Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 18
Nú er að koma út á
ensku ævisaga Faruks,
síðasta einvalds
Egypta. Þar er sagt frá
lífi hans frá barnæsku,
sagt frá því þegar hon-
um datt í hug að
stjórna sjálfur herjun-
um í stríðinu við
Israef í maí 1948,
fékk þannig Nass.er það
vopn í hendurnar,
sem hann þurfti, til að
velta konunginum úr
hásætinu . . .
Einangraður.
Faruk 9 ára að leik í garði Kubbah-hallarinnar, þar sem hann óx
upp, eiginlega alveg einangraður frá heiminum.
Sænsk kennslukona.
Ungfrú Sjöberg var ein af mörgum útlenzkum kennslu-
konum, sem áttu aö sjá til þess að krónprinsinn lærði
„evrópska“ menningu.
FARUK - SÍÐAÍ
Kvöldið 11. febrúar 1920 kallaði Fuad,
kedivinn af Egyptalandi, í skyndi á ráðherra
sína og hraðaði sér með þeim til Abdinhall-
arinnar, þar sem Nazli drottning lá í fæð-
ingarhríðum. Þeir urðu þar vitni að því að
hún fæddi Fuad son, eina soninn sem hann
eignaðist.
Þetta tiltæki hans var vegna þess að sögur
höfðu verið á kreiki um að Fuad hefði verið
búinn að gera ráðstafanir til þess að hafa
nýfætt sveinbarn tiltækt, ef drottningin
fæddi ekki sveinbarn og erfingja.
Fuad var að rifna af stolti og ánægju og
lét skíra drenginn Faruk, sem er arabiskt
nafn og þýðir „Sá sem kann skil á réttu og
röngu“. Það getur verið að Faruk hafi vitað
eitthvað um rétt og rangt, en honum hætti
við að gleyma því, þegar hann sjálfur átti í
hlut.
Nafnið Faruk kemur líklega til að marka,
um tíma og eilífð, það tímabil í sögu eg-
ypzka konungdæmisips, þegar lágkúruskap-
ur, leti, nautnasýki, lygar og þjófafaraldur
gengu hvað mest yfir landið.
Sá Faruk, fyrrverandi konungur Egypta,
sem féll dauður niður á veitingahúsi í Róma-
borg 45 árum síðar, var hlægileg goðsögn,
sem allur heimurinn hafði að háði.
Algerlega stefnulaus.
Menn eru fyrir löngu búnir að gleyma því
að Faruk var einu sinni „efnilegur ungling-
ur“, von og traust milljónaþjóðar, sem hélt
að hinn ungi konungur myndi gera líf þeirra
bærilegt og hreinsa til í hinum rotna hópi
stjórnmálamanna, sem kúguðu þjóðina.
Menn gleyma því líka, án éfa, að Faruk
var alvara, þegar hann talaði í fyrsta sinn
til þjóðar sinnar, þá nýorðinn konungur, 16
ára gamall, og lofaði henni bættum lífskjör-
um. Ræðan var einföld, einna líkust ræðu á
skátafundi, en hann skrifaði hana sjálfur og
hefur eflaust verið einlægur, enda segja það
allir, sem þekktu hann þá.
En sannleikurinn er þó líklega. sá, að Far-
uk vantaði allt sem til þurfti, til að verða
annað en það sem hann varð í raun og veru.
Hann var strax algerlega á vaidi hirðklík-
unnar, sem vissi hvernig átti að stjórna hon-
um.
Myndin af Faruk, sem varnarlausu fórnar-
dýri hirð- og valdaklíkunnar, er skýrt dregin
í þessari fyrstu ævisögu Faruks. Það er rit-
höfundurinn Hugh McLeave sem skrifaði
hana og kallar hana: „The Last Pharaoh,
The Ten Faces of Farouk".
McLeave hefur verið mjög nákvæmur með
að afla sér réttra upplýsinga, hann hefur tal-
að við hundruð manna, egypzka, brezka og
arabiska sérfræðinga, ættingja Faruks og
alla sem voru líklegir til að geta sagt eitt-
hvað um líf hins landflótta konungs.
Það er ófögur mynd, ef maður leggur eitt-
hvað upp úr siðmenningu. En þessi mynd
verður aumkunarverð, þegar fram í sækir,
mynd af unglingi sem var eyðilagður af
uppeldinu, ungum manni, sem viljasterk ill-
menni höfðu að leiksoppi og var algerlega
ófær um að gagnrýna sjálfan sig.
400 herbergi.
Kubbah höllin, norð-austan til í Kairo, var
æskuheimur Faruks. Höllin var umkringd
háum múrum og var einna líkust fangelsi.
Faruk og systur hans fjórar (Fawzia, Faiza,
Faike og Fathia) fengu ekki að fara út fyrir
hallarmörkin, nema með örfáum undantekn-
ingum.
En þau þurftu ekki að hafa innilokunar-
kennd, því nóg var húsrýmið. Það voru 400
herbergi í höllinni, skrautlegir salir, skrúð-
garðar með gosbrunnum, gervitjörnum og
sundlaugum.
Fuad, sem gerður var konungur árið 1922,
var harðstjóri í þess orðs fyllstu merkingu,
jafnvel hans nánustu óttuðust hann. Börn-
in hans tóku til fótanna og földu sig, þegar
þau heyrðu rödd hans, sem var með ein-
kennilegum málmhljómi (hann hafði fengið
byssukúlu í barkann einu sinni þegar hon-
um var sýnt banatilræði).
Ef Faruk varð eitthvað á, varð hann að
hlusta á skammarræðu föður síns liggjandi
á gólfinu, bókstaflega talað.
Fuad tók fljótlega eftir því að drengurinn
var feitlaginn. Hann gaf því skipun um að
18 VIKAN «■ tw.