hnet- unum. Frystið. Skreytið síðan með bananasneiðum og rifnu súkkulaði. Ilmsión: Dröfn H. Farestveit hósmæOrakennari Hawaii-bananar 4 bananar lítil ananasdós ! bitum 2 msk. sykur 2 msk. brauðmylsna smjör Smyrjið eldfast fat og setjið an- anasbitana og bananana sem skornir eru að endilöngu ! lögum. Stráið brauðmylsnu og sykri yfir og setjið nokkra smjörbita yfir. Hellið dálitlu af ananassafa yfir og þá má gjarn- an blanda dálitlu af konjaki, romm eða sherry í ef það er fyrir hendi. Bakið í ca. 15 mínútur við 180— 200°. Berið fram heitt með þeyttum rjóma. 14 VIKAN 40 tbl Yfirleitt eru bananar borSaSir hérlendis eins og þeir koma fyrir. Bananar, bornir fram sem grænmeti, þaS er tiltölulega nýtt. VíSa erlendis hefur þaS tíSkast lengi. ReyniS einu sinni aS breyta til og bera fram steikta banana. Sannið til að það verður vinsælt. Þannig má bera þá hvort heldur er með fisk- eða kjötréttum. Heit bananasamloka 2 brauðsneiðar smjör 1 banani 1 skinkusneið 1 ostasneið dálítið sellerísalt Smyrjið brauðsneiðarnar og leggið kjötsneiðina á. Þá er sett þétt lag af niðursneiddum banana, ostasneið og dálítið sellerísalt og hin brauðsneið- in sett yfir. Steikið í smjöri, eða grillið þar til osturinn er bráðinn. Þennan smárétt er gott að bera fram t.d. eftir leikhús- eða bíóferð, á salatblaði og skreytt með tómat og steinselju. Bragðið af steiktum bönunum er mjög frábrugðið bragðinu af þeim nýjum. Jamaica-pottaréttur 1 kg kindakjöt 4 bananar 1 rauð paprika 1 pk. djúpfrystar baunir 2 dl rjómi Skerið kjötið ! litla bita og hafið sem minnst af beinum. Veltið því úr hveiti blönduðu salti og pipar og steikið það vel brúnt í potti. Hellið vatni á þar til það hylur kjötið og sjóðið það við hægan hita þar til kjötið er meyrt. Bætið þá skornum bönunum ! paprikuhringjum og baunum. Látið sjóða í smástund og bætið rjómanum !. Bætið ekki neinu sérstöku kryddi ! þennan rétt, þv! þá hverfur fína bragðið sem banan- arnir gefa. Saltið eftir smekk og berið fram með laussoðnum hrís- grjónum. Bananasalat frá Flórída 2 grapealdin vínber ca. 1 bolli 3—4 msk. sykur 2 msk. valhnetukjarnar 4 bananar Grapealdinið skorið í tvennt og innmaturinn skorinn innanúr og brytjaður í bita. Bananarnir skornir að endilöngu og síðan í sneiðar. Vínberin skorin ! tvennt og hnetu- kjarnarnir saxaðir. Blandið þessu öllu saman og setjið aftur í grapealdinhýðið og stráið sykri yfir. Látið standa á köld- um stað dálitla stund áður en það er borið fram. Þetta má bera fram sem salat eða ábætisrétt. ... 4o. tbi. VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.