Vikan - 12.11.1970, Blaðsíða 4
Margur gerir lítið úr því, sem
honum er ekki lagið.
íslenzkur málsháttur.
Heilan strætisvagn
fyrir sig
Elizabeth Taylor hefur verið
mikið veik í eitt og hálft ár. Hún
er nú óðum að hressast, en er þó
stöðugt undir lækniseftirliti enn.
Nýlega fór hún með manni sín-
um til London. Þau flugu í einka-
þotu sinni og ekki nóg með það.
Frá flugvellinum til borgarinnar
óku þau í sérstökum strætis-
vagni, sem enginn var í nema þau
tvö. Elizabeth Taylor var skorin
upp í maímánuði síðastliðnum,
en enn hefur ekki verið hægt að
fá að vita, hvað það er, sem ann-
ar að henni. -fr
Kvöld nokkurt,
þegar rigndi....
Kvöld nokkurt, þegar regnið
buldi á götunum í Lancashire í
Englandi, heyrði kona að nafni
Mary ámáttlegt ýlfur fyrir utan
dyrnar hjá sér. Hún opnaði og þá
blasti við henni stór og fallegur
hundur af sömu gerð og hin
fræga Lassí, sem allir þekkja úr
sjónvarpinu. Konan sá aumur á
skepnunni og hleypti henni inn,
gaf henni að borða og drekka og
bjó um hana við arininn.
En morguninn eftir varð hún
heldur en ekki undrandi. Þá var
„gesturinn“ búinn að eignast ell-
efu afkvæmi! Litlir og ósjálf-
bjarga hvolpar voru eins og hrá-
viði um alla stofuna. Konan var
einstakur dýravinur og ákvað
þegar í stað að hafa hjá sér bæði
tíkina og alla hvolpana hennar
— eins lengi og þau vildu njóta
gestrisni hennar.
Við birtum þessa mynd aðal-
lega af því að hún er skemmti-
leg. Annars var hún tekin á úti-
fundi (pólitískum) í Bedford á
4 VIKAN 46. tbi.
Englandi, og sýnir vel, að litli
snáðinn hefur ekki mikinn áhuga
á því sem móðir hans er að æpa.
Ungur sundkappi
Það er eitt af undrum verald-
ar, að ungbörn geta lært að
synda, áður en þau eru byrjuð að
ganga. Litli sundkappinn á með-
fylgjandi myndum er ekki nema
sex mánaða gamall og heitir
Jamie Dean. Sú litla hefur synt
síðan hún var þriggja mánaða
gömul. Hún á reyndar ekki langt
að sækja sundhæfileikann, því að
móðir hennar er hin fræga
danska sundkona, Greta Anders-
son. Hún rekur nú sundskóla í
Kaliforniu og tók barnið með sér
í laugina, þegar það var þriggja
mánaða gamalt, eins og fyrr seg-
ir. Hún fullyrðir, að hún hafi
næstum ekkert þurft að kenna
barninu, heldur hafi hún strax
byrjað að busla og komizt nokk-
urn veginn sjálf upp á lag með
að synda. A annarri myndinni
sjáum við þennan yngsta sund-
kappa veraldar „í keppni“. Jam-
ie litla Dean er að synda þvert
yfir laugina, sem er fimmtíu
metrar á lengd. Hún synti vega-
lengdina á rúmum tveimur mín-
útum, og er það sannarlega góð-
ur tími.