Vikan


Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 30

Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 30
HEYRA MÁ Cþó íægra Iátíj OMAR VALDIMARSSON LOGAR. Frá vinstri: Henry, Ólafur, Guðlaugur, Ingi og Helgi. ÖLAFUR BACHMAN MEÐ LOGUM Ólafur Bachmann, hinn nýi tiommu- leikari Loga. Hann segist hress yfir stöðunni. Eins og við sögðum frá um síðustu mánaðamót, voru Logar frá Vestmannaeyjum að gera heilmiklar breytingar á hljóm- sveitinni, með því að taka inn tvo nýja menn. Á síðustu stundu var hætt við annan, trommu- leikarann, því Ólafur Bach- mann, sem áður var með Mán- um, var til staðar, og er nú far- inn að leika með hljómsveitinni. Eftir að Óli hætti í Mánum fór hann til Reykjavíkur og lagði hér stund á iðnnám. En þeir sem einu sinni hafa komizt í tónlist eiga bágt með að hætta, og því réðst hann í hljómsveit, og spil- aði með Haukum í Sigtúni, en aðmírállinn þar er enginn annar en Guðmundur Ingólfáson, sá bráðsnjalli orgel- og píanóleik- ari. Svavar Gests lét svo um mælt ekki alls fyrir löngu, að honum hefði fundizt Ólafur vera einn af þeim fáu söngvurum hérlend- um sem syngju af innlifun og tilfinningu, og á það getum við fallizt með ánægju, en viljum gjarnan bæta við að hann er og lipur trommuleikari. En eitt er víst, að Logar eru nú á grænni grein með þrjá góða söngvara, þá bræður Inga og Helga Her- mannssyni og Ólaf Bachmann. PLANTAN ENDURVAKIN Það er orðið nærri því heilt ár síðan hljómsveitin PLANTAN lék á dansleikjum sem Islend- ingar hafa aðgang að. Eitthvað hafa þeir verið að leika fyrir hernámsliðið á Keflavíkurflug- velli, en mestan tíma hafa þeir notað til að æfa, og nú hafa þeir hugsað sér að svipta hulunni af þeim leyndardómi sem yfir hljómsveitinni hefur verið, með því að hefja leik á ný. Breyting hefur þó orðið á hljómsveitinni; í hópinn hefur bætzt Kristján Erlendsson, saxó- fón- og klarinettuleikari, og er hann því fimmta hjól á vagnin- um. Hinir fjórir eru tvíburarnir Guðni og Guðmundur Sigurðs- synir, en Guðni er orgel- og trompetleikari hljómsveitarinn- f NÆSTA BLAÐI: í næsta blaði verður meðal annars ítarlegt viðtal við John Cosling, pf- anóieikara KINKS, sem voru hér á dögunum, og heil opna verður með myndum og frásögn af hljómleikum þeirra í Höllinni, þó svo að þeir hafi verið heldur óspennandi. PLANTAN: Efstur er Guðni, en frá vinstri eru Kristján, Viðar, Þórður og Guðmundur. (Myndina tók Egill Sig- urðsson, litlihróðir tviburanna). ar, en Guðmundur leikur á bassa og syngur. Gítarleikari er Viðar Jónsson, sem áður var með Örn- um og þar áður með ýmsum hljómsveitúm (hann hefur verið í bransanum í að minnsta kosti 7 ár), og trommuleikari er Þórð- ur Þórðarson. Þeir félagar hafa hugsað sér að njóta góðs af öllu því blás- araverki sem þeir hafa nú yfir að ráða, og eru því töluvert inn á jazz-rock línunni, og er við litum inn á æfingu hjá þeim ekki alls fyrir löngu, fannst okkur þeir gera henni prýðileg- ustu skil. Sérlega er gaman að hlusta á Guðmund, því hann er ekki einasta dágóður bassaleik- ari, heldur og einn bezti söngvari sem við höfum heyrt í langa lengi. Það er hreinasta synd að ekki skuli hafa heyrzt í honum meir, og því er það okkar æðsta von að við fáum að heyra meira í honum fljótlega. lillllli ÍffÉfÉÉ ill!ll!l!!!l!!l ílllll . 30 VIKAN 40. tbi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.