Vikan


Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 33

Vikan - 01.10.1970, Blaðsíða 33
MINUM Tino aat bak við stýrið í bílnum og leit spyrjandi á hann. Enrico greip skófluna og kinkaði kolli til drengsins. Síðan skreið hann aftur inn í kjallarann, stakk skóflunni undir hurðina og ýtti henni upp. Með því náði hann lyklinum. Hann stakk honum í lásinn og opnaði. Hann kom inn á gang með mörg- um dyrum. Það skein ljós í gegnum eitt skráargatið. En áður en hann athugaði nán- ar þetta ljós, rannsakaði hann hin herbergin. Þar var ekki nokkur manneskja. Svo opnaði hann varlega síðustu dyrnar á ganginum og tók fram skammbyssuna, sem hann hafði tekið af Luigi Fantoni. Nokkrum sekúndum síðar stóð hann í svefnherbergi. í rúminu lá sofandi kona. Við hlið hennar lá opinn bók og ljós var á lampa á náttborðinu. Enrico andaði léttar og stakk skammbyss- unni í vasa sinn. Þetta var ung kona, líklega rúmlega þrí- tug, með sítt, svart hár og granna hand- leggi. Ef hún opnaði nú augun, gæti hún ekki komizt hjá því að sjá hann. Hann læddist hljóðlega að rúminu og lyfti hendinni.... Enrico stóð yfir henni, grafkyrr og beið eftir því að hún vaknaði. Hann vissi að hún myndi finna til nærveru hans og opna augun. Hann sá að augnalok hennar titruðu, þykk og síð augnahárin lyftust. Og um leið og dökku augun stækkuðu af hræðslu, lagði hann höndina yfir munn hennar, svo hún gat ekki öskrað. — Þér skuluð ekki vera hrædd! sagði hann. — Ég skal ekki gera yður neitt. Ég ætla ekki að ræna yður eða eigum yðar. En reynið ekki að æpa! Hann losaði gripið. Hún sagði ekkert, en andaði djúpt og starði á hann. Það leið góð stund þar til hræðslan hvarf úr augnaráði hennar og hún varð róleg. — Hver eruð þér? — Ég er á flótta, sagði Enrico snöggt. — Þér fáið að vita allt um það síðar. Farið á fætur og gefið okkur eitthvað að borða. — Ykkur? — Já, ég er með lítinn dreng með mér. Hann situr í bílnum yðar í bílskúrnum. Hann sneri sér við en stóð samt þannig að hann gat séð til hennar í speglinum. Hún var í gegnsæjum náttkjól, mjög fagurlega limuð. Hann sá að hún var fljót að smeygja sér í slopp og stinga fótunum í inniskó, án þess að líta af honum. Hann sneri sér svo aftur að henni. — Hvernig þorir einstæð kona að búa á svona afskekktum stað? — Ég þarfnast einmanaleikans, sagði hún. — Frá hverjum eruð þér að flýja? — Lögreglunni. — Hvað hafið þér gert af yður? — Framið bankarán og stolið tvö hundruð milljónum líra. — Og haldið að þér verðið öruggur fyrir lögreglunni hér? — Nei, það held ég ekki. Ég kom hér ein- faldlega til að sækja milljónirnar mínar. Ég hefi nefnilega falið þær hér og þér hafið byggt húsið yðar á þeim stað sem þær eru grafnar. Marina stóð við bókaskápinn í stofúnni og horfði á Tino háma í sig brauð og svínakjöt með beztu lyst. Enrico gekk fram og aftur, með brauðsneið í annarri hendinni en tommu- stokk í hinni, — mældi út og reiknaði. — Ef taskan hefir ekki verið flutt til, þá á hún að vera rétt fyrir framan arininn. Hafið þér teikningu af húsinu? Hún svaraði ekki. Hún var nú búin að klæða sig, var komin í svartar, þröngar bux- ur og var að lagfæra á sér hárið. — Ég spurði hvort þér hefðuð teikningu af húsinu! sagði Enrico í ásökunarróm. Hún gekk að skrifborðinu, opnaði skúffu og rétti honum teikninguna. Hann breiddi úr henni á borðið. Svo leit hann á hana. — Hvað heitið þér eiginlega? — Verið ekki að spyrja svona mikið,, sagði hún kuldalega. — Flýtið yður heldur að finna töskuna svo þér komizt fyrr af stað héðan! — Marina Olivi! Hann kipraði munninn og benti á nafnið, sem stóð á teikningunni. — Skáldkonan! Þér vinnið þá með heilanum. Notið hann þá nú og verið ekki að tefja fyrir mér. Hún stóð kyrr stundarkorn en sagði svo háðslega: — Það stendur á teikningunni. Og þér virðist kunna að lesa. Það sem ég ásaka yður aðallega um er að draga drenginn inn í þetta. Þér ættuð að skammast yðar. Enrico skoðaði teikninguna. — Það er ekki hægt að ná í töskuna frá kjallaranum. Hvað er hér undir gólfinu? — Það stendur líka á teikningunni. Þarna. Hún benti á teikninguna. — Það er meters þykk einangrunarhella. — Og úr hvaða efni er hún? Hún horfði á hann þrjóskufullum augum. — Hvað skeður ef ég segi yður það ekki? — Það skuluð þér fá að sjá. En ég ræð yð- ur til að vera samvinnuþýð. — Innst inni eruð þér aðeins hræddur strákkjáni, sagði hún, — þótt þér þykist vera einhver Stálmaður! Neðst er járnbent stein- steypa, svo asfalt og svo aftur steinsteypa og efst er fimm centimetra þykk einangrunar- plata. Hvað gerið þér nú? — Ég ætla auðvitað að grafa upp töskuna mína, þótt ég verði að sprengja upp húsið yðar. — Hversvegna eruð þér að fást við annað eins og þetta? spurði hún og hellti meira kaffi í bollann hans. — Fremja bankarán, innbrot hjá mér, — og svo þetta með dreng- inn, ja kannski eitthvað fleira? — Það er peningagræðgi. — Það hlýtur að finnast einhver dýpri ástæða. Hvaða samband var á milli yðar og móður yðar? Enrico fleygði frá sér teikningunni. -- Viljið þér halda móður minni fyrir utan þetta! Ég vil ekki hlusta á neitt sálfræðilegt rugl! öskraði hann reiður. — Hvað eigið þér af verkfærum? Egið þér meitil? Öxi eða sög? — Hvað ætti ég að gera með það. Ég hefi ekki hingað tii haft ástæðu til að rífa húsið niður! — Ég þarf verkfæri. Þér komið með mér, Tino, þú bíður hér. Meðan hann leitaði í bílskúrnum að verk- færum, spurði hann skyndilega: 32 VIKAN «• tw. Marina stóð graf- kyrr og horfði á hann brjóta upp gólfið á herbergi hennar. Það var aðeins eitt sem komst að í hug- skoti hennar: hvernig gat hún komið honurn fyrir kattarnef og komizt undan með drenginn? Þá fékk hún ágæta hugmynd.... — Eruð þér ekki hrædd við að búa hérna eins? Hús, sem stendur svona afskekkt, býður upp á innbrot og glæpi. — Það skeður margt hrollvekjandi í íbúð- arblokkum í borgunum. Hvað ætlið þér að gera við þetta reipi? — Það er handa yður. Eg þarf verkfæri og þar sem þér eigið engin, þá verð ég að sækja þau til Fiesole. En ég verð að vera viss um að þér finnið ekki upp á neinum kjánaskap. Ég ætla samt ekki að hengja yður, að minnsta kosti ekki strax. — Ef að þér væruð ekki glæpamaður, þá væruð þér mjög athyglisverður maður, sagði Marina. Hann tók í handlegginn á henni og leiddi hana aftur inn í húsið. Þegar hann kom inn í stofuna, tók hann undir sig stökk að skrif- borðinu og reif símann úr höndum Tinos. Hann greip um axlir drengsins. — Við hvern varstu að tala? — Maríu, hún sagði að pabbi væri ekki heima. — Hvað sagðir þú við hana? — Ég sagði að við værum í húsi við ána og við ætluðum að grafa upp margar milljónir. — Ó, þú kjáninn þinn ... Marina lagði hönd sína á arm hans. — Það eru fleiri þúsund hús við ána. Hvaða máli skiptir það hvað drengurinn sagði? Enrico sleit í sundur símalínuna og fleygði tækinu út að vegg. Hann nísti tönnum í van- máttka reiði. — Þetta var heimskulegt, sagði Marina ró- lega. — Ef einhver hringir til mín, og ég svara ekki, þá verður hringt á bilanatil- kynningar og þeir senda viðgerðamenn hing- að. Enrico átti erfitt með að stilla sig. — Setjist þarna á stólinn. Hún sá að það var tilgangslaust að þybbast við hann — og lét hann binda sig, en Tino horfði undrandi á. — Hversvegna ertu að binda hana? spurði hann. Enrico svaraði ekki. — Komdu nú, sagði hann. — Við. förum til Fiesole, ég þarf að sækja svolítið þangað, svo við getum grafið töskuna upp. Og hlustaðu nú á það sem ég segi. Meðan við erum í Fie- sole verður þú að liggja á gólfinu í bílnum, svo enginn sjái þig. Skilurðu það? — Ja-á, sagði Tino, ekki vegna þess að hann skildi hvað hann átti við, heldur vegna þess að hann vissi að það var rétt sem En- rico sagði. Klukkan var að verða fimm, þegar rauði sportbíllinn rann út úr bílskúrnum og var ekið á gífurlegum hraða í áttina til Fiesole. • Enrico sá ekki manninn sem sat við veg- brúnina til að hvíla sig, en Carlo Cavallo þekkti manninn við stýrið í bílnum, sem þaut fram hjá. Hann stóð fljótt upp til að athuga bílnúm- erið, endurtók það oft, til að gleyma því ekki. Svo skellihló hann. Það var ekki útséð um árangurinn af eltingaleiknum! Hann gat hringt frá einhverjum veitingastað og fengið að vita hver ætti bílinn. Og þá gæti hann fengið eigandann til að segja sér það sem upp á vantaði. Að minnsta kosti var sjálfsagt að reyna. Og ef Enrico hefði verið búinn að ná í pen- ingana og á leið úr landi, þá gat verið hent- ugt að láta eiganda bílsins vita um hann. Það gat verið að hann hefði stolið bílnum og líka sennilegast. Þetta var síðasta tækifærið. Hann ákvað að fara ekki strax upp í fjöllin, heldur halda sig nálægt Fiesole um hríð. Hann fór aftur inn í skóginn og fylgdi ánni. Enrico hafði ákveðið að leggja nú allt á eitt bretti, það var eini möguleikinn. Hann hafði ekki tíma til að aka krókaleiðir, svo hann ók aðalgötuna inn í bæninn. Hann mætti tveim lögregluþjónum og heilsaði þeim glaðlega. Þeim gat ekki dottið í hug að maðurinn í rauða sportbílnum væri Enrico Rocca. Tino lá í hnipri á gólfinu. Enrico ætlaði að fara til járnvöruverzlun- arinnar, þar sem hann hafði á heiðarlegan hátt keypt verkfærin, sem hann notaði við bankaránið. Hann ók upp að dyrunum og stöðvaði bílinn. — Þú hreyfir þig ekki, sagði hann við Tino. — Lofarðu því? Tino kinkaði kolli. Enrico stökk út úr bílnum og gekk kring- um húsið og inn í port, þar sem hann braut rúðu. Iskrandi hljóðið í lögreglusírenu kvað nú við i götunni. Tino reis upp, skelfingu lostinn, en lagð- ist strax niðurf aftur. Hann hafði einhverja hugmynd um að Enrico væri að fremja ein- hvern verknað, sem ekki væri eftir lögunum og hann var eins hræddur nú, eins og þegar bezti vinur hans hafði brotið rúðu. Nú var hann jafn hræddur Enricos vegna, þegar hann heyrði þetta andstyggilega væl nálgast. — Flýttu þér, flýttu þér! Og allt í einu bar skugga á bílinn. Enrico fleygði verkfærunum upp í bílinn, smeygði sér í sætið og flýtti sér út á götuna. Hann tók fyrstu beygjuna á ískrandi hjól- börðum. Hann hægði fyrst á sér við næstu þvergötu og mætti lögreglubílnum eins og hver annar ökumaður og andaði léttar þegar lögreglu- bíllinn var þotinn fram hjá. — Varstu hræddur? spurði hann drenginn. — Nei, nei! Þarf ég að liggja lengur á gólf- inu? — Já. — Hvað varstu að sækja? — Verkfæri. — Ætlarðu að leysa hana þegar við kom- um þangað? — Já, strax. — Hversvegna varstu að binda hana? — Þú skilur það, þegar þú verður stór. — Ég var svo hræddur þegar sírenurnar fóru að væla. Ég var svo glaður þegar ég sá þig aftur. Enrico ýfði hárlubbann á kolli drengsins. — Það var fallegt af þér. — Ég segi pabba þetta allt saman, þegar ég kem heim. — Já, gerðu það. Hann verður glaður. Tino reis ekki upp af bílgólfinu, fyrr en þeir voru komnir inn í bílskúrinn. Hann sá að svitinn bogaði af Enrico, heyrði hve hon- um var erfitt um andardrátt og skildi að maðurinn sem hafði bjargað honum, var Framhald á bls. 50. 40. tbi. viKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.